Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Lögreglumenn mótmæla niðurskurði yfirvalda: „Getur ekki annað en endað illa fyrir samfélagið allt“

Lög­reglu­menn mót­mæla harð­lega fyr­ir­ætl­uðum nið­ur­skurði stjórn­valda til lög­gæslu­mála.

Stjórn Lands­sam­bands lög­reglu­manna sendi rétt í þessu frá sér ályktun þar sem fyr­ir­ætl­unum stjórn­valda um nið­ur­skurð í lög­gæslu­málum, er harð­lega mót­mælt.

Guðrún Haf­steins­dóttir dóms­mála­ráð­herra sagði á dög­unum að nið­ur­skurð­ur­inn ætti ekki að koma niður á störf lög­regl­unnar. „Ég skil á vissan hátt áhyggjur þeirra en ég ætla að benda á það í fjár­mála­á­ætlun að þá er 60 milljón króna nið­ur­skurður hjá dóm­stóla­sýsl­unni á fjög­urra ára tíma­bili. Þannig að ég bind nú vonir við að þau ættu að geta náð því í starf­semi sinni,“ segir Guðrún í við­tali á RÚV.

Í álykt­un­inni segir að sú skerð­ing á fjár­fram­lögum sem boðuð sé til mála­flokks lög­gæslu, geri, að mati lög­reglu­manna, lög­regl­unni erfitt fyrir að ann­ast lög­bundin störf sín, auk þess sem álag á ein­staka lög­reglu­menn muni aukast til muna. Þar kemur einnig fram að þær hug­myndir að lög­gæsla og þjón­usta muni ekki skerð­ast við nið­ur­skurð­inn, séu „draum­órar“. „Sífelldur nið­ur­skurður til lög­gæslu getur ekki annað en endað illa fyrir sam­fé­lagið allt,“ segir orð­rétt í álykt­un­inni.

Aukreitis er kvartað yfir hús­næð­is­málum í álykt­un­inni og þar sagt ríkja „ófremd­ar­á­stand“. Að lokum hvetur stjórnin yfir­völd til þess að „gera betur“ og falla frá fyr­ir­hug­uðum nið­ur­skurði og bæta úr hús­næð­is­málum lög­regl­unnar.

Hér má lesa álykt­un­ina í heild sinni: 

ÁLYKTUN STJÓRNAR LANDSSAMBANDS LÖGREGLUMANNA 

Stjórn Lands­sam­bands lög­reglu­manna mót­mælir harð­lega fyr­ir­ætl­unum stjórn­valda um nið­ur­skurð til lög­gæslu­mála sem boð­aður er í fjár­mála­á­ætlun 2025-2029 og harmar þá stöðu sem uppi er í hús­næð­is­málum lög­regl­unnar á Íslandi. 

Lands­sam­band Lög­reglu­manna mót­mælir harð­lega þeim nið­ur­skurði til lög­gæslu­mála sem boð­aður er í fjár­mála­á­ætlun 2025-2029. Að mati lög­reglu­manna er ljóst að boðuð skerð­ing á fjár­fram­lögum til mála­flokks lög­gæslu gerir lög­regl­unni erfitt fyrir að ann­ast lög­bundin verk­efni sín auk þess sem álag á ein­staka lög­reglu­menn mun aukast mikið.

Löggæsla er ein af grunn­stoðum sam­fé­lags­ins. Það er stað­reynd að hlut­falls­lega hefur lög­reglu­mönnum fækkað mikið und­an­farna ára­tugi í sam­an­burði við fjölgun íbúa og ferða­manna á Íslandi. Verkefni lög­regl­unnar hafa á þessum tíma orðið bæði flókn­ari og mann­afls­frek­ari en stjórn­völd telja ekki ástæðu til þess að bæta í heldur skera niður. Slík skila­boð yfir­valda til lög­reglu­manna eru ömur­leg á sama tíma og stéttin á í kjara­samn­ings­við­ræðum við samn­inga­nefnd rík­is­ins. Að mati Lands­sam­bands lög­reglu­manna eru það draum­órar að lög­gæsla og þjón­usta muni ekki skerð­ast nái fyr­ir­ætl­anir sem fjár­mála­á­ætlun ber með sér fram að ganga. Sífelldur nið­ur­skurður til lög­gæslu getur ekki annað en endað illa fyrir sam­fé­lagið allt. 

Þá hefur um langa hríð verið uppi ófremd­ar­á­stand í hús­næð­is­málum lög­reglu sem brýnt er að tekið verði á af festu. Nýverið var áformum um nýtt hús­næði við­bragðs­að­ila á höf­uð­borg­ar­svæð­inu frestað sem eru mikil von­brigði fyrir lög­reglu­menn þar sem starf­semi á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, starf­semi stjórn­stöðvar almanna­varna og fjar­skipta­mið­stöðvar lög­regl­unnar, býr við óvið­un­andi hús­næð­is­kost. Þá liggur fyrir að heilt lög­reglu­lið á Suð­ur­nesjum hefur verið í miklum vand­ræðum með hús­næð­is­mál um all­langa hríð vegna myglu­skemmda á lög­reglu­stöð. Þá er einnig slæm staða með hús­næð­is­mál lög­reglu á lands­byggð­inni, m.a. á Vest­fjörðum og Suð­ur­landi. Miðað við boð­aðan nið­ur­skurð sam­kvæmt fjár­mála­á­ætlun verður ekki séð að vand­ræði með hús­næð­is­mál lög­reglu verði leyst á kom­andi árum, sem er að mati Lands­sam­bands lög­reglu­manna óvið­un­andi og felur í sér for­gangs­röðun sem eru mikil von­brigði. 

Stjórn Lands­sam­bands lög­reglu­manna hvetur stjórn­völd til að gera betur, falla frá boð­uðum nið­ur­skurði til mála­flokks­ins og bæta úr hús­næð­is­málum og starfs­að­stöðu lög­regl­unnar á Íslandi. 

Reykja­vík 22. maí 2024

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina