Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Sprengju-Kata óttaðist um líf sitt í Hengill Ultra hlaupakeppninni:„Ég var orðin dofin og máttlaus“

Sprengju-Kata óttaðist um líf sitt í Hengill Ultra hlaupakeppninni:„Ég var orðin dofin og máttlaus“
Katrín með þátta­stjórn­endum

Nýjasti gestur Gunnars og Arnórs í Alkast­inu sem er í boði Þvotta­húss­ins er engin annar en meist­ar­inn Katrín Lilja Sig­urð­ar­dóttir. Katrín sem er betur þekkt undir nafn­inu Sprengju Kata starfar dags dag­lega sem aðjúnkt í efna­fræði við Háskóla Íslands. Auk þess er hún mjög virk í alls konar íþróttum eins og hlaupi, hjól­reiðum og sundi.

Sprengju-Kata

Katrín eign­að­ist sitt fyrsta barn aðeins sextán ára gömul sem þýddi að hún var í raun þremur árum á eftir í sinni mennta- og háskóla­göngu. Engu að síður hélt hún ótrauð áfram þrátt fyrir að á náms­ár­unum í HÍ hafi hún eign­ast tvö börn til við­bótar. Snemma á sínum háskóla­árum sneri hún sér að kennslu; fyrst sem stunda­kenn­ari og nú, tíu árum síðar er hún enn að. Nú sem kenn­ari í almennri-, líf­rænni- og ólíf­rænni efna­fræði.

Hún segir að tím­arnir hafa breyst mikið og nefnir í því sam­hengi þrjá þætti sem hún vill meina að hafi haft mikil nei­kvæð áhrif á þá nem­endur sem hún kennir. Sam­fé­lags­miðlar, með allri þeirri athygl­is­skerð­ingu sem þeim fylgir, stytt­ing mennta­skóla úr fjórum árum niður í þrjú og áhrif Covid, og á þvá við þá kyn­slóð nem­enda sem þurftu að stunda fjar­nám meðan að Covid-tak­mark­anir voru í gangi.

Katrín er mik­ill hjóla­garpur

Hún fór í við­tal­inu yfir tím­ann þegar hún var í for­svari fyrir sprengju­gengið í HÍ. Það var hópur nem­enda sem hélt alls konar sýn­ingar út um allt land með sprengifimar efna­blöndur og þaðan spratt nafnið sem hún er þekkt fyrir í dag, Sprengju Kata.

Gunnar fór aðeins inn á and­legri og yfir­nátt­úru­legri brautir þegar hann leit­að­ist eftir að vita hvort hún hefði eitt­hvað að segja um frum­efnið mc1.15 sem banda­rískum og rúss­neskum vís­inda­mönnum tókst í sam­ein­ingu að skapa á rann­sókn­ar­stofu árið 2003. Mikill leynd­ar­dómur hafði hvíld yfir þessu efni, því upp­ljóstr­ar­inn Bob Lazar, sem kom fram í við­tali árið 1989 við rann­sókn­ar­frétta­mann­inn George Knapp undir dul­nefn­inu „Dennis“, hélt því fram að hann hafði unnið sem véla­verk­fræð­ingur á svæði S4 (section 4) á svæði 51 (Area 51) sem þekkt er fyrir mikla leynd tengda UFO eða UAP eins og fyr­ir­bærið er þekkt sem í dag. Að sögn Bob starf­aði hann þar í um hálft ár við til­raunir og skoð­anir á bún­aði sem virt­ist vera aflgjafi flygilda sem hann vill meina að hafi fund­ist við forn­leifa­upp­gröft. Allt í allt segir hann að á þessum tíma hafi flaug­arnar verið níu sam­tals. Bob vildi meina að ójarð­neskt efni sem hann kall­aði Element 1.15 væri efnið sem gerði það að verkum að flygildin gætu ferð­ast eins og þau virt­ust gera. Hann vildi meina að þetta efni sem í dag er þekkt sem Moscovium fæli í sér eig­in­leika sem brjóta í bága við allar þær hug­myndir um hvað nútíma vís­indi telji að sé mögu­legt.

Hlaupa­gikkur

Kata sagði þetta vera í hennar huga algjört bull því ef grunnefni sem hægt sé að skapa í rann­sókn­ar­stofu og geti ekki hald­ist stöðugt nema í nokkrar sek­úndur beri enga þekkta eig­in­leika. Henni fannst sagan samt sem áður áhuga­verð og vildi ólm fá að vita meira um þetta mál og því ætl­aði Gunnar að senda henni link á heim­ild­ar­mynd­ina Bob Lazar: Area 51 and flying saucers þar sem Bob fer yfir þessa sögu sína sem hald­ist hefur óbreytt í 35 ár.

Íþrótta­fer­ill Kötu spannar mörg ár og jafn­mörg kíló. Hún sagð­ist hafa upp­lifað miklar þyngd­ar­breyt­ingar í tengslum við barn­eignir þar sem metið hennar hafi veirð 109 kg. Hún hefur alltaf notið þess að hreyfa sig þannig að jafn­vel þótt sá grunur hafi læðst að henni að hún myndi aldrei kom­ast í gott form aftur, runnu kílóin af henni. Í léttu gríni seg­ist Kata vera einn helsti stuðn­ings­maður hlaupa­keppna á Íslandi; hún skráir sig í næstum allt og sér svo bara til hvort hún mæti. Hún nefnir dæmi um hlaupa­feril sinn þegar hún keppti í Hengill Ultra 2021, þegar vont veður og mjög erf­iðar aðstæður urðu þess næstum vald­andi að hún varð úti. „Þá hljóp ég 50 kíló­metra en þegar ég kom í mark fannst mér sig­ur­inn ekki vera 50 kíló­metr­arnir, heldur að vera bara á lífi,“ sagði Katrín og hélt áfram: „Því það var svo kalt. Ég var blaut alveg í gegn og það var svo blautt og kalt og svo mikið rok. Ég var orðin dofin og mátt­laus, ekki bara í fingr­unum heldur upp fyrir axlir. Ég gat ekki opnað gel, ég gat ekki sett á mig húfu. Ég hefði ekki geta klætt mig í jakka. Ég gat í raun ekki gert nokkurn skap­aðan hlut. Og það sem var í raun versta upp­lifun mín í þessu hlaupi, það var þegar við vorum þarna efst uppi, þá mæti ég vin­konu minni sem var að hlaupa lengri vega­lengd en ég. Og hún leit bara mjög illa út og ég segi við hana „Þú verður að finna þér hjálp, þú lítur ekki vel út, þú verður að fá hjálp“. Og svo var ég hlaupin í burtu. Því þetta var spurn­ing um að bjarga eigin lífi. Og ég veit að hún var hrædd um eigið líf á þessum tíma­punkti. Að hún yrði bara úti. En ef ég hefði mis­stigið mig eða ef ég hefði dottið, ef ég hefði þurft að hætta að hlaupa á ein­hverjum tíma­punkti og þurft að ganga, þá hefði ég ekki lifað af. Ég hefði orðið úti. Þetta var rosa­leg keppni!“

Katrín heldur sér í formi með ýmsum hætti.

Uppgefin á bæði lík­ama og sál ákvað hún samt sem áður að halda áfram, þó með það í huga að leyfa sér að sleppa þeim keppnum þegar aðstæður biðu ekki upp á það að njóta aðstæðna án þess að ótt­ast um líf sitt. Á meðan vilj­inn til þess að hafa gaman, vera úti og gera betur er til staðar ætlar Kata að halda áfram.

Viðtalið við Sprengju Kötu má nálg­ast í heild sinni með því að smella á hlekk­inn hér fyrir neðan eða leita það uppi á öllum helstu hljóð­varpsveitum sam­tím­ans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina