Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Eiríkur var hætt kominn í köfun í Silfru: „Þá sá ég að þetta er eins svart og svart verður“

Eiríkur Ingi Jóhanns­son var á meðal þeirra sem komu að hörmu­legu slysi í Skötu­firði í Ísa­fjarð­ar­djúpi þann 16. jan­úar 2021 þar sem bif­reið með fjöl­skyldu frá Flateyri hafði oltið og lent úti í sjó. Eiríkur Ingi vakti þjóð­ar­at­hygli þegar hann komst einn af þegar tog­ar­inn Hall­grímur SI fórst. Hann brást skjótt við og synti að bif­reið­inni. Honum tókst að ná konu og barni úr bílnum.

For­seta­fram­bjóð­and­inn Eiríkur Ingi segir sögu sína í Sjó­ar­anum í seinni hluta frá­sagnar sinnar.

Eiríkur Ingi er vanur kaf­ari en eitt sinn þegar hann kaf­aði í Silfru með vini sínum, lenti hann í lífs­háska.

„Það var köfun númer 27,“ sagði Eiríkur Ingi í upp­hafi frá­sagnar hans um lífs­háska sem hann lenti í við köfun á Þing­völlum. „Þá var ég og félagi minn á Þing­völlum og tókum Silfru. Og svo sáum við að það var hægt að koma aftur að landi, undir stað sem heitir Silf­ur­hóll. Það var sprunga þar og við ákváðum að kíkja inn í þessa sprungu. Og við gerðum það og fórum alltaf lengra og lengra inn.“ Eiríkur var aðeins með lítið ljós með sér, sem átti það til að svíkja hann, þannig að hann ákvað að hafa kveikt á því á meðan hann væri á kafi, ekki fikta í tökk­unum. „Svo förum við alltaf lengra og lengra inn í hell­inn og þá var bara smá píra af birtu þarna og við bara með þetta ræf­ils­lega ljós.“

Eiríkur Ingi sér svo lítið og þröngt op í hell­inum sem fer lengra inn og ákveður að kíkja þangað. Gaf hann félaga sínum merki um að hann ætl­aði að kíkja í stuttu stund og að vin­ur­inn ætti að bíða á meðan. „Og ég tróð mér í gegnum þetta gat. Og þar var hellir, svona gam­al­dags her­bergi að stærð. Kannski fjórir metrar á breidd og tveir og hálfur eða þrír á hæð eða eitt­hvað. Og ég er kom­inn þarna inn og fer í end­ann á honum. Og sé þá opið hverfa í drullu. Það grugg­að­ist allt upp. Þá hugs­aði ég með mér, „Hvað geri ég nú?“.“

For­seta­fram­bjóð­and­inn sá svo annað minna op í hell­inum og ákvað að sjá hvort hann sæi ljós þaðan, sem reynd­ist ekki vera. „Þá sá ég að þetta er eins svart og svart verður.“ Ákvað Eiríkur þá að betra væri að reyna frekar að finna aftur opið sem hann kom inn um. Byrjaði hann á því að leita með hönd­unum að opinu enda sá hann lítið annað en grugg. „En ég er ekk­ert að finna þetta. Og þá fer pumpan af stað og adrena­línið þannig að maður var orð­inn hræddur. Þá hugs­aði ég með mér „Heyrðu, ég ætla að bakka núna og róa mig“. Þegar maður er í kafi, þá er að reyna á svo mörg skyn­færi hjá þér að maður er fljótur að missa áttir.“

Segist Eiríkur hafa beðið til Guðs um að kom­ast út aftur og lof­aði að gera þetta ekki aftur. Þegar hann var búinn að róa sig ákveður hann að leita í annað sinn að opinu. Þá hafði félagi hans tekið eftir bjarm­anum frá ljósi Eiríks í fyrri leit­inni og beðið hinum megin eftir að sjá ljósið aftur. „Svo næst verð ég var við að allt í einu birt­ist þessi hendi fyrir framan mig og ég gríp í hana. Þá var hann hinum megin í gjót­unni að teygja sig eins langt og hann getur inn. Þannig að ég gríp í hann og ég er ekki að grín­ast, að þegar ég greip utan um hönd­ina á honum, kom svona fjúff yfir mig,“ sagði Eiríkur og sýndi með hand­bragði hvernig sælu­til­finn­ing þeytt­ist yfir hann. „Þetta er í lagi, þetta bjarg­ast“.

Sjá má við­talið í heild sinni hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina