Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Aríel segir hvalkjöt umhverfisvænan mat: „Erfitt að meta greind dýra“

Aríel segir hvalkjöt umhverfisvænan mat: „Erfitt að meta greind dýra“
Aríel Pét­urs­son, er for­maður Sjó­manna­dags­ráðs Reykja­víkur og sjó­liðs­for­ingi danska flot­ans, telur að Íslandi eigi að veiða hvali

Sjó­liðs­for­ing­inn og for­maður Sjó­manna­dags­ráðs Reykja­víkur Aríel Pét­urs­son telur að Íslend­ingar eigi halda áfram að veiða hval og færir rök fyrir því að borða hval­kjöt sé í raun umhverf­is­vænn kostur.

„Mig langar aðeins að stinga niður penna vegna hval­veið­aum­ræð­unnar, sér­stak­lega vegna stóla­skipta í mat­væla­ráðu­neyt­inu. Ég vil byrja á því að nefna að lotn­ing mín fyrir þessum stór­kost­legu verum er mikil og mér þykir vænt um hvali rétt eins og öll dýr jarðar. Ég er þó, rétt eins og hér­umbil þrír fjórðu alls mann­kyns, kjöt­æta – eða öllu heldur alæta. Ég reyni þó að halda ein­hverju heil­brigðu jafn­vægi milli kjöts, græn­metis, kol­vetna o.s.frv. í neyslu minni,“ skrif­aði Aríel á sam­fé­lags­mið­il­inn Facebook fyrr í vik­unni en hann tæklar meðal ann­ars þau rök að hvalir séu svo gáfuð dýr að það sé ekki rétt að veiða þá.

Aríel talar um að það séu fleiri dýr séu gáfuð og nefnir að þorskum finn­ist gott að láta klappa sér og hægt sé að hafa stein­bít sem gælu­dýr heima í stofu.

„Þetta á meðal ann­ars við um svín líka. Þau eru gjarnan sett í fimmta sæti yfir greindustu dýr jarðar á eftir kol­krabb­anum, öpum, höfr­ungum og fílum, þótt vissu­lega sé erfitt að meta greind dýra eftir við­miðum mann­skepn­unnar. Það er þó ágætis sam­fé­lags­sátt um það að rækta svín til mann­eldis og ég er ekki með þessu að koma með áfell­is­dóm yfir neyslu svína­kjöts enda tek ég þátt í því sjálfur og frá­bið mér ábend­ingar þess efnis að ég sé að stunda „whataboutisma“ þó að sam­an­burð­ur­inn sé vissu­lega gerður til að benda á tví­skinn­ung­inn í umræð­unni.“

Umhverfisvænn matur

„Þá komum við að græna vinkl­inum í umræð­unni. Því hefur verið fleygt fram að stoppa verði hval­veiðar því stór­hveli bindi svo mikið kolefni. Ég hef gaman af talna­leik­fimi og langar því að setja upp lítið reikn­ings­dæmi. Ein lang­reyður er sögð binda 33 tonn á lífs­leið­inni. Sami hvalur gefur af sér að jafn­aði 30 tonn af kjöti sem ætti að vera nóg til að fæða alla 135 þús­und íbúa Reykja­víkur einu sinni. Samkvæmt norskri töl­fræði eru 1,9 kg af CO2 sem losna í and­rúms­loftið við fram­leiðslu af hverju kílói af bein­lausu hval­kjöti. Það eru því 57 tonn af CO2 sem mynd­ast í fram­leiðslu þess­ara 30 tonna bein­lauss kjöts. Ef sami hópur (Reyk­vík­ingar) hefðu neytt bein­lauss nauta­kjöts í þess­ari mál­tíð væri los­unin 3 millj­ónir tonna af CO2, eða ríf­lega fimm­tíu­falt meiri. Að neðan má sjá sam­an­burð kolefn­is­spors eftir nokkrum neyslu­vörum til glöggv­unar. Ef við erum heið­ar­leg í umræð­unni og ef okkur er raun­veru­lega annt um að halda kolefn­is­spori okkar í skefjum þá er hval­kjöt umhverf­is­vænt kjöt,“ skrif­aði sjó­liðs­for­ing­inn.

Ferðamönnum hefur fjölgað

Aríel segir að allar veiðar til mann­eldis eigi að hafa sjálf­bærni og mann­úð­lega aflífun að leið­ar­ljósi og að sjálf­bærni hafi náðst á lang­reyða­veiðum und­an­farin ár. Aðeins séu veiddar 161 lang­reyður af 40 þús­und sem eru við strendur Íslands.

„Hvað hið síð­ar­nefnda varðar þá hefur kapp verið lagt á að gera betur í aflíf­un­ar­ferl­inu og stytta það eins og mögu­legt er svo það sé eins mann­úð­legt og hægt er. Þar má vissu­lega gera betur, rétt eins og við allar veiðar á villtum dýrum. Að lokum kemur almenn­ings­á­litið úti í heimi. Því hefur verið haldið fram að hval­veiðar Íslend­inga skaði ferða­iðn­að­inn en þá er nær­tæk­ast að líta til þess að frá því þær voru leyfðar á ný árið 2008 hefur fjöldi ferða­manna hér um bil fjór­fald­ast og þykir sumum nóg um. Fókusinn í dýra­vel­ferð ætti að mínu mati allur að fara í að berj­ast fyrir bættum aðbún­aði hús­dýra og auk­inni áherslu á free-range búskap.“

Aríel endur svo pistil­inn á sam­an­burði á hval­kjöti og ýmsum öðrum hlutum.

„Samhengi hlut­anna­Tafla til að setja þetta í sam­hengi:1 ferð til Tene = 1400 kg CO21 kg nauta­kjöt = 99,8 kg CO21kg eld­is­rækja = 27 kg CO21kg svína­kjöt = 12 kg CO21kg hrís­grjón = 4,5 kg CO21 kg hval­kjöt = 1,9 kg CO2“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina