Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Séra Lárus er látinn

Séra Lárus er látinn
Séra Lárus Þor­valdur Guð­munds­son

Lárus Þor­valdur Guð­munds­son, fyrr­ver­andi pró­fastur í Holti í Önund­ar­firði og
sendi­ráðs­prestur er lát­inn. Séra Lárus þjón­aði Flat­eyr­ingum og öðrum Önfirð­ingum frá árinu 1963 til 1988. Lárus fædd­ist á Ísafirði 16. maí 1933. Hann lést þann 4. júní
síð­ast­lið­inn, 91 árs að aldri.
Á náms­árum sínum starf­aði Lárus sem fram­kvæmda­stjóri Alþýðu­flokks­ins.
Hann var vígður til prestsárið 1963 og skip­aður sókn­ar­prestur í Holts­presta­kalli í Önund­ar­firði sama ár. Hann varð pró­fastur í Ísa­fjarð­ar­pró­fasts­dæmi árið 1978.

Lárus starf­aði ötul­lega að æsku­lýðs­málum í hér­aði sínu. Hann rak um ára­bil sum­ar­búðir á Núpi í Dýra­firði og í Holti.
Lárus var skáti og stofn­aði skáta­fé­lagið Fram­herja á Flateyri ásamt Emil Hjart­ar­syni, kenn­ara og seinna skóla­stjóra, og fleirum. Hann var einn stofn­enda útgerð­ar­fé­lags­ins Hjálms hf. á Flateyri.

Lárus var fram­sýnn og snöggur að til­einka sér nútíma­tækni. Hann átti bæði flug­vél og bát og  not­aði þau far­ar­tæki gjarnan í emb­ætt­is­störfum sínum Í Holti.
Hann var mik­ill úti­vist­ar­maður og fór gjarnan á göngu­skíðum um fjöll, dali og sjó til þess að kom­ast til sinna starfa.Hann ferð­að­ist mikið og háaldr­aður gisti hann gjarnan í göngu­tjaldi og ástund­aði hreyf­ingu. Barna­barn hans, Þor­valdur Sig­ur­björn Helgason, minn­ist hans á Facebook.

„Hann var séntil­maður fram í fing­ur­góma, alltaf óað­finn­an­lega klæddur í three-piece-suit fram undir það síð­asta, prestur, sjó­maður og ævin­týra­maður sem flaug flug­vélum og sigldi hrað­bátum á Vest­fjörðum þar sem hann var þekktur undir nafn­inu Lalli sport,“ skrifar Þor­valdur Sig­ur­björn.

Árið 1989 varð hann sendi­ráðs­prestur í Kaup­manna­höfn og var umsjón­ar­maður í Húsi Jóns Sig­urðs­sonar. Lárus var sæmdur dannebr­ogs­orð­unni af Margréti Dana­drott­ingu fyrir störf sín í þágu Íslend­inga í Danmörku.
Eig­in­kona Lárusar var Sig­ur­veig Georgs­dóttir, fædd 1930 og dáin 2018. Þau hjónin eign­uð­ust þrjú börn, Georg, Özur og Ragn­heiði. Barna­börnin eru átta og barna­barna­börnin fimm. Lárus hélt þreki fram undir það síð­asta.

Útför Lárusar fer fram í Digra­nes­kirkju í Kópavogi föstu­dag­inn 28. júní kl. 13.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina