Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Verðlaunabuguð Elísabet skrifar nýja bók: „Nýrnaveikindin ekki neitt miðað við þennan kvíða“

Verðlaunabuguð Elísabet skrifar nýja bók: „Nýrnaveikindin ekki neitt miðað við þennan kvíða“

Elísa­betu Jök­uls­dóttur gengur allt í hag­inn um þessar mundir, eða því sem næst. Hún vinnur nú að glæ­nýrri bók sem fjallar um konu sem flytur til Hvera­gerðis en kemur sér ekki úr spori sökum kvíða. Sjálf flutti hún einmitt til Hvera­gerðis og þjá­ist af kvíða. Mannlíf ræddi við Elísa­betu um list­ina, dag­inn og veg­inn. Og kvíð­ann.

Elísabet Jök­uls­dóttir

Hin marg­verð­laun­aða skáld­kona og rit­höf­undur, Elísabet Jök­uls­dóttir er eitt af óska­börnum þjóð­ar­innar en hún er þekkt fyrir hisp­urs­leysi, húmor, ein­lægni og frum­leika, svo fátt eitt sé nefnt. Hún er ekki vön að feta troðnar slóðir, svo mikið er víst.

Þessa dag­ana er Elísabet í heim­sókn í Reykja­vík en fer brátt aftur heim í Hvera­gerði. „Ég segi allt fínt nema ég er alveg ofboðs­lega eitt­hvað þreytt og lúin og mig svimar af þreytu. Ég er búin að vera að gera svo mikið, hitta svo marga. Svo fer ég alltaf að sofa klukkan átta en ég fór að sofa klukkan hálf eitt í gær af því að ég var í Silfrinu. En ég hef það voða fínt og það er gaman í bænum. Ég vil ekk­ert fara aftur heim strax,“ segir Elísabet í sam­tali við Mannlíf.

Sakn­að­arilmur, leik­rit sem gert er eftir sam­nefndri bók Elísa­betar hefur heldur betur slegið í gegn en nýverið hlaut leik­ritið flestar til­nefn­ingar Grímu­verð­laun­anna sem fram fara annað kvöld en skáldið ætlar auð­vitað að mæta. „Já, ég ætla að mæta,“ segir Elísabet aðspurð hvort hún ætli að fara á Grímuna. „Maður er bara stopp­aður út á götu,“ heldur hún áfram, og á við vin­sældir leik­rits­ins. „Ég hitti konu í gær sem fer aldrei í leik­hús af prinsipp ástæðum, sagði hún mér en hún hefði farið á þetta og væri alveg í skýj­unum.“

Erfiður flutningur

Eins og oft hefur komið fram hér fyrir ofan, flutti Elísabet nýlega til Hvera­gerðis en hvernig er lífið þar? „Það er bara fínt. Það tók mig átta mán­uði að vera í sorg­ar­ferli út af gamla hús­inu mínu en svo allt í einu reis ég upp og fór að gróð­ur­setja ræt­urnar og kannski á ég eftir að eiga heima í Hvera­gerði alla mína ævi, ég veit það ekki. En ég tek alltaf eitt ár í við­bót, one year at a time. En bær­inn er voða fal­legur, með foss í miðj­unni og allan þennan gróður. En Reykja­vík er líka voða­lega fal­leg með öll sín tré. Í gamla hverf­inu mínu, þar er maður eins og umvafin skógi. En svo hef ég verið með, til að tengj­ast Hvera­gerði, ljóða­lestur og hljóð­færa­slátt á lista­safn­inu, fjórum sinnum í fyrra­sumar. Það var voða gaman því maður vildi gefa eitt­hvað til bæj­ar­fé­lags­ins og tengj­ast.“

Síðustu ár hefur Elísabet glímt við erfið nýrna­veik­indi en henni líður nú orðið betur með nýtt nýra. „Nema ég þarf að sofa voða mikið. En þá er ég með alveg fulla orku. Ég sef alveg tíu, tólf tíma, eins og eng­ill. En þá er ég líka alveg á fullu í tólf tíma, get bara unnið eins og her­for­ingi og ekk­ert bítur á mig.“

Kvíði í Hveragerði

Elísabet situr alls ekki auðum höndum eins og sést hér að ofan en fyrir utan þess að sækja verð­launa­há­tíðir og sjón­varps­þætti, situr hún nú við skrif á glæ­nýrri bók.

En um hvað er hún? „Hún er um konu sem flytur til Hvera­gerðis og lok­ast inni. Og þá fer hún að rann­saka allar fyrri inni­lok­anir sínar, hvenær hún hafi lok­ast inni áður. Og hún hefur lok­ast inni í skað­legu sam­bandi og hún hefur lok­ast inni í skjala­tösku föður síns og hún hefur lok­ast inni í hug­myndum og her­bergjum og leik­hús­inu og afbrýð­is­semi og já, ef það er ein­hvers staðar inni­lokun þá skellir hún sér á hana þar til allt í einu er komið nóg og hún þolir ekki meira. Þá fer hún að rann­saka þetta, hvernig stendur á þessu. Og mótið er bara búið hjá henni eins og gengur, hvort sem þetta er kulnun eða burn out eða hvað það heitir. Alla veg­ana er hún algjör­lega búin á því í upp­hafi bók­ar­innar og fer að rann­saka málið.“

Aðspurð segir Elísabet ekki enn vera komið nafn á bók­ina en nokkrar hug­myndir séu á lofti: „Ég hef kallað hana Fiðr­ildin eru komin og svo hef ég kallað hana Hvar sem þú ert en ég kalla hana bara núna Inni­lok­un­ar­konan en ég veit ekki hvað hún mun koma til með að heita. Fiðr­ildin eru komin er nú gott og Elísa­bet­ar­legt nafn.“

En hvernig kom sagan til?

„Þetta kom bara allt í einu. Ég var búin að labba svo mikið um í íbúð­inni í ein­mana­leika og leiða. Komst ekki út úr húsi og svo allt í einu fór ég bara að skrifa um það. Það var ógeðs­lega fyndið. Kona sem er að ráfa um og getur ekk­ert gert, getur ekki eldað mat og ekki farið í sturtu og svona. Og allt í einu varð hún bara kómísk þegar maður fór að skrifa þetta niður.“

Aðspurð hvort skrifin virki eins og þerapía fyrir hana, játar Elísabet því: „Já ég held það. Nú fer maður að kom­ast út úr hús­inu.“ Hún seg­ist þó ekki vera orðin alveg full laus við kvíð­ann. „Ég get farið í sturtu núna en ég verð alltaf að mana mig upp í það. Ég tek alveg klukku­tíma í að mana mig upp í það en stundum get ég bara skellt mér í sturtu eins og ég gerði í gamla daga. En ég er ekki farin að elda mat. Fyrst þegar ég kom til Hvera­gerð­ist hit­aði ég 1944 rétti og ég keypti mér fisk. En nú er fisk­búðin farin og ég er ekki farin að geta eldað mat. Mig langar rosa mikið að geta spælt egg og búið til nauta­kjöts­rétt og pasta­rétt en ég ein­hvern veg­inn fæ mig ekki til þess en þetta er afgangur af þessum kvíða sem ég hef verið með. Kvíðinn er mikið verri en þessi nýrna­veik­indi, þau eru nú ekki neitt miðað við þennan kvíða. En ég er farin að geta keyrt, ég hef keyri um eins og her­for­ingi í viku og á eftir að keyra heim á laug­ar­dag­inn til þess að kjósa. Þannig að þetta kemur allt saman.“

En hvern ætlar Elísabet, sem bauð sig sjálf fram til emb­ættis for­seta árið 2016, að kjósa?

„Ég ætla að kjósa Stein­unni Ólínu.“

Verðlaunabugun

Eins og áður hefur komið fram hér, er allt á fullu farti hjá Elísa­betu þessi miss­erin en hún spaugar með álagið: „Ég er búin að vera sex mán­uði að skrifa þessa sögu og svo hef ég nátt­úru­lega verið að taka á móti verð­launum og við­ur­kenn­ingum. Það er mjög mikil bugun í því,“ segir Elísabet og skellir upp úr. „Ég fer bráðum að skrifa um kon­una sem bug­að­ist af verð­launa­af­hend­ingum.“

Það tók stofn­anir og sam­tök sem útdeila við­ur­kenn­ingum og verð­launum nokkuð langan tíma að upp­götva Elísa­betu sem skáld og rit­höf­und en fyrsta bók hennar, ljóða­bókin Dans í lok­uðu her­bergi, kom út árið 1989. Árið 2008 hlaut hún Fjöru­verð­launin fyrir bók­ina Heilræði lása­smiðs­ins og síðan hafa verð­launin og við­ur­kenn­ing­arnar streymt til hennar. Að spurð hvað henni fynd­ist um það hversu seint hún fór að hljóta við­ur­kenn­ingar fyrir verk sín svar­aði Elísabet um hæl: „Það fer eftir því hvað maður kallar við­ur­kenn­ingu. Ég hef gefið út 27 bækur og tvær síð­ustu voru gefnar út af for­lagi og það er allt annað að vera undir hand­ar­jaðri for­lags heldur en að gefa út sjálfur. Það er svo mikið hark.“

Elísabet seldi bækur sínar lengi vel í Mela­búð­inni og fékk þar fjöl­margar við­ur­kenn­ingar, frá fólk­inu sem hún hitti þar. „Ég var að selja í Mela­búð­inni og ég fékk fullt af við­ur­kenn­ingum þar og hitti les­endur sína auglitis til auglitis og átti stefnu­mót við les­endur eins og ein­hvern tíma var sagt. Og það var rosa­lega skemmti­legt. Fólk var að gefa manni við­ur­kenn­ingu þótt það væri ekki verð­laun á Bessa­stöðum. Þetta var eitt helj­ar­innar ævin­týri en ég var búin að selja í Mela­búð­inni í 20 ár og þá var kom­inn tími til að breyta um, svo maður staðni ekki og fólk fái ekki leið á manni þarna. En ég vil endi­lega taka það fram að for­lagið heldur mjög vel utan um mig og þeir hugsa um mig eins og blóm í eggi og eru voða fag­legir og nice líka. Þeir koma bara til Hvera­gerðis í heim­sókn.“

Fyrirmyndirnar

Elísabet kveðst eiga þó nokkrar fyr­ir­myndir í list­inni. „Mér dettur nú í hug Kristín Gunn­laugs­dóttir, list­mál­ari. Hún þorir að hafa kúg­vend­ingu í sinni list. Hún fór úr því að mála íkona í kalþ­ólskum stíl yfir í því að sauma risa­stórar píku­myndir. Mér finnst þetta mjög virð­inga­vert og mér til fyr­ir­myndar þegar lista­menn nenna að brjóta upp, gera eitt­hvað allt annað. Og svo er það Linda Vil­hjálms­dóttir. Hún yrkir allt öðru­vísi en ég en hún er mikil fyr­ir­mynd. Hún svona sparar orðin en ég kannski læt þau flakka, öll orðin sem mér dettur í hug. En svo hef ég lært af Lindu að spara stundum orðin og hafa þetta svona beggja blands. Svo get ég nefnt Chaplin líka. Svo var ég að upp­götva nýjan list­mál­ara, hann heitir Jakob Veigar Sig­urðs­son og hann málar svona kaó­tískar myndir, eða þú veist, það er svo erfitt að segja að eitt­hvað sé kaó­tískt en hann svona lætur allt flakka. Svolítið eins og ég geri sjálf en það er gott þegar maður efast um það hvort maður eigi að láta allt flakka en skoðar svo mynd­irnar hans.“

Málverk eftir Jakob Veigar Sig­urðs­son

Og fyr­ir­mynd­irnar eru fleiri: „Ég get líka nefnt Shakespear og Beckett, hann er svo góður að skrifa um ekki neitt og nýja bókin sem ég er að skrifa er kannski svo­lítið um ekki neitt.“

Þegar Mannlíf spurði Elísa­betu hvort það væri eitt­hvað sem hún vildi segja að lokum, stóð ekki á svörum: „Lifi frjáls Palest­ína!“.

Allar ljós­mynd­irnar sem birt­ast með við­tal­inu inni­halda setn­ingar úr Sakn­að­arilmi og eru aðsendar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Menning

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Hrósar lýsingum Laxness á íslenskri náttúru og árstíðunum
Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu