Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Björn Valur hjólar í Vinstri græna og formanninn: „Hann er ekki leiðtogi sem fólk ætlar að fylgja“

Björn Valur hjólar í Vinstri græna og formanninn: „Hann er ekki leiðtogi sem fólk ætlar að fylgja“
Björn Valur Gíslason Mynd: Trausti Hafsteinsson

Björn Valur Gíslason, skip­stjóri og fyrrum þing­maður og vara­for­maður Vinstri Grænna, segir að skipta þurfi út flestum þing­mönnum Vinstri grænna, svo hægt sé að blása nýju lífi í flokk­inn, sem nú mælist með sögu­lega lágt fylgi í skoð­ana­könn­unum og næðu ekki á þing ef kosið yrði í dag.

Björn Valur Gíslason var einn af gestum Silf­urs­ins í síð­asta þætt­inum fyrir sum­ar­frí en þar var stjórn­mála­vet­ur­inn gerður upp. Fór Björn Valur mik­inn og var afar gagn­rýn­inn á sinn gamla flokk.

„Flokk­ur­inn er í miklum vand­ræðum núna,“ segir hann. „Við vorum með fínan for­mann sem naut vin­sælda þvert á flokka og mik­ils trausts í sam­fé­lag­inu eins og komið hefur fram. Við eigum ágætan ráð­herra og slags­mála­hund í Svandísi,“ segir Björn en telur að með þessu sé hæft fólk innan flokks­ins upp­talið.

„Þessi tvö höfðu ekki mik­inn stuðn­ing úr bak­land­inu, hvorki frá flokks­mönnum og ekki úr for­ystu­sveit­inni og þá er ég að tala um þing­flokk og sveita­stjórn­ar­fólk,“ segir Björn Valur og heldur áfram. „Það er eng­inn að tala máli Vinstri grænna í dag,“ segir hann og segir að í raun hafi eng­inn talað máli Vinstri grænna að und­an­förnu.

Þá er Björn Valur síður en svo ánægður með Guðmund Inga Guð­brands­son, núver­andi for­mann flokks­ins.

„Nú lýtur flokk­ur­inn for­ystu vara­for­manns­ins fram að lands­fundi sem hefur þrátt fyrir sjö ára setu í rík­is­stjórn ein­hvern veg­inn ekki orðið að stjórn­mála­manni. Hann er ekki for­maður eða leið­togi sem fólk ætlar að fylgja,“ segir hann.

„Það sem ég myndi ráð­leggja þeim að gera er að halda í þessa einn, tvo, kannski þrjá sem eru brúk­legir til verka enn þá, hverjir sem það eru, sem kunna póli­tík og kunna að tala póli­tísku og hafa þessa seiglu sem þarf í rík­is­stjórn­ar­sam­starf,“ segir Björn Valur.

Og enn heldur hann áfram:

„Það þarf að halda í þetta fólk sem er í stjórn­málum og talar sem slíkt og hefur hegðað sér sem slíkt en hinu fólk­inu þarf ein­fald­lega að skipta út,“ segir hann og tekur fram að slíkt hafi verið gert áður. Nefnir hann sem dæmi að Sam­fylk­ingin hafi skipt um for­ystu eftir að hún beið afhroð í kosn­ingum fyrir átta árum síðan og hlaut 5,7 pró­senta fylgi.

„Þetta er ekki ný upp­finn­ing en þetta er það sem þarf að gera,“ segir Björn Valur.

Björn Valur fór síðan í stuttu máli yfir síð­ustu ár til að skýra betur út hvernig þróun Vinstri Grænna hefur verið.

„Síðan 2007 hafa sex stjórn­mála­flokkar myndað níu rík­is­stjórnir á Íslandi,“ segir hann og bendir á að Sam­fylk­ingin hafi á þessu tíma­bili átt sex for­menn og Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn hafi klofnað og Mið­flokk­ur­inn stofn­aður í kjöl­farið. Aukreitis hafi Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn klofnað og Viðreisn mynduð.

„Og af öllum þessum níu rík­is­stjórnum hefur engin þeirra staðið nema þær sem Vinstri hreyf­ingin grænt fram­boð hefur verið ann­að­hvort hryggjar­stykkið í eða leitt,“ segir Björn Valur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina