Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Daníel leitaði á bráðamóttöku eftir „ofbeldi“ lögreglu: „Yfirvöld eru orðin hrædd“

Daníel leitaði á bráðamóttöku eftir „ofbeldi“ lögreglu: „Yfirvöld eru orðin hrædd“
Daníel Þór

Einn þeirra mót­mæl­enda sem fékk á sig piparúða í aðgerð lög­regl­unnar fyrir utan Skugga­sund 3 á dög­unum segir fram­göngu lög­regl­unnar hafa farið „algjör­lega út fyrir allt með­al­hóf.“

Mótmælin, eða öllu heldur við­brögð lög­reglu vegna þeirra, hafa vakið athygli út fyrir land­stein­anna en til að mynda birti kat­arski frétta­mið­ill­inn Al Jazeera mynd­skeið frá mót­mæl­unum á Instagram-síðu sinni.

Daníel Þór Bjarna­son er einn af þeim mót­mæl­endum sem fékk á sig piparúða frá lög­regl­unni á föstu­dags­morgun. Hópur hafði safn­ast fyrir utan Skugga­sund 3 þar sem fyr­ir­hug­aður var rík­is­stjórn­ar­fundur, til að mót­mæla aðgerð­ar­leysi yfir­valda varð­andi þjóð­ar­morðið á Gaza. Neitaði hóp­ur­inn að færa sig svo bif­reiðar ráð­herr­anna kæmust sína leið og lögð­ust sum þeirra á göt­una. Þegar mót­mæl­endur hlýddu ekki fyr­ir­mælum lög­reglu um að færa sig, ýtti lög­reglan við mót­mæl­end­unum og spreyj­uðu ítrekað piparúða í and­lit þeirra. Mannlíf ræddi við Daníel Þór um fram­göngu lög­regl­unnar en hann er einn af þeim þremur ein­stak­lingum sem leit­uðu til bráða­mót­tök­unnar eftir mót­mælin.

Segðu mér, þú fékkst piparúða í and­litið ekki satt?

„Jú mikið rétt. Í tvígang verð ég fyrir piparúða af höndum lög­reglu. Í bæði skiptin er ég að gera lítið annað en að taka upp á sím­ann hjá mér og biðla til lög­reglu að tala við fólk í stað þess að beita það ofbeldi. Nota orðin sín og tala við þá sem eru að nýta stjórn­ar­skrá varða rétt sinn til að mót­mæla og segja sína skoðun.“

Hvað finnst þér um fram­göngu lög­regl­unnar?

„Fram­ganga lög­reglu er algjör­lega út fyrir allt með­al­hóf sem þeim er skylt að fylgja hví­vetna í sínum störfum. Þannig að auð­vitað er ég ósáttur við þeirra vinnu­brögð í þessu máli og það væri veru­legt áhyggju­efni fyrir lýð­ræðið ef lög­regla ætlar að halda áfram að beita þá ofbeldi er nýta rétt sinn til að mót­mæla. Það segir sig sjálf.“

Hvernig líður þér núna?

„Mér líður alls­konar, upp og niður. Einhver blanda af reiði, en einnig sýnir þetta mér að yfir­völd eru orðin hrædd, ann­ars væru þau ekki að reyna að þagga niður í þeim sem að láta skoðun sína í ljós.“

Mun þetta draga úr bar­áttu­anda þínum?

„Þvert á móti, var mættur á Aust­ur­völl í gær og mun halda áfram að mæta og segja mína skoðun og styðja Frjálsa Palest­ínu.“

Dóms­mála­ráð­herra hefur sagt að lög­reglan hafi ekki beitt óþarfa valdi, ertu sam­mála því?

„Þau ummæli dæma sig sjálf.“

Nú sagði yfir­lög­reglu­stjóri í við­tali við RÚV í hádeg­inu í gær að það sem mót­mæl­endur gerðu, að koma í veg fyrir að ráð­herra kæmust ferða sinna, mætti túlka sem ofbeldi. Ertu sam­mála þeim orðum?

„Aftur dæma þessi orð sig sjálf. Ég held að allir þeir sem hafa eitt­hvað almennt vit átti sig á því að það að leggj­ast í jörð­ina er frið­sæl leið til að mót­mæla.“

Er eitt­hvað sem þú vilt koma á fram­færi að lokum? 

„Ég von­ast til þess að sam­fé­lagið okkar átti sig á alvar­leika þess­ara árása á almenna borg­ara. Þessar árásir eru árásir á lýð­ræðið í land­inu. Lifi frjáls Palest­ína.“

Hér má sjá mynd­band frá mót­mæl­unum sem Daníel Þór tók.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Mótmæli

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi