Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Ásdís Rán hefur verið í viðskiptum frá 17 ára aldri: „Fólk er hætt að nenna að tala illa um mig”

Ásdís Rán hefur verið í viðskiptum frá 17 ára aldri: „Fólk er hætt að nenna að tala illa um mig”
Ásdís Rán Gunn­ars­dóttir. Mynd úr einka­safni

Ásdís Rán Gunn­ars­dóttir seg­ist vera komin með mjög sterka skel eftir öll árin í sviðs­ljós­inu. Ásdís, sem er nýjasti gest­ur­inn í podcasti Sölva Tryggva­sonar, seg­ist hlakka til að sýna á sér nýjar hliðar í for­seta­kapp­hlaup­inu:

„Ég hef alltaf staðið með sjálfri mér og haft sjálfs­traust og hug­rekki, þannig að þegar ég fékk þessa hug­mynd þurfti ég ekki að velta því neitt lengi fyrir mér að láta bara verða af því að bjóða mig fram til for­seta. Mér finnst bara jákvætt að sem flestir bjóði sig fram, þannig að fólk hafi úr mörgum að velja og hver og einn geti valið sinn fram­bjóð­anda. Þannig virkar lýð­ræðið. Þetta er kannski svo­lít­ill sirkus akkúrat núna, en svo munu þeir hæf­ustu lifa af og ætli þetta verði ekki 8-10 manns sem ná und­ir­skrift­unum af þessum 60-70 og þá verður komin betri mynd á þetta. Ég trúi því að ég verði í þeim hópi sem fer í gegnum með­mæla­þrösk­uld­inn og þá veit ég að ég fæ tæki­færi til að sýna á mér hliðar sem fólk þekkir kannski ekki. Ég hef haft hag af því að fá alls konar athygli í gegnum tíð­ina og það þýðir að margir hafa verið með alls konar skoð­anir á mér, en í raun og veru þekkir fólk mig ekki og ég veit að ég get sýnt á mér alveg nýja hlið sem mun koma fólki á óvart. Ég held að fólk þekki mig ekki neitt þó að það hafi séð fyr­ir­sagnir í gegnum tíð­ina. Ég er alin upp í sveit og hef þurft að hafa fyrir líf­inu og vera mjög sjálf­stæð í öllu sem ég hef gert,“ segir Ásdís, sem seg­ist hafa farið sínar eigin leiðir alveg síðan hún var ung­lingur og verið í eigin rekstri í áraraðir:

„Ég hef alltaf verið með mikið sjálfs­traust og þorað að fara mínar eigin leiðir og ganga á eftir því sem ég vil. Ég hef verið við­loð­andi við­skipti frá því að ég var 17-18 ára gömul. Þá byrj­aði ég að sjá um alls konar við­burði og síðan stofn­aði ég fyr­ir­sætu­skrif­stofu út frá því. Ég sé það núna að það var lík­lega meira hug­rekki og kraftur í mér en flestum jafn­öldrum mínum á þessum tíma. Sumum fannst skrýtið að sjá stelpu á þessum aldri með við­skipta­hug­myndir, en almennt fann ég að fólk virti mig fyrir hug­rekkið og mér var yfir­leitt alltaf tekið vel.“

„Ég vil koma til dyr­anna eins og ég er klædd og ég hef alltaf verið þannig. Ég er ekki með filter og segi hlut­ina eins og þeir eru. Ef ein­hver þarf að tala illa um mig þá verður bara að hafa það, ég ætla ekki að fara að rit­skoða mig. Ég er komin með mjög sterka skel eftir öll þessi ár í sviðs­ljós­inu. Þú þarft að hafa sterkar taugar til að geta verið á milli tann­anna á fólki í öll þessi ár og ég veit að ég hef það. Ég veit hver ég er og þeir sem þekkja mig vita hver ég er og það er það sem skiptir mestu máli. En reyndar hef ég ekk­ert fengið nei­kvætt nýlega. Fólk er lík­lega hætt að nenna að vera með leið­indi í minn garð.“

Ásdís hefur um ára­bil verið stærstan hluta árs­ins í Búlgaríu og  það er aug­ljóst að hún kann mjög vel við sig þar. Ásdís fór upp­haf­lega til Búlgaríu með fyrr­ver­andi manni sínum, knatt­spyrnu­mann­inum Garðari Gunn­laugs­syni. Hug­myndin var að lifa rólegu og þægi­legu lífi, þar sem hann fengi athygl­ina, en hún sæi um heim­ilið. En mjög fljótt kom í ljós að fram­vindan ætti eftir að verða önnur:

„Það gerð­ist eig­in­lega á einni nóttu, að fjöl­miðlar fengu mik­inn áhuga á mér. Þegar mynd­irnar af mér fóru að velt­ast um í gulu press­unni varð ekki aftur snúið. Ég fékk strax mikla athygli og gat því fljótt búið til minn eigin feril. Ég fékk fljótt vel borgað fyrir þau verk­efni sem ég tók að mér og þetta var eig­in­lega bara draumur í dós,“ segir Ásdís, sem enn dvelur mikið í Búlgaríu, enda fann hún nýverið ást­ina í örmum Þórðar Daníels Þórð­ars­sonar, sem rekur fyr­ir­tæki í Búlgaríu:

„Ég sagði síð­ast þegar ég var í við­tali hjá þér að íslenskir karl­menn væru hræddir við mig, en hann var ekki hræddur. Hann býr í Búlgaríu, þannig að það hentar mjög vel að hann haldi mér þar með annan fót­inn. Mér finnst Búlgaría frá­bært land og ég elska Búlgaríu. Mér hefur alltaf liðið vel þarna og og hef alltaf upp­lifað almenna vel­vild frá fólki.“

Eitt af því áhuga­verð­ara og erf­ið­ara sem Ásdís upp­lifði í Búlgaríu var þegar ein besta vin­kona hennar, Ruja Ignatova, hvarf spor­laust árið 2017, eftir að hafa tengst fjársvika­máli sem vakti heims­at­hygli. Ruja var, þegar hún hvarf, orðin millj­arða­mær­ingur í gegnum raf­mynt­ina OneCoin. Ásdís og Ruja voru í miklu sam­bandi allt þar til dag­inn sem sú síð­ar­nefnda hvarf spor­laust og ekki hefur spurst til hennar síðan.

„Við urðum fljótt mjög góðar vin­konur og hún fjár­festi í fyrsta fyr­ir­tæk­inu mínu í Búlgaríu. Undir það síð­asta var hún orðin millj­arða­mær­ingur og líf hennar hafði breyst sam­kvæmt því. Ég var með henni síð­ustu tvo mán­uð­ina áður en hún hvarf og þá vildi hún ekki umgang­ast nema örfáa. Þó að ég hafi auð­vitað ekki haft hug­mynd um hvað var í vændum, fann ég undir það síð­asta að hún var orðin mjög vör um sig og ótt­að­ist að fólk væri á eftir henni, en ég hélt að það væri bara af því að hún var orðin svo rosa­lega rík og í Austur- Evrópu eru miklu fleiri hættur fyrir ríkt fólk. En svo hvarf hún bara og ég hef ekk­ert heyrt frá henni síðan, né nokkur annar í kringum hana. Það bendir auð­vitað allt til að hún sé bara dáin.“

Þegar Ásdís lítur yfir far­inn veg er henni efst í huga þakk­læti yfir því hve margt hún hefur fengið að upp­lifa og hún seg­ist ekki sjá eftir neinu.

„Mér finnst mik­il­væg­ast þegar maður horfir til baka, að geta sagt að maður hafi fengið tæki­færi til að lifa líf­inu til fulls og upp­lifa drauma sína. Það get ég sagt um sjálfa mig. Ég er búin að gera flest sem mig hefur langað að gera í gegnum tíð­ina. Ef líf mitt myndi enda á morgun myndi ég deyja sátt.“

Hægt er að nálg­ast við­talið við Ásdísi og öll við­töl og pod­köst Sölva Tryggva­sonar inni á sol­vi­tryggva.is

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Forsetakosningar 2024

InnlentForsetakosningar 2024

Arnar Þór skuldar starfs­mönnum for­seta­fram­boðs­ins laun: „Ég vil fá skýr­ingar á því hvað þetta var“

Arnar Þór Jónsson, hæsta­rétt­ar­lög­maður og stofn­andi Lýð­ræð­is­flokks­ins hefur enn ekki greitt laun nokk­urra aðila sem störf­uðu við for­seta­fram­boð hans á þessu ári. Samkvæmt heim­ildum Mannlífs skuldar Arnar Þór Jónsson laun nokk­urra ein­stak­linga sem unnu við for­seta­fram­boð hans fyrr á árinu. Um er að ræða umtals­verðar upp­hæðir sam­kvæmt heim­ild­unum en Arnar Þór segir í sam­tali við Mannlíf eiga aðeins eftir að...
InnlentForsetakosningar 2024

Ástþór þög­ull um fjár­mögnun á fram­boði Ásdísar: „Ég er lang­flott­asti for­set­inn“

Ástþór Magn­ús­son, sexfaldur fram­bjóð­andi til for­seta Íslands, vill ekki upp­lýsa strax hvort hann muni fjár­magna vænt­an­leg for­seta­fram­boð Ásdísar Ránar Gunn­ars­dóttur en hún lýsti því yfir kosn­inga­vöku sinni fyrr á þessu ári. „Ég er offisjalí búin að taka að mér frið­ar­málin, þannig að þið megið búast við mér á 4-8 ára fresti næstu 30 árin,“ sagði for­seta­fram­bjóð­and­inn og fyr­ir­sætan einnig. „Ég...

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina