Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Georg Heiðar vill að Ísland fylgi Skandinavíu: „Mannréttindabrot að neita sjúklingum um kannabis“

Georg Heiðar vill að Ísland fylgi Skandinavíu: „Mannréttindabrot að neita sjúklingum um kannabis“
Georg Heiðar Ómarsson Mynd: YouTube-skjáskot

„Yfirvöld verða að opna dyrnar og hleypa kanna­bis­olíu inn í heil­brigð­is­kerfið, þá er árang­ur­inn mæl­an­legur og hægt að fylgj­ast með afleið­ing­unum,“ segir Georg Heiðar Ómarsson, sem starfað hefur í lyfja­geir­anum í rúman ára­tug og fylgst grannt með því sem er að gerj­ast í heil­brigð­is­kerfum nágranna­ríkja Íslands. „Það er eig­in­lega mann­rétt­inda­brot að neita sjúk­lingum á Íslandi um þetta því það er gert á for­sendum for­dóma.“ Hann hvetur Willum Þór Þórsson, heil­brigð­is­ráð­herra, að taka þessi mál alvar­lega og stíga skrefið.

Georg Heiðar starf­aði við vöru­þróun og mark­aðs­starf í íslensku lyfja­fyr­ir­tæki í rúman ára­tug. Hann kom nýverið fyrir vel­ferð­ar­nefnd Alþingis þar sem hann var spurður af þing­mönnum út í lyfja­hamp og hvernig þessum málum er fyrir komið á hinum Norð­ur­lönd­unum. Í nýjum þætti Hamp­kasts­ins, umræðu­þætti Hamp­fé­lags­ins, fer Georg yfir þekk­ingu sína á mála­flokknum. „Ég hef verið í sam­skiptum við fyr­ir­tæki í Skand­in­avíu sem eru braut­ryðj­endur í að koma kanna­bis­olíu inn í lækna­kerfi Sví­þjóðar, Dan­merkur og Noregs,“ segir Georg en þar hafa heim­il­is­læknar heim­ild til að ávísa kanna­bis­olíu til þeirra sjúk­linga sem þeir telja hana þurfa. „Danirnir myndu vilja koma hingað og aðstoða íslenska lækna, þjálfa þá og koma þessu af stað. Ávinn­ing­ur­inn strax væri fyrst og fremst í stuttu máli að kom­ast inn í þessa verkja­á­vísun í stað ópíóíða.“

Georg Heiðar Ómarsson

Á Íslandi gengur yfir ópíóíða-far­aldur og deyja árlega um fimm­tíu manns af völdum slíkra lyfja. Ekki ein­göngu eru lyfin gríð­ar­lega ávana­bind­andi heldur fara þau einnig afskap­lega illa með lík­ama sjúk­linga sem þau taka. „Þrátt fyrir það höfum við engan áhuga á að líta á aðra mögu­leika en við höfum mik­inn áhuga á ópíóíðum og ávísum þeim frekar auð­veld­lega. Áhuginn er ekki á þessu og ég á erfitt með að skilja það en held að þetta séu for­dómar. Fólk blandar saman lækn­inga­mætti kanna­bis við aðra neyslu og sjá fyrir sér Bob Marley að reykja. Við viljum fá þessa ópíóíða aðeins til hliðar. Við viljum fá kanna­bis­ol­í­una inn í lækn­inga­kerfið sem þýðir að læknir ávísar olí­unni, sjúk­ling­ur­inn fær hana, hann kemur aftur til lækn­is­ins og þeir ræða saman um það hvernig hún virk­aði og þeir vinna sig áfram þaðan.“

Lyfjafyrirtækin bíða spennt

Í Danmörku hefur mikil fram­þróun orðið á stuttum tíma og margar sér­hæfðar kanna­bis­ol­íur í far­vatn­inu. Meðal ann­ars ríkir spenna um olíu sem aðstoðar sjúk­linga með svefn en kanna­bis­ol­íur hafa gefið afar góða raun í til­raunum. „Við Íslend­ingar erum heims­meist­arar í mörgum flokkum þegar kemur að lyfja­notkun og eitt metið er í svefn­lyfjum. Það eru tvö svefn­lyf sem ríkja á mark­aðnum, þeim er ávísað frjáls­lega og þau eru mjög ávana­bind­andi. Þau eru einnig mjög stíflandi og ekki holl fyrir lík­amann. Kanna­bis­ol­ían er lausn á þessu.“ Jafn­framt hefur kanna­bis­olía gefið góða raun þegar kemur að floga­veiki, gigt og tauga­sjúk­dómum.

Georg segir að lyfja­fyr­ir­tækin séu spennt að bjóða upp á þennan mögu­leika hér á landi en hann sé því miður ekki í boði vegna þess að stjórn­völd halda dyr­unum lok­uðum. Lyfja­fyr­ir­tæki sjá um þennan hluta mark­að­ar­ins í Danmörku og eru afurðir frá þeim sam­þykktar af dönsku lyfja­stofn­un­inni. „Það eru ákveðnir staðlar sem þarf að upp­fylla. Þegar þú færð 20 pró­sent olíu þá er hún 20 pró­sent, ekki 15 pró­sent einn dag­inn og 75 pró­sent þann næsta eins og ger­ist þegar þetta flæðir um frá hvaða fram­leið­anda sem er.“ 

Þá sé ekk­ert því til fyr­ir­stöðu að rækta lyfja­hamp hér á landi og þróa íslenskar teg­undir af kanna­bis­olíu í lækn­inga­skyni. „Ef þetta verður tíma­bundið verk­efni, ég legg til að þetta yrði verk­efni til tveggja ára, þá er þetta mæl­an­legt og í lok tíma­bils­ins hægt að staldra við og skoða árang­ur­inn. En það þarf að opna dyrnar. Treystum við ekki íslenskum læknum fyrir því að ávísa þessum lyfjum, eins og öðrum, til þeirra sem þeir telja að þetta geti hjálpað?“ spyr Georg og beinir orðum sínum til heil­brigð­is­ráð­herra. „Það eina sem þarf er að Willum Þór taki þetta alvar­lega, opni fyrir kanna­bis­olíu í lækna­kerf­inu og stígi skrefið. Þetta er eitt penna­strik hjá ráð­herra og ekki mál af þeirri stærð­argráðu sem þarf að fara í gegnum Alþingi. Ef við horfum á Danina þá eru þeir braut­ryðj­endur í þessum málum og við þurfum bara að elta þá. Það er bara þannig.“

Á að á heima­síðu hamp­felagid.is er að finna ógrynni af upp­lýs­ingum hvað varðar hamp og kanna­bis ásamt að hægt er að skrá sig í félagið gegn vægu félags­gjaldi.

Þáttinn má sjá í heild sinni í spil­ar­anum hér að neðan ásamst að Hamp­kastið finnu þú á öllum helstu streym­isveitum. Gunnar Dan Wiium, stjórn­ar­maður í Hamp­fé­lag­inu, tók við­talið við Georg Heiðar, tækni maður var Mickael Omar Lakhlifi og Andri Karel Ásgeirs­son sá um frétta­skrif.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Svipuð atvik hafa komið upp við heimili Ragnars frá árinu 2023
Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina