Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Hopp hindraði aðgengi hreyfihamlaðra frá morgni til kvölds: „Við tökum þessu máli alvarlega“

Hopp hindraði aðgengi hreyfihamlaðra frá morgni til kvölds: „Við tökum þessu máli alvarlega“
Það var nán­ast ómögu­legt að leggja í stæðið fyrir hreyfi­haml­aða – Mynd: Erlendur Þorsteinnson

Fyr­ir­tækið Hopp hefur þurft að sæta mik­illi gagn­rýni und­an­farin ár vegna raf­skúta sem fyr­ir­tækið leigir út og telja gagn­rýnendur að það vanti lag­ara­mma í kringum starf­semi fyr­ir­tæks­ins en sem dæmi um gagn­rýni má nefna að raf­skútur fyr­ir­tæks­ins liggi á gang­stéttum um alla borg og skapi hættu fyrir veg­far­endur, sér­stak­lega þegar snjóar.

Árið 2022 hóf fyr­ir­tækið einnig leigu á bílum, svoköll­uðum deili­bílum, og var slíkur bíll til umræðu í Facebook-hópnum „Verst lagði bíl­inn“ en þar hafði myndum af Hopp bíl verið deilt og greini­legt að honum hafi verið lagt fyrir stæði sem er ætlað fyrir hreyfi­haml­aða. Samkvæmt Erlendi Þor­steins­syni, sem tók mynd­irnar af bílnum í lok apríl, stóð bíll­inn óhreyfður í margar klukku­stundir, frá morgni til kvölds, þrátt fyrir að hann hafi látið Hopp vita af mál­inu.

Mannlíf hafði sam­band við Hopp til að spyrj­ast fyrir um hvernig væri tekið á svona málum.

„Við erum að áætla við­bragðs­tíma um 30 mín. eftir að okkur er til­kynnt um að deili­bíl sé lagður ólög­lega fer eftir umferð, stað­setn­ingu og hvernig til­kynn­ingin berst til okkar helst innan við það. Við erum búin að fara yfir málin hér inn­an­húss og finnum ekki þessa beiðni, enda hefðum við brugð­ist strax við ef hún hefði borist til okkar starfs­fólks,“ sagði Sæunn Ósk Unn­steins­dóttir, fram­kvæmda­stjóri Hopp, í skrif­legu svari til Mannlífs.

Bíllinn var óhreyfður seinni­part­inn –

„Við erum að bíða eftir að þjón­ustu­verið okkar greini málin og hef ég því miður ekki fengið svar frá þeim. Mögulega var bara um mann­leg mis­tök að ræða hér hjá okkur og biðjum við inni­lega afsök­unar á því. Það stendur skýrt í skil­málum að leggja eigi deili­bíl í lög­leg stæði og not­endur muni fá sekt ef þau geri það ekki. Það gilda sömu reglur og lög um alla bíla, deili­bílar eru engin und­an­tekn­ing þótt not­endur Hopp deili­bíla þurfi ekki að hugsa um að greiða fyrir bíla­stæðin heldur gerum við það.“

En hvað um ein­stak­ling­inn sem skildi bíl­inn eftir þarna?

„Því miður þurfum við að hafa sektir og í gjald­skrá þeirra er sektin allt upp að 50.000 kr. að leggja ólög­lega eða í tíma­bundin stæði (stæði með hámarks tíma í stæði). Þar sem við erum með starfs­fólk á vakt allan sól­ar­hring­inn alla daga árs­ins eru það vinnu­reglur að við bregð­umst eins hratt við og mögu­legt er – við höfum þá frekar sam­band við not­endur heldur að láta þau greiða fyrir að draga þurfi deili­bíl­inn í burtu.

Við tökum þessu máli alvar­lega enda eru okkur umhugað um gott aðgengi fyrir okkur öll. Að leggja deili­bíl í stæði fyrir fatlað fólk eða hindra aðgengi að stæð­inu er ekki ásætt­an­legt á neinn hátt. Í raun ætti not­and­inn á deili­bílnum að þakka fyrir því hann slapp við drátt­ar­kostn­að­inn.“

Telur deilibíla mikilvæga

„Deili­bílar eru mik­il­vægur val­kostur í okkar sam­göngu­málum,“ sagði Sæunn um fram­tíð deili­bíla á Ísland „Notendur þeirra eru að nota deili­bíla í stað­inn fyrir að eiga bíl, nota deili­bíl sem bíl númer tvö eða hrein­lega nýta sér þá til að breyta sínum ferða­venjum. Sem dæmi skilja einka­bíl­inn eftir heima hoppa í vinn­una á raf­skútu eða með strætó og nota svo deili­bíl ef þau þurfa að erind­ast á vinnu­tíma. Við erum bæði með litla bíla og sendi­bíla í app­inu okkar. Einnig eru fyr­ir­tæki mikið að nota deili­bíla fyrir vinnu­tengd erindi í stað­inn fyrir að eiga og reka bíla. Deili­bílar eru ekki bara sam­göngu­mál heldur eru okkar bílar allir raf­bílar sem er stórt umhverfis og orku mál ásamt því að færri bílar eru einnig mik­il­vægt skipu­lags­mál.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina