Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Kári Stefánsson: „Ekkert sem réttlætir dráp á 17 þúsund börnum“

Kári Stefánsson: „Ekkert sem réttlætir dráp á 17 þúsund börnum“
Kári Stef­áns­son, for­stjóri Íslenskrar erfða­grein­ingar. (Mynd: Jón Gúst­afs­son).

Kári Stef­áns­son seg­ist ósáttur við vinstri stjórn­mála­öfl á Íslandi, sem hann segir hafa brugð­ist hlut­verki sínu. Að berj­ast fyrir þá sem minnst mega sín. Kári, sem er nýjasti gest­ur­inn í podcasti Sölva Tryggva­sonar, seg­ist til að mynda orð­inn háfl­gerður heim­il­is­læknir fyrir hóp Pólverja sem fái ekki aðgang að heil­brigð­is­þjón­ustu og eng­inn virð­ist hafa áhuga á að sinna:

„Við erum ekki að tala almenni­lega máli þeirra sem minna mega sín í sam­fé­lag­inu. Vinstri flokk­arnir eru hættir að vera rödd þeirra sem þeir eiga að berj­ast fyrir. Það er kom­inn tími til að búa til nýtt stjórn­mála­afl sem raun­veru­lega berst fyrir þeim sem minna mega sín. Og hvaða fólk er það? Meðal ann­ars 25 þús­und Pól­verjar. Hvað á það að þýða að hunsa þá eins og við gerum. Fjöl­miðlar sýna þessum hóp og þeirra menn­ingu nán­ast engan áhuga. Ég fer í rækt­ina nán­ast dag­lega uppi í Ögur­hvarfi í lík­ams­rækt­ar­stöð þar sem við sem fædd­umst á Íslandi erum í minni­hluta. Þar koma mjög reglu­lega til mín menn sem leita til mín af því að þeir fá ekki heil­brigð­is­þjón­ustu. Ég hef endað á því að verða heim­il­is­læknir fyrir stóran hóp Pólverja sem æfa í World Class í Ögur­hvarfi. Við verðum að sinna þessu fólki almenni­lega og gera miklu miklu betur.“

Kári seg­ist í þætt­inum ekk­ert botna í því að íslensk stjórn­völd hafi tekið þátt í vopna­kaupum fyrir Úkraínu. Hann segir að allir eigi að leggja sín lóð á vog­ar­skál­arnar til þess að stríðs­rekstri sé hætt og að það sé nákvæm­lega ekk­ert sem rétt­læti dráp á börnum og ung­mennum:

„Það eru til örlög sem eru verri en dauð­inn, en það er ekki ásætt­an­legt að fleiri og fleiri ungir Úkra­ínu­menn og Rússar deyi í þessu stríði árið 2024. Og mér finnst það dap­ur­legt þegar íslenska ríkið fer að styðja Úkra­ínu­menn með því að hjálpa þeim að kaupa skot­færi. Mér finnst það brjóta í bága við það frið­semd­ar­prinsip sem við höfum haldið í í gegnum árin. Það er hægt að styðja við Úkra­ínu­menn með svo mörgum öðrum leiðum. Fólk fellur í þá gryfju að flokka þetta eftir flokkspóli­tík og hægri og vinstri, en við verðum að hefja okkur yfir það. Það að Ísland taki þátt í stríði með þessum hætti stang­ast á við rót­grónar hug­myndir um að við eigum ekki að vera með með her eða taka þátt í stríðs­rekstri,“ segir Kári og heldur áfram:

„Ein af ástæðum þess að það vakti ekki meiri athygli og hneykslan að við værum að taka þátt í vopna­kaupum er að fjöl­miðl­arnir á Íslandi eru orðnir svo veikir. Við erum með eitt dag­blað og lítið af sterkum ljós­vaka­miðlum. Blaða­manna­stéttin er orðin fámenn. Ef við værum með sömu fjöl­miðlaflóru og við vorum með fyrir 30 árum hefði þetta orðið mjög stórt mál.“ 

Kári segir að stríðið í Úkraínu og svo það sem er að ger­ast á Gaza haldi fyrir sér vöku og að það sé ekk­ert sem rétt­læti svo mikið dráp á fólki og ekki síst börnum:

„Svo byrjar annað stríð sem er jafn­vel enn furðu­legra og enn ógeð­feld­ara í mínum huga. Það byrjar auð­vitað með gíf­ur­lega ógeð­felldri árás Hamas á Ísrael sem var ógeðs­leg á tak­marka­lausan máta. Það er erfitt að ímynda sér það hug­ar­á­stand sem þeir eru í sem fremja slíka árás. En svo bregð­ast Ísra­els­menn við með því að taka þá ákvörðun að þeir ætli að drepa alla Hamas-liða, sama hvað það kostar. Ef við horfum til þess hvað það hefur kostað í dag, þá eru þeir búnir að drepa svona 17 þús­und börn. Og það er ekk­ert til í heim­inum sem rétt­lætir það að drepa 17 þús­und börn. Ég tek það fram að margir af mínum bestu vinum eru gyð­ingar og gyð­ingar eru á margan hátt mitt upp­á­halds­fólk. En það er nákvæm­lega ekk­ert sem rétt­lætir þessar aðgerðir. Það er bara bull að Ísland standi ekki af fullum þunga á bak­við það að gerð sé krafa um vopna­hlé strax. Við verðum að kalla eftir vopna­hléi í stríði sem er að valda dauða þús­unda barna. Við getum ekki flokkað svona hluti eftir póli­tískum línum.“

Þegar Sölvi spyr Kára út í her­gagna­iðn­að­inn og hvort það séu ekki öfl sem hrein­lega vilji þessi stríð og vilji halda þeim sem lengst seg­ist hann vissu­lega sam­mála því að her­gagna­iðn­að­ur­inn reyni að hafa áhrif. En hann vill ekki trúa því að stjórn­völd í Banda­ríkj­unum séu undir hælnum á þeim iðn­aði:

„Ég er ekki í nokkrum vafa um að her­gagna­iðn­að­ur­inn hefur reynt að hafa mikil áhrif á þetta og það er engin spurn­ing um að her­gagna­iðn­að­ur­inn fitnar  eins og púk­inn á fjós­bit­anum í öllum þessum stríðum. En ég held innst inni að það geti ekki verið rétt að stjórn­völd í Banda­ríkj­unum séu að reyna að ýta undir þessi átök. Ég vil ekki trúa því að Banda­ríkj­unum sé stjórnað af fólki sem vill að þessir hræði­legu hlutir séu að ger­ast.“

Annað sem Kári kemur inn á þætt­inum er fram­tíð íslenskrar tungu. Hann telur það til­gangs­laust að reyna að stemma stigu við notkun ensku:

„Fólk hefur áhyggjur af því að tungu­mál barn­anna okkar sé orðið of ensku­skotið og fær kvíða­kast yfir því. Mín afstaða er eft­ir­far­andi. Við lifum á tímum þar sem bæði börn og full­orðnir í okkar landi lifa í tveimur heimum. Annars vegar á inter­net­inu og hins vegar í raun­veru­legu lífi. Tungu­málið á inter­net­inu er enska. Þar tekst íslenskt fólk á við alþjóð­legan heim og sýnir ef það hefur eitt­hvað fram að færa. Ég held að það sé gíf­ur­lega mik­il­vægt að við letjum ekki íslensk börn til að nota ensku, af því að ef við gerum það verða þau alveg ,,lost” í netheimum. Þetta er heimur sem heldur áfram að vera til og enska gegnir núna því hlut­verki sem Esper­anto átti að gegna á sínum tíma. Leiðin til að varð­veita íslensk­una er að hugsa um hana eins og ger­semi inni í stofu hjá okkur. Við eigum að ætl­ast til þess að þegar menn noti hana þá geri þeir það rétt, en við eigum ekki að krefj­ast þess að það sé verið að nota hana þegar það á ekki við.“

Í lok þátt­ar­ins er Kári spurður út í það hvort hann hafi aldrei íhugað að fara í stjórn­mál:

„Nei, nei nei. Ertu vit­laus drengur. Nú verð ég að end­ur­taka mig og segja: ,,Hvað á það að þýða að spyrja mig að þessu drengauli”, Segir Kári og hlær og heldur áfram: ,,Nei ég vil alls ekki missa það frelsi sem fylgir því að þurfa ekki að taka beinan þátt í íslenskri póli­tík. Ég hef ofboðs­lega gaman að vinn­unni minni. Ég vinn við ein­hvern mesta lúxus sem hægt er að hugsa sér. Ég er í vinnu þar sem við erum á hverjum degi að vinna að því að gera upp­götv­anir um eðli manns­ins.“

Hægt er að nálg­ast við­talið við Kára og öll við­töl og pod­köst Sölva Tryggva­sonar inni á sol­vi­tryggva.is

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina