Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Merkjasending bresks togara olli banaslysi í Austurstræti: „Breyttust hljóðin í þunga stunu“

Merkjasending bresks togara olli banaslysi í Austurstræti: „Breyttust hljóðin í þunga stunu“
Breskur tog­ari frá stríðs­ár­unum. Athugið, myndin teng­ist frétt­inni aðeins óbeint. Mynd: Trausti Hafsteinsson

Sjó­mað­ur­inn Ásmundur Elíasson gekk eftir Aust­ur­stræti á sunnu­dags­kvöldi ásamt félaga sínum, óvit­andi að sek­úndu síðar hefði hann gengið síð­ustu skrefin í þessu lífi. Veturinn áður hafði hann brunnið illa þegar eldur kom upp í Detti­fossi í New York en þar hafði hann starfað sem kynd­ari.

Sá sorg­legi atburður varð í byrjun mars árið 1943, að banaslys varð í Aust­ur­stræti í Reykja­vík þegar sprengju­hylki sem fylgdi merkja­ljósi sem breskur tog­ari hafði skotið á loft, féll á Ásmund Elíasson, tveggja barna föð­urs, ætt­aðan frá Mjó­a­firði fyrir austan. Mildi var að ekki hlaust af annað banaslys þegar annað sprengju­hylki féll á barna­leik­völl hálf­tíma síðar.

Ásmundur Elíasson

Alþýðu­blaðið sagði svo frá banaslys­inu:

Banaslys í Aust­ur­stræti af völdum sprengju­hylkis

Tvö sprengju­hylki féllu í Reykja­vík á sunnu­dags­kvöldið með hálf­tíma milli­bili

Annað í Aust­ur­stræti og hitt á barna­leik­völl við Fram­nes­veg.

ÁSMUNDUR ELÍASSON, sjó­maður Breiða­bliki á Sel­tjarn­ar­nesi, beið bana af völdum sprengju­hylkis, sem féll í Aust­ur­stræti klukkan 8 á sunnu­dags­kvöld. Annað sprengju­hylki mun hafa fallið um 30 mín­útum síðar á barna­leik­völl vestur við Fram­nes­veg. Reif það upp mold og grjót, sem kastað­ist um nágrennið. Samkvæmt upp­lýs­ingum sem Alþýðu­blað­inu bár­ust í gær frá her­stjórn­inni var, að minnsta kosti í fyrra til­fell­inu, um að ræða hylki utan af ljós­sprengju, sem brezkur tog­ari, skammt frá landi, hefði skotið.

Slysið í Aust­ur­stræti. Þessum atburðum lýsir rann­sókn­ar­lög­reglan þannig, sam­kvæmt vitn­is­burðum sjón­ar­votta: Klukkan rúm­lega 8 á sunnu­dags­kvöld kom maður á lög­reglu­stöð­ina og til­kynnti,. að hann hefði heyrt Skot­hvell og séð um leið mann falla á göt­una í Aust­ur­stræti, milli bókaverzlunar Ísa­foldar og Havana. Þegar lög­reglan kom á vett­vang var búið að taka mann­inn og töldu þeir, sem höfðu séð hann ,að hann hefði slasazt mikið. Sjón­ar­vottur hefir lýst atburð­unum þannig: „Eg var einn á gangi í Aust­ur­stræti um klukkan 8. Gekk ég eftir gang­stétt­inni, sunnan megin við göt­una. Þegar ég var kom­inn á móts við Aust­ur­stræti 6 sá ég brezka sjóliða, sem gengu á undan mér. Bentu þeir upp í loftið framundan sér og sögðu eitt­hvað á þá leið: „Hvaða ljós er þetta“. Leit ég þá strax upp og sá þá mjög skært, lítið ljós, sem bar yfir bif­reiða­stöð Stein­dórs. í sama mund heyrði ég þyt í loft­inu og heyrði um leið hvell af spreng­ingu rétt fyrir aftan mig. Eg leit jafn skjótt við og sá að maður var að falla á gang­stétt­ina um það bil 6 metra frá mér. Umhverfis mann­inn var hvít­leitur púð­ur­reykur. Maðurinn hljóð­aði sáran um leið og hann féll, en þegar hann var fall­inn, breytt­ust hljóðin í þunga stunu. Þetta gerð­ist allt mjög skjót­lega. Bifreið, sem kom eftir göt­unni var stöðvuð og flutti hún mann­inn í sjúkra­hús“. Þá hefir maður sá, sem var í fylgd með Ásmundi Elí­assyni gefið skýrslu. Voru þeir hann og Ásmundur sam­hliða og gekk Ásmundur nær gang­stétt­inni. Allt í einu heyrði mað­ur­inn snöggan þyt og um leið gaus upp reykur all­mik­ill, svo að hann sá ekki Ásmund í svip, fylgdi reyknum hark all­mikið og ólykt. Þegar reyk­ur­inn minnk­aði sá hann að Ásmundur var fall­inn og að hann gerði ekki til­raun til að standa upp. Virtist hann vera mikið særður. Var hann síðan fluttur í Landa­kots­spít­ala. Það skal tekið fram að þetta sprengju­hylki braut úr gang­stétt­inni í Aust­ur­stræti og gat á rúðu í næsta húsi. Sáust þessi verksum­merki í gær á göt­unni. Hern­að­ar­yf­ir­völdin tóku sprengju­hylkið til rann­sóknar. Var það 25 cm. langt og 3 tommur á þykt.

Ásmundur Elíasson var mikið slas­aður. Lést hann í sjúkra­hús­inu í gær­morgun. Ásmundur mun hafa verið 38 ára að aldri, kvæntur og átti 2 korn­ung börn. Hann var ætt­aður frá Norð­firði. Ásmundur var kyndarí á Detti­fossi, fékk hann all mikil bruna­sár, þegar eld­ur­inn kom upp í skip­inu í New York í vetur.

Sprengju­hylkið sem féll á barna­leik­völl­inn.

Þá féll og annað sprengju­hylki nokkru síðar á barna­leik­völl, sem er við Fram­nes­veg. í gær kom maður til lög­regl­unnar og gaf henni eft­ir­far­andi skýrslu: ,,Á sunnu­dags­kvöldið klukkan um 8,30 var ég, ásamt konu minni á gangi vestur Fram­nes­veg. Þegar við vorum komin að gatna­mótum Fram­nes­vegar og Sellands­stígs heyrðum við skot­hvell, sem virt­ist koma frá sjónum. Við héldum áfram og gáfum þessu ekki neinar gætur. En þegar við höfðum gengið um 50 metra heyrðum. við hvin í loft­inu og sáum að eitt­hvað féll á barna­leik­völl þarna við göt­una. Rótaðist við það upp mold og grjót og dundí hvort tveggja á næstu húsum. Í gær var grafið í leik­vell­inum eftir hylk­inu og fannst það svo djúpt niðri, að maður stóð í brjóst í hol­unni! Brezki sendi­full­trú­inn gekk í gær á fund utan­rík­is­ráð­hérrá og tjáði honum harm sinn út af dauða­slys­inu í Aust­ur­stræti og vott­aði honum sam­hyggð sína og brezka flota­for­ingj­ans hér.

Þjóð­vilj­inn fjall­aði einnig um málið og útskýrði betur hvers konar sprengju­hylki var um að ræða. Hér er brot úr þeirri frétt:

Ljós­merki frá brezkum tog­ara verður Íslend­ing að bana

Slysið varð í Aust­ur­stræti á sunnu­dags­kvöldið

Um klukkan 8 í fyrra­kvöld féll hylki af merkja­ljósi (signal­flare) niður í Aust­ur­stræti, sprakk þar og slas­aði mann, sem var á ferð þar sem það kom niður, svo mjög að hann lézt á sjúkra­húsi í gær­morgun. Maður þe^si hét Ásmundur Elíasson, skip­verji á Detti­fossi. Hann var ætt­aður úr Mjó­a­firði, 38 ára, kvæntur og átti tvö börn. Ljósa­merki þessu var skotið af brezkum tog­ara. Hylkið mun hafa verið um 25 cm. langt. Þar sem það kom niður braut það skarð í gang­stétt­ina og fór brot úr því gegnum sýn­ing­ar­glugga skammt frá. Brezki sendi­full­trú­inn hér gékk í gær­morgun á fund utan­rík­is­mála­ráð­herra og lét í ljós sam­hryggð sína og brezka flota­for­ingj­ans út af atburði þessum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni