Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Helga Vala sér á eftir Þorbjörgu: „Grundvallarmálin fokin áður en í kosningarnar er komið“

Helga Vala sér á eftir Þorbjörgu: „Grundvallarmálin fokin áður en í kosningarnar er komið“
Helga Vala Helga­dóttir.

Lög­fræð­ing­ur­inn og stjórn­mála­konan Helga Vala Helga­dóttir er ekki sátt við flokk sinn, Sam­fylk­ing­una. Sér­stak­lega eftir að Þorbjörg Þor­valdsóttir ákvað að yfir­gefa Sam­fylk­ing­una.

Þorbjörg Þor­valds­dóttir.

„Ég hef ekki leng­ur áhuga á því að hlusta á flokks­fé­laga mína rétt­læta þessa stefnu­breyt­ingu og segja mér að hún hafi ekki orðið. En staðan er greini­lega sú að það virð­ist vera orðið of rót­tækt fyr­ir Sam­fylk­ing­una að tala skýrt fyr­ir mann­rétt­ind­um,“ sagði Þor­björg Þor­valds­dóttir í til­kynn­ingu á Face­book. Hún var afar ósátt við þing­flokk Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, er sat hjá í at­kvæða­greiðslu um út­lend­inga­frum­varpið er sam­þykkt var 14. júní síð­ast­lið­inn.

Helga Vala segir:

„Elsku besta bar­áttu­systir mín Þorbjörg Þor­valds­dóttir. Þetta er svo óend­an­lega ömur­legt bara, ég skil alls ekki neitt. Hvernig sér for­ysta Sam­fylk­ing­ar­innar fyrir sér að miðla málum í rík­is­stjórn þegar öll grund­vall­ar­málin eru fokin áður en í kosn­ing­arnar er komið? Hvernig getur flokkur sem fyrir örstuttu síðan stóð fyrir mannúð, jöfn­uði og sam­kennd með fólki í við­kvæmri stöðu sleppt því að taka afstöðu í svona grund­vall­ar­máli?“

Bætir þessu við:

Kristrún Frosta­dóttir.

„Hvað munum við þá sjá þegar flokk­ur­inn þarf raun­veru­lega að fara í mála­miðl­anir? Er for­ysta flokks­ins kannski bara með þessar skoð­anir? Að útlend­inga­stefna Mette Fred­rik­sen, sú harð­asta í norður- Evrópu, sem for­ystu­fólk flokks­ins gagn­rýndi harka­lega fyrir örstuttu síðan, sé kannski bara hin eina rétta stefna?“

Spyr:

Kristrún Frosta­dóttir og Mette Frederik­sen á góðri stundu.

„Hvernig getur sama fólk snú­ist svona í skoð­unum sínum? Hvað breytt­ist í heim­inum annað en að það varð stríð í næsta nágranni og fólk á flótta hefur aldrei verið fleira? Er stríðs­hrjáð fólk, sem leitar verndar á Íslandi í minni neyð en áður?“

Helga Vala spyr einnig að þessu:

Hussein Hussein fluttur með hörku úr hjóla­stól og inn í bíl í skugga nætur.

Telur þing­fólk sem sat hjá að rétt­læt­an­legt sé að íþyngja Útlend­inga­stofnun með til­hæfu­lausum umsóknum um end­ur­nýjun dval­ar­leyfa þegar stríð geysar enn sem fyrr víða um heim svo málin safn­ast enn hraðar upp á borðum Útlend­inga­stofn­unar? Telur hjá­setu­fólk að fólk sem fengið hefur vernd verði betri borg­arar hér á landi með því að fá að bíða í ára­tug eftir börnum sínum og mökum og var það þess vegna sem það sat hjá í atkvæða­greiðsl­unni því það gat ekki tekið afstöðu gegn þeirri aðgerð og öllum hinum.“

Kristín Völ­und­ar­dóttir, for­stjóri Útlend­inga­stofn­unar.

Segir að lokum:

„Sam­fylk­ingin er fátæk­ari án bar­áttu­kon­unnar Þor­bjargar Þor­valds­dóttur.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina