Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Reiði geti orsakað krabbamein: „Önnur plantan stóð keik og falleg, hin var með lafandi gul blöð“

Reiði geti orsakað krabbamein: „Önnur plantan stóð keik og falleg, hin var með lafandi gul blöð“
Sig­ur­björg Jóns­dóttir.

Fyrr­ver­andi dag­mamman, Sig­ur­björg Jóns­dóttir, skrifar grein sem ber yfir­skirft­ina: Getur reiði valdið veik­indum? 

Og Sig­ur­björg er með svarið:

„Svarið við spurn­ing­unni hér fyrir ofan er já. Reiði eða almennt nei­kvæð orka.

Nú kemur örugg­lega kurr frá ein­hverjum sem sitja í sinni fáfræði. En það er allt í lagi. Þeir átta sig lík­lega ekki á því að við, menn og dýr og allt í kringum okkur er upp­byggt úr orku.

Góðar upp­lýs­ingar um þetta hægt að finna á net­inu.“

Hún bætir því við að „fræg­asta dæmið sem ég man eftir er þegar Geir H. Harde bað Guð að blessa Ísland og svo allar hörm­ung­arnar sem á eftir komu. Hann, bless­aður karl­inn fékk svo krabba­mein í kjöl­farið.

Ég held að við vitum öll, eða alla­vega mörg okkar að illt umtal, hatur, reiði og almenn nei­kvæðni er heilsu­spill­andi. Dæmin sem sanna það eru orðin mörg. Oft er það krabba­mein sem eru afleið­ing erf­ið­leika og nei­kvæðni. Ég tek það fram að ég er eng­inn sér­fræð­ingur, en ég hef gaman af að lesa mér til um ýmis­legt áhuga­vert með hjálp Googla vinar míns.

Ekki er allt sem frá honum kemur heil­agur sann­leikur en þá er það bara að vega og meta hvað er rétt og hvað ekki.“

Hún færir í tal að „eitt af því sem ég nefni gjarnan í þessu sam­hengi er til­raun sem skólakrakkar í Dubai gerðu í einni IKEA versl­un­inni þarna. Krakk­arnir fengu tvær alveg eins plöntur úr búð­inni og voru plönt­urnar settar í eins kassa. Gekk til­raunin út á að sjá hvort ein­hver munur yrði á plönt­unum ef talað væri fal­lega við aðra en illa við hina. Tilraun krakk­anna sner­ist um að kanna hvort það hafi sýni­leg áhrif, ef ein­stak­lingur er lagður í ein­elti (bullying). Að 30 dögum liðnum mátti sjá stóran mun á plönt­unum. Önnur plantan stóð keik og fal­leg, hin var með lafandi gul blöð. Ég þarf ekki að segja ykkur hvor plantan fékk hvaða með­ferð. Hér er linkur á til­raun­ina ef þið viljið sjá þetta með eigin augum: https://www.youtube.com/watch?v=Yx6UgfQreYY

Hún nefnir einnig þetta:

„Svo hnaut ég um alveg frá­bæra rann­sókn sem Sigríður Hall­dórs­dóttir pró­fessor við Háskól­ann á Akureyri stóð að. Rann­sóknin, sem var sam­nor­ræn, átti fyrst að vera þver­fag­leg rann­sókn á eft­ir­stöðvum þján­ingu kvenna vegna brjóstakrabba­meins. Konur í íslenska úrtak­inu sögðu að brjóstakrabba­meinið var ekki neitt, það var ekki þján­ing míns lífs. Það var alvar­legt ofbeldi í nánu sam­bandi sem þær höfðu upp­lifað. Þarna lýsir Sigríður mjög vel ömur­legum veru­leika þeirra kvenna sem lent hafa í heim­il­is­of­beldi sem á íslensku er nefnt nánd­ar­hryðju­verk. Ég hvet ykkur til að hlusta á eða lesa þennan góða pistil­inn hér á eftir. Umfjöll­unin hefst 14:44: https://www.ruv.is/frettir/innlent/2023-02-23-islenskar-konur-halda-ofbeldi-af-hendi-maka-leyndu-ut-aevina?fbclid=IwZXh0bgNhZW0CMTAAAR03dXyxFXWzdpmofUHwxQ9ryUNZbT7xBGSjaL-85g6pvytP6qKq9qckziM_aem_AaZR8Ianiako0N9jTZ6VbpeTYXvEEV6u6uNPFsF69IlKpNMmzCUO8YLFYIo6Broe829wn2xkEdGiCgYFGA7wFSIm

Sig­ur­björg segir að „rann­sókn Sigríðar heitir: In the jaws of death sem er einmitt lýsandi fyrir þetta alvar­lega og oft lífs­hættu­lega falda ofbeldi sem allt of margar konur verða fyrir. Eins og fram kemur í grein­inni eru margar þess­ara kvenna orðnar veikar eftir sam­búð­ina.

Annað alvar­legt sem ég vil benda á, er líðan barna sem búa við þessar aðstæður. Ég veit ekki til þess að þetta hafi verið rann­sakað en ég veit um 2 börn úr fjöl­skyldu þar sem svona falið ofbeldi og mikil reiði við­gekkst. Þar urðu bæði börnin alvar­lega veik og annað þeirra fékk alvar­legt krabba­mein tvisvar sinnum fyrir 7 ára aldur. Krabba­meinið tók sig upp aftur og aftur hjá barn­inu þangað til móð­ir­inni tókst að flýja heim­ilið. Þetta finnst mér vera umhugs­un­ar­efni og ég er ekki viss um að t.d. heil­brigð­is­starfs­fólk átti sig á þess­ari teng­ingu.“

Að lokum nefnir Sig­ur­björg að hún vilji „vekja athygli á þessu erf­iða og lík­lega allt of algenga, vel falda vanda­máli. Til ykkar sem eru í þess­ari erf­iðu stöðu, þó það sé erfitt að flýja/koma sér í burtu…… Forðið ykkur, mögu­lega liggur lífið við! Það eru margar “ofbeldis síður” á facebook þar sem hægt er að fá stuðn­ing og góð ráð. Kvenna­at­hvarfið, Stígamót og Bjark­ar­hlíð eru mjög hjálp­leg í svona aðstæðum. Hjálp­ar­sími Rauða­kross­ins er líka með nafn­laust net­spjall fyrir allan aldur. Svo er líka alltaf hægt að hringja í 112, neyð­ar­lín­una. Bæði fyrir konur og karla. Kvenna­at­hvarfið, er bæði í Rvk og Akureyri, Sími: 561 1205 https://kvennaathvarf.is/sp-sv/ Stígamót, berj­ast gegn kyn­ferð­is­of­beldi og veita aðstoð fyrir fólk sem hefur verið beitt kyn­ferð­is­of­beldi. Sími: 562-6868. https://stigamot.is/um-stigamot/ Bjark­ar­hlíð, er víða um land og er ráð­gjöf fyrir þolendur ofbeldis. Sími: 553- 3000 https://bjarkarhlid.is/ 553 3000.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina