Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Stærðarinnar bruggstarfsemi stöðvuð af lögreglu – Ungur bóndi handtekinn með mikið magn af gambra

Stærðarinnar bruggstarfsemi stöðvuð af lögreglu – Ungur bóndi handtekinn með mikið magn af gambra

Jóla­djamm fjöldi ung­linga var eyði­lagt í upp­hafi des­em­ber­mán­aðar árið 1990, þegar lög­reglan kom upp um stærð­ar­innar brugg­starfs­semi í Land­eyjum.

Þann sjötta des­em­ber árið 1990 kom lög­reglan upp um eina allra stærstu bruggverk­smiðju sem fund­ist hafði á land­inu í langan tíma. Ungur bóndi var þá hand­tek­inn í Vestur Land­eyjum en um 600 lítrar af gambra fannst í mjólk­ur­húsi hans og um 100 lítrar af hreinum landa. Ljóst var að brugg­inu var ætlað að selja til dreif­ing­ar­að­ila í Reykja­vík sem ætl­uðu sér að selja ung­lingum það.

DV skrif­aði um málið dag­inn eftir, þann 7. des­em­ber 1990 en hér má lesa frétt­ina:

Lög­reglan kom upp um stór­fellda brugg­starf­semi í gær:


Mikil bruggverk­smiðja í mjólk­ur­húsi í Land­eyjum

Lög­reglan kom í gær upp um eina stærstu bruggverk­smiðju sem fund­ist hefur á land­inu í langan tíma. Ungur maður var hand­tek­inn í V-Land­eyjum en í mjólk­ur­húsi hans fund­ust um 600 lítrar af óeim­uðu bruggi og um eitt hund­rað litrar af hreínum landa. Maðurinn játaöi að hafa staðið að brugg­starf­sem­inni og að hafa selt hund­ruð lítra af bruggi til dreif­ing­ar­að­ila á höf­uð­borg­ar­svæð­inu að und­an­förnu. Lög­reglan lagði meðal ann­ars hald á vöru­bíl sem brugg­ar­inn hafði keypt fyrir ágóð­ann af brugg­starf­sem­inni. Þrír dreif­ing­ar­að­ilar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu tengj­ast þess­ari umfangs­miklu brugg­starf­semi.

Forsaga máls­ins er að lög­reglan fékk sterkan grun á þriðju­dag um að brugg­sala væri stunduö í Reykja­vík. Fljót­lega bár­ust böndin að dreif­ing­ar­að­ila í Mos­fellsbæ. Fór lög­reglan á stað­inn á mið­viku­dags­kvöld og hand­tók ungan mann. Hjá honum fund­ust um eitt hund­rað lítrar af landa í plast­brúsum – til­búnum til sölu. Tveir menn úr Hafn­ar­firði voru einnig hand­teknir. Þre­menn­ing­arnir hafa allir játað að hafa staðið að sölu og dreif­ingu á hund­ruðum lítra af landa á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Yngsti mað­ur­inn er tæp­lega tví­tugur en sá elsti er um þrí­tugt.

Síðdegis í gær fór lög­reglan í V-Land­eyjar þegar grunur beind­ist að höf­uð­paurnum sem býr þar í sveit. í mjólk­ur­húsi hans fund­ust á annan tug plast­t­unna, tvö eim­ing­ar­tæki, hund­ruð kílóa af sykri og fleira tengt brugg­starf­semi. Lögregla hellti niður um 600 lítrum af óeim­uðu bruggi, svoköll­uðum gambra, og lagði hald á um 100 lítra af til­búnum landa sem brugg­ar­inn sagði vera um 45 pró­sent að styrk­leika. Fyrir utan nokkrar kýr og hænsni virt­ist mað­ur­inn ein­göngu hafa stundað brugg­starf­semi í stórum stíl. Hann hafði meðal ann­ars komið upp gríð­ar­stórum en hag­an­lega smíð­uðum skáp með stóru loki yfir fyrir allt bruggið.

Lög­reglan hefur því lagt hald á um tvö hund­ruð lítra af óeim­uðum landa á síð­ustu dögum en játn­ingar liggja fyrir um sölu á hund­ruðum lítra til við­bótar. Ljóst er að dreif­ing­ar­að­il­arnir hafa stundað að bjóða ung­lingum áfengi til sölu. Brugg­ar­inn í V-Land­eyjum seldi dreif­ing­ar­að­il­unum lítr­ann á 750-1000 krónur, allt eftir því hve mikið magn var keypt í einu, en sölu­menn­irnir seldu við­skipta­vinum sínum land­ann á 1.500 krónur lítr­ann. Mál þetta er talið full upp­lýst. Það var unnið í sam­ein­ingu af rann­sókn­ar­deild lög­regl­unnar í Reykja­vík ásamt lög­reglu í Hafn­ar­firði og á Hvols­velli. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina