Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Kjartan gerir upp reiðhjól og gefur flóttafólki frá Úkraínu: „Ég fann til með þeim“

Kjartan gerir upp reiðhjól og gefur flóttafólki frá Úkraínu: „Ég fann til með þeim“
Kjartan Pálsson við hjól sem hann hefur gert upp. Mynd: Aðsend

Kjartan Pálsson er 78 ára fyrr­ver­andi prent­ari sem býr í Danmörku. Þegar stríðið í Úkraínu byrj­aði ákvað hann að gera upp gömul reið­hjól og gefa flótta­fólki frá Úkraínu sem flúið hafa til Dan­merkur.

Margt hefur á daga Kjartans Páls­sonar drifið í gegnum árin en segir frá því helsta í við­tali við Mannlíf. Kjartan býr nú í Danmörku en aðdrag­and­inn að því að hann fór þangað er langur.

„Aðdrag­andi af því að ég fór til Dan­merkur aðeins 28 ára gam­all til þess að sér­mennta mig í að prenta lím­miða,“ segir Kjartan og heldur áfram: „Ég var búinn að prófa margt á Íslandi. Ég vann í fisk­vinnslu í Hamp­iðj­unni. Vann líka við að setja upp sjón­varps­loft­net þegar fyrstu sjón­vörpin komu en það voru Normandy tæki. Þá reisti ég einnig lóran loft­netið að Gufu­skálum. Þar að auki aðstoð­aði ég við að stofna Björg­un­ar­sveit­ina Fiska­klettur í Hafn­ar­firði með frændum mínum og góðum vinum. Svo fór ég að vinna hjá frænda mínum, Páli Bjarna­syni sem rak prent­smiðju Jóns Helga­sonar að Berg­staða­stræti með Jóni og Kobba. Með námi var ég hark­ari hjá Stein­dóri meðal ann­ars.“

Ástin kviknar

Þegar Kjartan var um tví­tugt kynnt­ist hann Björgu Karls­dóttur.

„Ég kynn­ist Björgu Karls­dóttir þegar ég va um 20 ára gam­all. Faðir hennar „Gamli“ eins og hann var alltaf kall­aður rak lím­miða­prent­smiðju í kjall­ar­anum í Melgerði þar sem þau bjuggu.“

Þau Björg eign­ast svo dæt­urnar Guðnýju og Báru og Kjartan lærði prentið og fór að vinna í Grágás í Keflavík.

„Svo kemur að því að Gamla vantar mann í að prenta. Svo ég söðla um og fer að vinna hjá honum. Fæ ég gríð­ar­legan áhuga á að læra allt um lím­miða,“ segir Kjartan og heldur áfram. „Gamli hafði verið á prent­véla­sýn­ingu og keypti hann svaka stóra prent­vél til að prenta lím­miða, en mér fannst hún svaka flott og stór. Kom hún í stórum tré­kassa. Þetta var sama ár og Fischer og Spassky háðu ein­vígi í Laug­ar­dals­höll. Sá sem seldi Gamla vél­ina, var danskur umbos­að­ili fyrir þessar japönsku vélar. Fóru þeir saman og sáu ein­vígið. Urðum við strax miklir mátar og vorum það alla tíð, fram á síð­asta dag. Er hann nú lát­inn. Hann hét Hannibal Örbæ. Hann setti síðan okkur inn í hvernig vélin virk­aði og var það svaka spenn­andi. Eftir nokkurn tíma finnst mér vanta að vita meira. Er þá ákveðið að fá mann frá Danmörku sem rak prent­smiðju með sams­konar vélar.“

Sá danski kenndi þeim svo á vél­ina. „Hann kom, Steen að nafni, og fór í að kenna okkur á vél­ina. Það var mikil reynsla að fá hann. Ég spurð hvort ég mætti koma til hans og læra meira hjá honum í Danmörku. Hann sagði „Ok hvenær sem er“. Systir mín Jóhanna bjó þá í Danmörku, ekki langt frá Prent­smiðj­unni.“

Prentbakterían kviknar

Segist Kjartan hafa fengið algjöra bakt­eríu fyrir þessu nýja fagi.

„Ég var alveg bit­inn af þessu og ákveð­inn í að læra allt um lím­miða, enda var þetta ekki talið fag hér á Íslandi. Ákvað í skyndi að fara til Jóhönnu (systur Kjartans) í sum­ar­frí, tók hún vel í að hýsa okkur í tvær vikur. Þegar við komum út, ég Björg og stelp­urnar, var sirka 30 stiga hiti. Ég fer strax dag­inn eftir að við komum að heim­sækja Steen í prent­smiðj­una sem heitir Etiketto. Kemur þá í ljós að þeir eru þrír eig­endur Steen, Martin og Stig. Er ég svo þar alla daga fyrripart og prenta og læri og læri. Hitinn var mik­ill en það var í lagi því þá mátti drekka bjór í vinn­unni og voru þeir ekki að spara það, nýtt fyrir þyrstan Íslend­ing­inn, ekki kvart­aði ég.“

Þegar fjöl­skyldan kom aftur heim sagði Kjartan konu sinni að hann vildi fara út í ár til að læra meira.

„Þegar við erum komin heim til Íslands, eftir sirka tvær vikur segi ég við Björgu að ég vilji fara út í eitt ár og læra meira ef þeir taka mig í vinnu. Hún sam­þykkir það og ég hringi í Steen sem segir mér að koma og að ég fái vinnu. Þá er það ákveðið og farið í að leigja út íbúð­ina og ákveðið að ég fari fyrst og finni stað að búa á. Í Kaup­manna­höfn redd­aði Jóhanna okkur íbúð í sömu blokk og hún bjó í.“

Fann ráð til að læra dönsku fljótt

Kjartan seg­ist ekki hafa talað stakt orð í dönsku en að hann hafi fundið ráð við því.

„Allt gengur eins og í lyga­sögu og ég í skýj­unum. Fer ég svo að vinna dag­inn eftir að ég kem. Ekki kunni ég að tal eitt ein­asta orð í dönsku, enda skróp­aði ég í tímum því ég ætl­aði ekki að læra eitt­hvað hrogna­mál með kart­öflu í háls­inum. Það kom nú ekki að sök því ég fann gott ráð við því. Á leið­inni úr vinn­unni er pöbb­inn Venn­ernes hjem, sem ég sótti á hverjum degi og fékk mér Elefant og einn vindil, gaf umgang annað slagið og spjall­aði við þá sem eru kall­aðir stam gestir sem ég var nú reyndar orðin líka. Þar lærði ég fljótt að bjarga mér á dönsk­unni, orð­inn verk­stjóri eftir sirka þrjá mán­uði.“

Árin urðu svo fleiri en þetta eina ár sem planað var.

„Það urðu fleiri en eitt ár. Ég var í miklum sam­skiptum við Gamla með nýj­ungar og hvernig ætti að leysa mörg vanda­mál. Reddaði not­uðum og nýjum vélum handa þeim enda vissi ég  hvað hent­aði á Íslandi. Dafnaði fyr­ir­tækið vel hér í Danmörku og var flutt í glæsi­legt nýtt hús­næði sem þeir byggðu allt á einu plani og gert fyrir þessa starf­semi. Var ég hjá þeim í um það bil fimm ár.“

Segir Kjartan að hann hafi ráðið fjóra Íslend­inga til vinnu hjá fyr­ir­tæk­inu.

„Það var gott og gaman að vinna með strák­unum. Gaman að geta þess að ég réði fjóra Íslend­inga í vinnu, þá Gutta, Skúla, Gísla og Eyfa. Gutti eign­að­ist son með Hönnu og er ég guð­faðir hans en hann var skírður Kjartan. Ég var líka hepp­inn að ég fékk frí þegar ég var beð­inn um að vinna á sýn­ingum, bæði fyrir Örbæk og stundum líka fyrir Nilpeter sem er danskt fyr­ir­tæki sem fram­leiðir vélar fyrir lím­miða­bransan en það eru topp­vélar. Sýn­ing­arnar voru ýmist í Dus­seldorf, Mílano, Lujong Paris, Börm­ing­ham England. Fór líka og stillti upp og kenndi á vél­arnar fyrir þá báða. Var ég orð­inn vin­sæll og tal­inn fær í flest­ann sjó endar mitt brenn­andi áhuga­mál og hobbý, það komst ekk­ert annað að sem kom sér vel síðar.“

Svikinn af meðeiganda

Seinna hóf Kjartan sam­vinnu við feðga og til að byrja með gekk vel en svo fór að reyna á vin­skap­inn.

„Síðan fór ég í sam­vinnu við feðga sem höfðu keypt jap­anska vél af Örbæk en réði ekki við að prenta á henni. Var ég feng­inn til að kenna þeim á hana. Vann ég á kvöldin og kenndi þeim og voru þeir svo ánægðir að þeir buðu mér að ger­ast með­eig­andi í fyr­ir­tæk­inu. Pabbinn, KB Nilsen, Óli, og ég, áttum jafnan hlut hver. Og varð það úr. Fékk fyr­ir­tækið nafnið Interket. Gekk allt mjög vel og var unnið mikið. Síðan keyptum við Bonni­kett sem einnig var miða­fyr­ir­tæki. Við keyptum líka Krán­peper sem fram­leiðir arkið fyrir frí­merkja prentun. Fluttum í stórt hús­næði í Ballerup. Allt virt­ist ganga súper vel. En Adam var ekki lengi í para­dís. Óli fór að vera falskur og óheiða­legur en hann sá um fjár­málin en ég um fram­leiðsl­una og pabb­inn var sölu­maður. Þegar ég fór að tala um að hann tæki meira í laun og til eigin nota en við pabb­inn og að við fengjum ekk­ert fram yfir fasta­kaupið, þá sagð­ist hann vera með meiri ábyrgð og væri fram­kvæmda­stjóri. Honum var ekki haggað, vildi ekki að allt ætti að vera jafnt eins og talað var um. Þakkaði ég fyrir og lét borga mér út minn hlut og fór. Óli fór á haus­inn með Interket. Kom seinna og sá eftir að hafa svikið okkur.“

Eftir að hann hætti hjá Interket hóf hann að starfa fyrir Örbæk.

„Eftir að vera hættur hjá Interket. Fór ég að vinna hjá Örbæk sem sölu­maður og prufu prent­ari, og kenna á vél­arnar þegar þær voru seldar. Fór ég með honum til Japans og heim­sótti verk­smiðj­urnar. Það var súper góð reynslu­ferð. Vann ég hjá honun sirka eitt ár. Komu þá að málum við mig og Örbæk fyrr­ver­andi atvinnu­rek­endur Etiketto, Stin og Martin og vildu fá mig til að fara til Englands, nánar til tekið til Oprinlig Washington fyrir utan Njúkasel. Verk­efnið fólst í því að setja í gang og koma á lagg­irnar prent­smiðju til að prenta lím­miða. Nafnið á prent­smiðj­unni var Labeling Dynamic. Var það síðan ákveðið og áætlað sirka fjög­urra ára verk­efni. Fluttum við þangað með yngstu dóttur okkar, Huldu Kristínu sem hafði fæðst í Danmörku og var átta ára þá. Hinar, Bára og Guðný voru komnar með danska kærasta og farnar að búa með þeim í Danmörku.“

Sló í gegn í Englandi

Verk­efnið í Englandi gekk framar vonum að sögn Kjartans.

„Var ég búinn að koma prent­smiðj­unni í fullan gang á einu ári. Fengum við­ur­kenn­ingu við opnun fyrir flottan frá­gang, bæði að utan og að innan. Settum upp vélar, réðum mann­skap og kenndum á allar vélar og var ég kom­inn með góðan mann sem gat tekið við af mér. Allt voru þetta enskir starfs­menn, gott lið. Taldi ég að mínu verk­efni væri lokið og voru þeir hæstá­nægðir og féllust á að svo væri.“

Var þá ákveðið að snúa aftur heim til Íslands en þar gekk á ýmsu.

„Vorum við þá ákveð­inn í að fara til Íslands. Gamli hafði haft áhuga á að fá mig í vinnu sem verk­stjóra enda hafði hann fylgst með því hvað ég var að gera erlendis. Hann hafði keypt stóra sex lita vél af Örbæk, sem við vorum með á sýn­ingu og mælti ég með henni enda stór­kost­leg nýj­ung fyrir íslenskan markað. Voru prent­aðar rúll­urnar sem not­aðar voru fyrir Lottóið þegar það byrj­aði á Íslandi. Var ég með í því og var það mjög spenn­andi að leysa það með þeim aðilum. Ég tók vel á fram­leiðsl­unni enda með þekk­ingu sem vant­aði og jók afköst og hag­ræddi. Þeir Gamli og Addi, sem var orðin fram­kvæmda­stjóri, keyptu hús­næði því það var farið að vera þröngt. Addi og Ari bróðir hans voru með­eig­endur, og fannst mér og Björgu, sem vann líka við frá­gang á vél sem ég fékk þá til að kaupa, að við fengjum hlut í fyr­ir­tæk­inu en það fékk ekki góðan hljóm­grunn. Fannst mér það leið­in­legt. En ég var ekki af baki dottin. Hafði unnið á kvöldin eftir vinnu í Vöru­merk­ingu, á renni­verk­stæði vinar míns, Árna Brynj­ólfs­sonar og syni hans Sigþóra, við að hækka upp jeppa, mest Toyota, um það bil 100 stykki. Var þetta skatt­lausa árið, og náði ég í dágóðan pen­ing. Tók ég þá ákvörðun um að starta minni eigin prent­smiðju sem fékk nafnið Miða­prentun og láta lönd og leið hvað öðrum fannst. Ég vildi ekki nota mína reynslu í aðra sem kunnu ekki að meta hana. Fór til Englands og keypti not­aða góða Nilpeter fjög­urra lita vél sem ég þekki og hafði unnið mikið á, en hún pass­aði vel fyrir íslensk upp­lög. Leigði ég hús­næði í Einholti hjá Grími í Pólum, súper karakter.“

Svikinn í annað skiptið

Og áfram hélt Kjartan frum­kvöðla­starfi sínu á land­inu.

„Gekk vel og stækk­aði mjög hratt. Kom Þorgeir í Odda að málum við mig, og varð úr að Oddi kom inn sem hlut­hafi. Frábær sam­vinna með Þorgeiri öll árin. Stóð allt eins og stafur á bók. Við opn­uðum fyr­ir­tæki á Akureyri undir heit­inu Límmiðar Norð­ur­lands, í sam­starfi við Leif Eiriks­son. Leifur kaupir síðan það og rekur sjálfur. Síðan þegar allt óð í pen­ingum og bank­arnir lán­uðu og lán­uðu, kom Addi í vöru­merk­ingu til okkar Þorgeirs og vildu kaupa Miða­prentun. Settum við upp verð og var það sam­þykkt.“

En Kjartan seg­ist hafa verið svik­inn af Adda.

„Ég var svo vit­laus að treysta Adda átti að vita betur. Ég lán­aði honum 20 millur í eitt ár og taldi að það mundi vera í lagi. Fékk eftir mikla vinnu við að rukka hannm 13 millur en aldrei meira. Tapaði rest, plús vexti. En á sama tíma voru byggð tvö ein­býl­is­hús, eitt handa honum með þrjá tvö­falda bíl­skúra fyrir alla amer­ísku kagg­ana sem hann hafði jú greini­lega efni á. Og hitt húsið var handa syni hans. En ekki hægt að gera upp skuldir. Fer ekki ítar­lega í þetta hér.“

Áföllin hrönnuðust upp

Kjartan skildi á þessum tíma­punkti við Björgu og gift­ist Lilju nokk­urri.

„Á þessum tíma­punkti var ég búinn að skilja við Björgu. Og giftur aftur Lilju. Var farið á flug og skoð­aður heim­ur­inn en við keyptum hús­bíl og ferð­uð­umst mikið. Síðan skildu við. Startaði ég aftur með Þorgeiri Miða­prent, sem var stytt­ing á miða­prentun. Var það ekki vel séð, en ég var búinn að fá skammir hjá gömlu við­skipta­vinum, að þjón­ustan væri ekki góð hjá Vörum. Það ýtti undir að byrja aftur. Góðir aðilar í Danmörku seldu okkur Nilpeter vél, sex lita. Gekk allt vel og voru gömlu kúnn­arnir fljótur til baka. Vorum við með topp mann­skap se, hafði unnið hjá okkur áður eða hluti af þeim. Þorgeir hætti og Hafberg kom inn í stað­inn, en hann er topp maður í alla staði og frá­bært að vinna með. Allt gekk vel og dafn­aði vel.“ 

Kjartan kynnt­ist svo nýrri konu og hugð­ist flytja með henni til Dan­merkur. En örlögin höfðu annað í huga.

„Ég var búinn að kynn­ast frá­bærri konu og var planið að flytja til Dan­merkur og var ég búinn að kaupa sum­ar­bú­stað, 80 kíló­metra frá Kaup­manna­höfn. En ekki fór það vel þar sem elskan veikt­ist og lést áður en við náðum að flytja. Missti ég Stubb, hund­inn minn og líka alda­vin, hann Ásgeir. Tek ákvörðun og flyt alfarið til Dan­merkur. Börnin mín og barna­börn bjuggu öll þar. Ég flutti í sum­ar­bú­stað­inn og var þar nokkurn tíma. Seldi bústað­inn svo og flutti í stórt hjól­hýsi og fékk að vera á lóð hjá góðum Íslend­ingi, honum Binna, sem ég hafði kynnst og erum við alltaf að bralla eitt­hvað saman.“

Þriðju svikin

Og svo brast Covid á.

„Ég fór að vinna hjá Hótel Lolland sem er niðri við Maribo og rekið af Íslend­ingi. Var ég þar í um fjóra mán­uði við að fram­reiða morg­un­mat, taka á móti fólki og allt sem til féll. Unnið var í sirka 10 til 14 tíma alla daga en þetta var á þeim tíma sem covid brestur á. Fara Danir þá að ferð­ast inn­an­lands. Við tókum á móti um það bil 3000 gestum á þessu tíma­bili. Her­bergin voru átta með baði og sex án en tvær íbúðir voru líka í boði. Þetta var töff en skemmti­legt, mest Danir sem komu en líka blandað erlent lið. Ekki fannst eig­and­anum ástæða til að greiða mér eftir gott og dyggi­legt starf. En ég elt­ist við það í rúmt eitt ár og fékk þó ekki allt. Skrítið, kannski er þetta eitt­hvað í íslenskum genum.“

Gefur flóttafólki frá Úkraínu uppgerð hjól

Eftir þetta flutti hinn aldr­aði prent­ari í nýja íbúð og gerði sér lítið verk­stæði.

Verk­stæðið. Ljómynd: Aðsend

„Ég flutti síðan í nýja íbúð sem ég var búinn að bíða lengi eftir en hún var á jarð­hæð með smá garði og úti­geymslu. Þar gerði ég lítið verk­stæði. Ég tók að mér verk hingað og þangað, eins og að leggja parket, laga þak, fella tré, og með Binna í bíla­brasi. Síðan byrjar stríðið í Úkraínu, og fólk byrj­aði að flýja hingað í stórum stíl, alls­laust og skelf­ingu lostið, menn­irnir í stríði. Ég fann til með þeim og hugs­aði um það hvað ég gæti gert til að hjálpa þessu fólki. Ekki er mikið úr að moða hjá mér í pen­ingum. Eins og gam­all björg­un­ar­sveit­ar­maður, fer ég í gang með að finna gömul hjól sem fólk er hætt að nota. Hér er mikið hjóla­land og í dag er mikið um að fólk sé komið á raf­magns­hjól. Gamla hjólið skilið eftir hjá þeim sem selja til dæmis. Frí bæk er ein keðjan. Þangað fer ég og fæ að taka þau hjól, sum léleg og þá tek ég það sem er not­hæft og hendi rest. Ég fæ líka hjól frá umsjón­ar­mönnum í blokkum sem kall­aðir eru visivertar en þeir hringja þegar þeir hafa tekið til hjól sem eru búin að vera lengi ónotuð, fólk flutt og skilur hjólin eftir.“

Móttakan þar sem Úkra­ínu­menn geta sótt hjólin.

„Er ég nú búinn að gefa um 175 hjól og er enn að. Enn­fremur koma margir með til mín ýmis­legt, eins og til dæmis ryksugur sem virka ekki lengur en ég hreinsa og skipti um poka, laga barka og þá er kom­inn ryk­suga sem virkar. Fólk kemur líka með föt, leir­tau og margt annað, ótrú­legt hvað fólk er hjálp­samt. Fólkið er afar þakk­látt. Ég get haft þrjú hjól aftan á bílnum hverju sinni, en þetta gengur hægt en gengur vel. Ég bý í Taastrup og stað­ur­inn sem fólkið hefur til að koma og velja sér það sem er komið er í Glostrup, er ekki svo langt frá. Það koma margir með eitt og annað en ég er sá eini sem kem með hjól, útbú­inn með stand­ara, glit­ljósum, bjöllu og skoð­un­ar­klár hjól.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina