Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Sendi þingmönnum 160 blaðsíðna umsögn við frumvarp um lagareldi: „Þarfnast verulegrar endurbóta“

Sendi þingmönnum 160 blaðsíðna umsögn við frumvarp um lagareldi: „Þarfnast verulegrar endurbóta“
Alþing­is­húsið. Mynd: Sikeri

Valdimar Ingi Gunn­ars­son sendi Alþing­is­mönnum umsögn Sjáv­ar­út­vegs­þjón­ust­unnar ehf. við frum­varp um laga­eldi sem atvinnu­vega­nefnd Alþingis er nú með til umsagnar.

Umsögnin er heilar 160 blað­síður með athuga­semdum og ábend­ingum, sem Valdimar vonar að nýt­ist við að betrumbæta frum­varpið.

Mannlíf fékk senda sam­an­tekt úr umsögn Vil­hjálms Inga sem lesa má hér fyrir neðan:

Ágætu alþing­is­menn

Með­fylgj­andi er umsögn Sjáv­ar­út­vegs­þjón­ust­unnar við frum­varp um lagar­eldi sem nú er til umsagnar hjá atvinnu­vega­nefnd Alþingis. Um 160 blað­síður með athuga­semdum og ábend­ingum sem von­andi nýt­ast við að betrumbæta frum­varpið. Þannig að það sé sagt er margt jákvætt og gott við frum­varpið en um það er ekki sér­tak­lega fjallað. Frum­varpið um lagar­eldi þarfn­ast þó veru­legrar end­ur­bóta ef nið­ur­staðan á ekki að vera eins og í til­felli laga um fisk­eldi sam­þykkt á Alþingi Íslend­inga á árinu 2019.

Til fjárhagslegs ávinnings

Und­ir­bún­ingur og gerð laga um fisk­eldi á árinu 2019 snérist í of miklu mæli um að erlendir fjár­festar og íslenskir full­trúar þeirra næðu sem mestum fjár­hags­legum ávinn­ingi.  Til­gangur með umsögn við frum­varp um lagar­eldi er einkum að leggja sitt að mörkum til að koma í veg fyrir áfram­hald­andi fjár­hags­legan ávinn­ing fámenns hóps fjár­festa á kostnað umhverf­is­mála og að eigur Íslend­inga verði fótum troðið.

Meiri fjárhagslegur ávinningur

Þegar horft er til atriða í frum­varpi um lagar­eldi er koma inn á fjár­hags­legan ávinn­ing má í stuttu máli kom­ast af eft­ir­far­andi nið­ur­stöðu:

  • Færa til eignar: Að vera með ótíma­bundin rekstr­ar­leyfi, heim­ild til verð­setn­ingar og heim­ild til leigu laxa­hluta færir auð­lindin íslenskir firðir nær því að telj­ast til eignar.
  • Auð­lindin einka­vædd: Málin munu þró­ast þannig að um var­an­lega eign verður að ræða eða sagt með öðrum orðum að arð­ur­inn af auð­lind­inni íslenskir firðir verður einka­væddur.
  • Erlendri eigu: Það er verið að stuðla að því að lax­eldi í sjó­kvíum á Íslandi verði allt í meiri­hluta­eigu erlendra fjár­festa  með inn­leið­ingu laxa­hluta, smit­varn­ar­svæða og upp­boða.
  • Fjár­hags­legur ávinn­ingur: Fyr­ir­hug­aðar breyt­ingar munu færa lax­eld­is­fyr­ir­tækj­unum meiri­hluta­eigu erlendra aðila tug­millj­arða fjár­hags­legan ávinn­ing.
  • Sama gjald­taka: Fram­leiðslu­gjald á hvert kg slát­ur­lax kemur til með að vera svipað þrátt fyrir vænt­ingar um aukn­ingu.
  • Uppboð:  Útboð á laxa­hlutum er sér­hannað fyrir Ice Fish Farm, Arnarlax og Arctic Fish  og mun stuðla að sterk­ari stöðu þeirra og áfram­hald­andi fjár­hags­legum ávinn­ingi á kostnað íslenskra skatt­greið­enda.
  • Arðurinn fluttur út: Lax­eld­is­fyr­ir­tæki í meiri­hluta­eigu erlendra aðila mun halda sínum meiri­hluta, selja Íslend­ingum áfram hluti í félög­unum á háu verði og stærsti hluti af arð­inum verður fluttur úr landi.

Aftur er varað við

Á árinu 2019 sendi und­ir­rit­aður öll alþing­is­mönnum tvær ítar­legar greina­gerðir þar sem varað var við að sam­þykkja lög um fisk­eldi að óbreyttu. Því miður raun­gerð­ist margt af því sem  þar var sagt og látum það ekki end­ur­taka sig.

Í umsögn­inni er lögð  áhersla á að gera grein fyrir þróun mála, auka skiln­ing les­anda og vísað er til les­efnis þar sem hægt er að kynna sér málið betur. Jafn­framt eru teikn­aðar upp mögu­legar sviðs­myndir ef frum­varpið verður sam­þykkt óbreyttu.

Um

Und­ir­rit­aður hefur unnið við fisk­eldi í rúm 30 ár og m.a. komið að fjöl­mörgum verk­efnum fyrir stjórn­völd er tengj­ast fisk­eldi, s.s. skrifum á lögum og reglu­gerðum. Gagnrýnd hefur verið sú spill­ing sem átti sér stað við und­ir­bún­ing og gerð laga um fisk­eldi á tíma­bil­inu 2017-2019. Í byrjun árs­ins 2022 hóf und­ir­rit­aður form­lega  vinnu við Sam­fé­lags­verk­efni gegn spill­ingu í hálfu starfi og þið verðið reglu­lega upp­lýst um fram­gang­inn.

Yfirlit um málið er að finna á lagar­eldi.is

Best er að finna allar skýrslur og greinar er tengj­ast mál­inu á sja­varu­tvegur.is.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina