Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Bílþjófur með sprautunál að vopni – Stálheiðarlegir menn mættu með seðlaveski

Bílþjófur með sprautunál að vopni – Stálheiðarlegir menn mættu með seðlaveski
Lög­reglan að störfum. Mynd: Lára Garðarsdóttir

Lög­reglu­menn fundu stolna bif­reið í aust­ur­borg­inni í nótt. Bif­reiðin var mann­laus og læst. Í dag­bók lög­reglu segir að  með frum­kvæði og rann­sókn­ar­vinnu lög­reglu­manna hafi lykl­arnir og ætlað þýfi úr bif­reið­inni fund­ist. Þessu var öllu skilað til eig­anda. Stuttu síðar voru þjófarnir, karl og kona, hand­teknir í úthverfi Reykja­víkur. Þau höfðu þá farið um með dólf­g­slátum og verið til­kynnt víða um borg­ina, meðal ann­ars fyrir ofbeld­istil­burði og hót­anir. Þegar lög­reglu­menn hugð­ust hand­taka kon­una brást hún illa við og hót­aði að stinga þá með sprautu­nál. Hún komst ekki upp með það og lög­reglu­menn náðu að beita hana lög­reglu­tökum og færa í hand­járn. Við örygg­is­leit á kon­unni fund­ust síðan bæði sprauta og hnífur. Þau voru vistuð í fanga­geymslu lög­reglu, enda bæði í ann­ar­legu ástandi. Með nýjum degi verða þau yfir­heyrð.

Óskað var lög­reglu­að­stoðar vegna óvel­kom­ins aðila á hót­eli í mið­borg­inni. Sá hafði brot­ist inn á her­bergi hót­el­gests og stolið þaðan pen­inga­veski. Inn­brots­þjóf­ur­inn var hand­tek­inn á staðnum. Við örygg­is­leit á honum fannst vasa­hnífur. Hót­el­þjóf­ur­inn var vistaður í fanga­geymslu fyrir rann­sókn máls­ins, en hann var í ann­ar­legu ástandi.

Rétt­inda­laus öku­maður var stað­inn að verki við að aka bif­reið. Þetta er í annað sinn sem við­kom­andi ekur rétt­inda­laus. Sektin við því er 200 þús­und krónur.

Óskað var aðstoðar vegna karls og konu sem voru til vand­ræða á hót­eli í mið­borg­inni. Fjórir lög­reglu­menn fóru á stað­inn og var dólg­unum gefin fyr­ir­mæli um að yfir­gefa stað­inn en þau hlýddu ekki. Karlinn mund­aði sig við að ráð­ast á lög­reglu­menn­ina. Honum var þá ógnað með úða­vopni, en tví­efldist aðeins við það. Úða­vopn­inu var beitt gegn honum og dró þá hratt úr bar­áttu­þreki manns­ins. Hann var hand­tek­inn og færður á lög­reglu­stöð, þar sem honum var veitt fyrsta hjálp við áhrifum pipar­úð­ans. Síðan var hann læstur inni í fanga­geymslu.

Tveir stál­heið­ar­leg­iir menn, með góð lífs­gildi, mættu á lög­reglu­stöð og afhentu þar veski sem hafði fund­ust á víða­vangi. Veskið inni­hélt pen­inga, kort og skil­ríki. Eig­and­inn fannst og var hann mjög þakk­látur mönn­unum fyrir að hafa fundið veskið hans.

Ökumaður var hand­tek­inn grun­aður um akstur áhrifum í aust­ur­borg­inni Sá var bæði ölv­aður og undir áhrifum kóka­íns og marí­húana. Hann hefur ítrekað gerst sekur um að aka í slíku ástandi. Hann var lát­inn laus eftir að dregið hafði verið úr honum blóð.

Annar öku­maður var hand­tek­inn, grun­aður um akstur undir áhrifum, Akst­urs­lag bif­reiðar hans var mjög rásandi. Sá var undir áhrifum amfetamíns og róandi lyfja, sem er slæm blanda. Þá reynd­ist öku­mað­ur­inn vera rétt­inda­laus og hefur ítrekað gerst sekur um að aka án rétt­inda. Hann var lát­inn laus að lok­inni blóð­sýna­töku. Þegar lög­reglu­menn lögðu bif­reið­inni í stæði upp­götv­uðu þeir að bif­reiðin var eig­in­lega alveg bremslu­laus og því voru skrán­ing­ar­merkin fjar­lægð af bif­reið­inni og hún þannig tekin úr umferð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina