Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Árvakur sektað fyrir ítrekuð brot á fjölmiðlalögum – Dulbjuggu fjölda auglýsinga sem fréttir

Árvakur sektað fyrir ítrekuð brot á fjölmiðlalögum – Dulbjuggu fjölda auglýsinga sem fréttir
Morg­un­blaðið Mynd: RÚV

Árvakur, fjöl­miðla­veita mbl.is hefur verið sektað um 1,5 milljón króna af Fjöl­miðla­nefnd vegna ítrek­aðra brota á lögum sem banna duldar aug­lýs­ingar.

Samkvæmt frétt Vísis hefur Fjöl­miðla­nefnd sektað Árvakur fyrir að skrifa fréttir með dul­búnum aug­lýs­ingar, trekk í trekk en meðal fyr­ir­tækja sem fengu slíka umfjöllun eru Nói Siríus, Hagkaup, MS og Te og kaffi.

Flestar frétt­irnar sem Fjöl­miðla­nefnd skoð­aði höfðu sama brag á sér, það er að segja að þar var fjallað um vörur fyr­ir­tækj­anna á jákvæðan hátt en án þess að fréttin væri merkt sem aug­lýs­ing eða sam­starf. Samkvæmt lögum um fjöl­miðla eru slíkar duldar aug­lýs­ingar bann­aðar.

Samkvæmt Vísi birt­ust frétt­irnar á Smartlands- og mat­ar­vef mbl.is. Fjöl­miðla­nefnd nefnir gríð­ar­lega margar aug­lýs­ingar í máli sínu, eða 48 tals­ins, sem dul­búnar voru sem fréttir. Til dæmis má nefna nýjar vörur frá Nóa Siríus en þar var fyr­ir­sögnin „Nýja nam­mið flýgur úr hill­unum“ og „Splunku­nýtt súkkulaði rifið úr hill­unum“. Þá fékk Hagkaup dul­búna aug­lýs­ingu þar sem umfjöll­un­ar­efnið er „besta gráða­ostasósan á mark­aðnum í dag“. MS fékk sína dul­búnu aug­lýs­ingu: „Ný bragð­teg­und af Hleðslu komin á markað“ sem og „KEA skyr eins og þú hefur aldrei séð það áður“.

Í andsvörum sínum vís­aði Árvakur til þess að fjöl­mið­ill hefði tján­ing­ar­frelsi og frelsi til að meta það sem teld­ist frétt­næmt. Auk þess hefði veitan ekki fengið greitt frá fyr­ir­tækj­unum sem væri skil­yrði svo að umfjöllun teld­ist vera aug­lýs­ing en ekki frétt.

Þessum rökum hafn­aði Fjöl­miðla­nefnd og vís­aði til þess að greiðslur eða annað end­ur­gjald sé ekki nauð­syn­leg for­senda í þessu sam­bandi, enda geti efni fjöl­miðla verið þess­arar gerðar án þess að greitt sé fyrir. Auk þess myndi slík skil­yrði vinna gegn bann­inu enda erfitt að sanna greiðslur fyrir umfjöllun.

Fjöl­miðla­nefnd segir í úrskurði sínum að fjallað hafi verið „með nákvæmum hætti“ um ákveðnar vörur frá fyr­ir­tækj­unum, að því er fram kemur í frétt Vísis.

„Yfir­leitt var um að ræða nýjar vörur á mark­aði. Komu fram jákvæðir eig­in­leikar var­anna, t.d. gott bragð og hag­kvæmar umbúðir, og jafn­vel hversu umhverf­is­vænar þær væru. Í sumum til­vikum kom fram á hvaða sölu­stöðum mætti fá við­kom­andi vörur, hvað þær kost­uðu og hlekkur á sölu­síðu,“ segir í nið­ur­stöðu Fjöl­miðla­nefndar.

Beinir nefndin því til Árvakurs að slíka umfjöllun þurfi að merkja þær en hefð hafi skap­ast fyrir því að nota orð eins og „kynn­ing“, „sam­starf“ eða „í sam­starfi við “.

Fjöl­miðla­nefnd taldi sem sagt að umræddar umfjall­anir á mbl.is telj­ist til dul­inna við­skipta­boða og þar með hafi Árvakur brotið gegn lögum um fjöl­miðla. Taldi nefndin 1,5 milljón króna vera hæfi­lega sekt en hún leit til þess að veitan hafi ekki áður brotið gegn laga­á­kvæðum fjöl­miðla­laga um duldar aug­lýs­ingar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við