Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Þrettán ungliðahreyfingar fordæma útlendingafrumvarpið: „Höfum verulegar áhyggjur“

Þrettán ung­liða­hreyf­ingar á Íslandi for­dæma útlend­inga­frum­varp dóms­mála­ráð­herra.

Yfir­lýs­ing og umsögn þar sem 13 ung­liða­hreyf­ingar hafa for­dæmt útlend­inga­frum­varp dóms­mála­ráð­herra hefur verið brit á facebook. Þar krefj­ast ung­liða­hreyf­ing­arnar þess að „allar laga­breyt­ingar sem standa til skulu vera gerðar með mann­rétt­indi að leið­ar­ljósi.“

Í yfir­lýs­ing­unni er farið gaum­gæfi­lega yfir frum­varpið og það rifið í sundur ef svo má að orði kom­ast. Þá er bent á að fjöldi mann­rétt­inda­sam­taka á Íslandi hafi öllu for­dæmt frum­varpið eins og það leggur sig.

Hér má sjá yfir­lýs­ing­una í heild: 

Enn og aftur höfum við sem ung­menni í land­inu veru­legar áhyggjur af áfram­hald­andi nei­kvæðri þróun núver­andi rík­is­stjórnar í mál­efnum útlend­inga. Við krefj­umst þess að allar laga­breyt­ingar sem standa til skulu vera gerðar með mann­rétt­indi að leið­ar­ljósi.

Við sem ung­menni á Íslandi for­dæmum frum­varp um breyt­ingar á útlend­inga­lögum sem liggur fyrir Alþingi. 

Þann 4. júní 2024 var útlend­inga­frum­varp Guðrúnar Haf­steins­dóttur, dóms­mála­ráð­herra, afgreitt á fundi Alls­herjar- og mennta­mála­nefndar. Þriðja umræða um það mun svo fara fram á næstu dögum áður en þingið fer í frí. Mann­rétt­inda­sam­tök á borð við Rauða kross­inn á Íslandi, Barna­heill, UNICEF á Íslandi, Umboðs­mann barna, ÖBÍ, Mann­rétt­inda­skrif­stofu Íslands og Íslands­deild Amnesty International hafa for­dæmt frum­varpið eins og það leggur sig. 

Frum­varpið leggur til að fækkað verði nefnd­ar­mönnum frá sjö í þrjá í kæru­nefnd útlend­inga­mála. Það hefur þær afleið­ingar að meira álag er sett á nefnd­ar­menn sem veldur minni skil­virkni og lengri afgreiðslu­tíma dval­ar­leyfa. Í dag sitja full­trúar frá Mann­rétt­inda­skrif­stofu Reykja­víkur og Mann­rétt­inda­stofnun Háskóla Íslands í nefnd­inni. Með laga­breyt­ingum myndi dóms­mála­ráð­herra skipa þrjá full­trúa í nefnd­ina og ekki er tryggt að mis­mun­andi og fjöl­breytt sjón­ar­horn og þekk­ing á mála­flokknum komi að borð­inu. 

Virki­lega erfitt væri fyrir flótta­fólk að stand­ast kröfur um fjöl­skyldu­sam­ein­ingu sam­kvæmt frum­varp­inu. Í 6. og 7. gr. frum­varps­ins er lagt til að nán­ustu aðstendur útlend­inga, sem hafa fengið við­bót­ar­vernd eða dval­ar­leyfi á grund­velli mannúðar­sjónar­miða hér á landi, öðlist ekki rétt til fjölskyldu­sam­ein­ingar fyrr en eftir a.m.k. eitt ár og full­nægir eft­ir­far­andi skil­yrðum: hefur verið virkur þátttak­andi á vinnu­mark­aði í átta mánuði og upp­fyllir skil­yrði um trygga fram­færslu, skil­yrði um íslenskukunnáttu og hefur til umráða íbúðarhúsnæði fyrir aðstand­endur sem sótt er um fjölskyldu­sam­ein­ing­ar­leyfi fyrir. Einnig er vert að taka fram að fjöldi leyfa fyrir fjöl­skyldu­sam­ein­ingar fara hækk­andi. Þó eru það ein­göngu rúm­lega 5% leyf­anna frá 2013 sem eru sam­ein­ingar á vegum flótta­fólks og mann­úð­ar­leyf­is­hafa. Samt sem áður sjá íslensk stjórn­völd þörf  á að setja sér­reglur fyrir fólk á flótta þegar kemur að fjöl­skyldu­sam­ein­ingum. 

Fjöl­skyldu­sam­ein­ingar eru gríð­ar­lega mik­il­vægar, sér­stak­lega fyrir börn. Aðskiln­aður barna frá fjöl­skyldu sinni getur haft alvar­leg áhrif á líf og þroska barns­ins. Barna­sátt­máli Sam­ein­uðu þjóð­anna er lög­bund­inn á Íslandi og stjórn­völdum ber laga­leg skylda til að fylgja honum. Stjórn­völd eiga að setja í for­gang það sem barn­inu er fyrir bestu (3. gr.) og virða og tryggja öllum börnum þau rétt­indi sem kveðið er á um í Barna­sátt­mál­anum án mis­mun­unar gegn þeim né for­eldra þeirra (2.gr.). Í 7. gr. sátt­mál­ans er kveðið á um rétt barns á því að þekkja og njóta umönn­unar for­eldra sinna. Samkvæmt 10. gr. Barna­sátt­mál­ans kemur fram að stjórn­völdum beri að afgreiða beiðni barns eða for­eldris þess um að koma til eða fara frá aðildarríki svo þau geta haldið sam­bandi og verið saman. Barn sem á for­eldra búsetta í mis­mun­andi ríkjum á rétt á því að við­halda per­sónu­legum tengslum og beinu sam­bandi við báða for­eldra með reglu­bundnum hætti. Íslensk stjórn­völd eru langt frá því að upp­fylla þessar ein­földu kröfur.

Í frum­varp­inu eru lagðar til breyt­ingar sem stofna rétt barna til að sam­ein­ast fjöl­skyldu sinni í hættu. Annars vegar er lagt til í frum­varp­inu að þau sem hafi sótt um eða verið veitt vernd í öðrum aðild­ar­ríkjum Schengen-sam­starfs­ins geti ekki fengið umsókn sína um vernd teknar til efn­is­með­ferðar hér á landi á grund­velli „sér­stakra tengsla“ þrátt fyrir að eiga fjöl­skyldu­með­lim sem hefur hér dval­ar­leyfi. Eins og greint var frá fyrir ofan er lagt til að ein­stak­lingar sem hafa hlotið alþjóð­lega vernd á grund­velli mann­úð­ar­sjón­ar­miða eða við­bót­ar­vernd þurfa að upp­fylla ákveðnar kröfu sem er nær ómögu­legt fyrir mörg að gera. 

„Þetta mun aug­ljós­lega geta haft þau áhrif að börn verði fjarri for­eldrum sínum í langvar­inn tíma áður en hægt yrði að leggja fram umsókn um slíka fjöl­skyldu­sam­ein­ingu. Oft yrði um það að ræða að börnin stæðu frammi fyrir sömu hættu í heima­rík­inu yfir þann bið­tíma sem var ástæðan fyrir flótta for­eldr­is­ins. Enn fremur er ljóst að það getur haft slæmar afleið­ingar fyrir heil­brigði, þroska og öryggi barna að vera án umsjár for­eldra sinna til langs tíma.“

Umsögn Umboðs­mann barna um frum­varpið

Þessar laga­breyt­ingar myndu valda lengri bið­tíma barna til að sam­ein­ast fjöl­skyldu sinni. Það er okkar mat að umrætt frum­varp virði ekki ofan­greindar greinar sátt­mál­ans og hugi ekki að því sem barn­inu er fyrir bestu.

Í frum­varp­inu er lagt til að stytta dval­ar­leyfi ein­stak­linga sem hljóta alþjóð­lega vernd veru­lega. Dval­ar­leyfi á grund­velli 1.mgr 37.gr, sem veitir við­kom­andi stöðu flótta­manns, væri stytt í þrjú ár í stað fjög­urra ára, dval­ar­leyfi á grund­velli 2.mgr. 37.gr, sem veitir við­kom­andi við­bót­ar­vernd vegna almenns ástands í heima­ríki, verði tvö ár í stað fjög­urra ára, og dval­ar­leyfi á grund­velli mann­úð­ar­sjón­ar­miða verði til eins árs í stað tveggja ára. Að stytta gild­is­tíma dval­ar­leyfa mun aðeins minnka skil­virkni og setja meira álag á stjórn­völd og Útlend­inga­stofnun vegna fjölgun umsókna um end­ur­nýjun á leyfi.

Vert er að hafa í huga að ein­stak­lingar flýja ekki aðeins land sitt vegna stríðs­á­taka, heldur einnig vegna lofts­lags­á­hrifa, ofsókna vegna trú­ar­bragða, kyn­hneigðar og kyns svo eitt­hvað sé nefnt. Á heims­vísu neyð­ast stúlkur og konur til að flýja heima­land sitt vegna ótta við lim­lest­ingar, þvinguð hjóna­bönd og kyn­bundið ofbeldi. Lög um alþjóð­lega vernd þurfa að taka til­lit til mis­mun­andi aðstæður ein­stak­linga.

Hröðun málsmeð­ferð­artíma og lækkun kostn­aðar má ekki koma niður á grund­vall­arréttindum ein­stak­linga. 

Und­ir­rituð félög krefj­ast þess að ný útlend­inga­lög verða samin í sam­ráði við sér­fræð­inga í mála­flokknum, mann­rétt­inda­sam­tök og hags­muna­að­ila. Lög um alþjóð­lega vernd verða að vera gerð með mann­rétt­indi að leið­ar­ljósi.

MANNRÉTTINDI YFIR PÓLITÍK 

  • Ungheill, ung­menna­ráð Barna­heilla
  • Q-félag hinsegin stúd­enta
  • Röskva- sam­tök félags­hyggju­fólks við Háskóla Íslands
  • Ung­liða­hreyf­ing Íslands­deildar Amnesty International
  • Háskóla­hreyf­ing Amnesty
  • Femínista­fé­lag Háskóla Íslands
  • Antiras­ist­arnir
  • Ungir umhverf­is­sinnar
  • Ung­menna­ráð UNICEF
  • Ung­menna­ráð UN women
  • Ungt jafn­að­ar­fólk
  • Ungir píratar
  • Ungir sós­í­alistar
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina