Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fiskikóngurinn birti kennitölu fyrrum starfsmanns síns: „Hef ekki rifbeinsbrotið neinn“

Fiskikóngurinn birti kennitölu fyrrum starfsmanns síns: „Hef ekki rifbeinsbrotið neinn“

Kristján Berg hefur ekki áhyggjur þó hann hafi birt kenni­tölu fyrrum starfs­manns síns í Facebook-færslu sem hann skrif­aði í gær þar sem hann kvartar yfir vafasömum lækn­is­vott­orðum starfs­manna. Þá þver­tekur hann fyrir ásökun um að hafa rif­beins­brotið fyrr­ver­andi starfs­mann sinn.

Fiski­kóng­ur­inn Kristján Berg fór mik­inn á Facebook í gær þar sem hann kvart­aði yfir lækn­is­vott­orðum starfs­mann sem ná akkurat yfir upp­sagn­ar­frest­inn en hann segir að hægt sé að panta vott­orð frá læknum fyrir nán­ast hverju sem er. Með færsl­unni birti Kristján Berg lækn­is­vott­orð fyrrum starfs­manns síns en gerir til­raun til að hylja kenni­tölu við­kom­andi. Það tekst hins vegar ekki að fullu en hægt er að sjá kenni­töl­una í gegnum svarta lit­inn sem búið er að setja yfir töl­urnar. Í sam­tali við Mannlíf seg­ist Kristján Berg ekki hafa áhyggjur um kæru vegna brots á per­sónu­vernd­ar­lögum.

„Nei. Óttast það ekki. Ef svo verður þá tækla ég það þegar og ef til þess kemur,“ sagði Kristján Berg við Mannlíf.

Í athuga­semd við frétt DV um málið, kom maður nokkur með alvar­legar ásökun: „Nú skal ég segja ykkur hvernig þetta var með mig, fiski­kóng­ur­inn sjálfur braut í mér 2 rif­bein og þurfti ég að vera frá vinnu út af því ( að sjálf­sögðu,, ég kom með vottor 1.03,, en ekki 4.03 eins og hann segir , á til afrit af þessu vott­orði, já þetta með ótíma­bundið vott­orð er eifald­lega út af því að það er ekki vitað hvenar þetta lag­ast,búinn að fara í nokkrar mynda­tökur út af þessu, enda ekki von að hann skylji svo flókið mál hann segir mér upp eftir að ég kem með vott­orðið og neitar að borga launin, ekki í fyrsta skipti sem það hefur gerst.“

Aðspurður þver­tekur Kristján fyrir þessar ásak­anir og segir þetta til­raun til fjár­kúg­unar. „Hef ekki rif­beins­brotið neinn, þannig að þetta er upp­spuni til þess að reyna að kúga mig og mitt fyr­ir­tæki. Ef þessi ein­stak­lingur telur mig hafa brotið á sér, tala nú ekki um að bein­brjóta sig, þá höfum við lög­reglu, lög­fræð­inga og gott dóms­kerfi til þess að tækla svo­leiðis. Við­kom­andi er vel­komið að fara þá leið og þá gefst mér tæki­færi á að verja mig fyrir slíkum ásök­unum sem eru algert bull. Dóm­stólar dæma svo í mál­inu. Annars er þessu ekki svara­vert. Hótanir og fjár­kúg­anir [bíta, inn­skot blaða­manns] ekki á mig. Er sterk­ari en það.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina