Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Einar Ágúst opnar sig: „Þurfti að skoða hvort ég væri sáttur áður en ég myndi kveðja“

Einar Ágúst opnar sig: „Þurfti að skoða hvort ég væri sáttur áður en ég myndi kveðja“

Einar Ágúst Víðisson seg­ist þurfa að hjálpa öðrum, lifa í trú, vera heið­ar­legur og lifa í naum­hyggju til þess að vera í góðu standi. Einar Ágúst sem er nýjasti gest­ur­inn í podcasti Sölva Tryggva­sonar, seg­ist hafa upp­lifað van­líðan frá barn­æsku sem hann hafi á löngum köflum flúið með mik­illi neyslu:

„Ég varð fimm­tugur í fyrra og var greindur með alvar­leg veik­indi í fyrra­vetur. Fimm­þættan hjarta­vanda. Þá þurfti ég að fara að skoða hvort ég væri sáttur við þann stað sem ég væri á áður en ég myndi kveðja. Af því að ég er mjög trú­aður maður. Ég þurfti að fara yfir sam­bönd sem ég hef klúðrað, hvernig ég hef komið fram við fólk og hvernig veg­ferð mín hefur verið almennt. Ég finn það alltaf betur og betur að ég verð að lifa mjög heið­ar­legum naum­hyggju­lífs­stíl, af því að ann­ars verð ég bara upp­fullur af sjálfum mér og allt fer í vit­leysu. Ég verð alltaf að leita í þetta æðra, aftur og aftur til þess að halda mér á réttum stað. Ég verð að stunda and­legan lífs­stíl og vera heið­ar­legur. Ef ég er ekki heið­ar­legur þá byrja ég bara að drekka og dópa aftur af því að þá fer ég inn í gömlu van­líð­an­ina. Og mitt þung­lyndi er eins og svartasta Mordor. Ég reyndi í mörg ár að funkera með því að deyfa mig af því að það var eina leiðin til að losna undan þessarri van­líðan. En það virkar bara ekki og endar alltaf hræði­lega.“

Einar seg­ist muna eftir mik­illi van­líðan hjá sér allt frá því að hann var lítið barn og telur að hann hafi á löngum köflum verið að reyna að flýja þá van­líðan með neyslu og rugli.

„Alveg frá því að ég man eftir mér hef ég verið að glíma við van­líðan. Ég var besti skemmti­kraft­ur­inn, en á sama tíma að finna fyrir miklum kvíða og þung­lyndi. Í raun er mín fyrsta minn­ing kvíða- og áhyggju­til­finn­ing og líf mitt hefur mjög mikið farið í að reyna að koma mér frá þessum til­finn­ingum. Bæði með heil­brigðum leiðum eins og félags­skap, fólki, íhugun og fleiru. En líka með slæmum leiðum og ég held að ég hafi byrjað að drekka 13 ára gam­all af því að ég var að reyna að koma mér burt frá vondum til­finn­ingum,“ segir Einar, sem segir að hann hafi á tíma­bili verið kom­inn á veru­lega dimman stað sem hafi nán­ast endað með sig í gröf­inni:

„Ég var algjör­lega búinn að segja mig úr lögum og reglum sam­fé­lags­ins. Ég var far­inn að taka 10 grömm af kóka­íni á dag þegar þetta var sem verst og svo róandi lyf á móti. Ég var hand­tek­inn fyrir inn­flutn­ing og var kom­inn á kaf í und­ir­heim­ana. Ég hef beitt aðra ofbeldi og verið beittur miklu ofbeldi sjálfur. Stað­irnir sem þú ferð á eru algjör skelf­ing, van­líðan, myrkur og kvöl. Það fer rosa­leg orka í alla þessa neyslu og þetta er algjör­lega frið­laust ástand og í raun hreinn og klár þræl­dómur. Það tekur langan tíma að taka til eftir alla þessa óreiðu og það er stundum erfitt að sjá sig sem góða mann­eskju eftir alla hlut­ina sem hafa gengið á og allt sem maður hefur gert í gegnum tíð­ina. Ég hef farið svo langt og farið ofan í svo mikið myrkur. Ég hef gert og séð hluti sem flestir þekkja bara úr bíó­myndum. Ég hef verið á dimm­ustu stöð­unum og þá á maður stundum erfitt með að telja sér trú um að maður sé góður gaur, en jú, ég vil trúa því að ég sé góður gaur.“

Einar stundar nú ráð­gjafa­nám, sem und­ir­býr hann undir að geta aðstoðað aðra, ekki síst fólk sem glímir við fíkni­vanda. Hann segir það gefa sér mik­inn til­gang:

„Þess vegna er ég í þessu ráð­gjafa­námi núna, af því að það er ekk­ert sem gefur mér meira en a hjálpa öðrum. Þegar maður getur aðstoðað aðra bein­línis út af þján­ing­unni sem maður hefur sjálfur upp­lifað þá ger­ist eitt­hvað stór­kost­legt. Mér líður betur með skammar­lega for­tíð mína þegar ég næ að hjálpa öðrum. Eina leiðin til að ég þekki sjálfan mig er að fórna tíma mínum og orku í að þjón­usta aðra og verða að gagni. Ef ég get hjálpað ein­hverjum sem er að gef­ast upp á líf­inu eða er fastur í tómi, þá er ég boð­inn og búinn að vera til staðar. Það er geggjað að heyra lögin sín í útvarp­inu og koma fram á sviði fyrir framan fólk, en það er ekk­ert sem að toppar það að sitja á móti öðrum ein­stak­lingi sem réttir manni sál sína og biður mann um að hjálpa sér. Það er besta dóp í heimi.“

Í við­tal­inu ræða Einar og Sölvi um stærstu sigr­ana, myrk­ustu tíma­bilin, tengslin við glæp­a­starf­semi, end­ur­komu Skíta­mórals og þakk­læti Einars fyrir að vera enn á lífi.

Hægt er að nálg­ast við­talið við Einar og öll við­töl og pod­köst Sölva Tryggva­sonar inni á sol­vi­tryggva.is

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina