Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Segir Ísland standa á tímamótum: „Nú á að skera af fjallkonunni brjóstin, fjöllin og flytja burt“

Segir Ísland standa á tímamótum: „Nú á að skera af fjallkonunni brjóstin, fjöllin og flytja burt“
Steinunn Ólína Þor­steins­dóttir Mynd: Facebook

Steinunn Ólína Þor­steins­dóttir skrif­aði Facebook-færslu í gær sem vakið hefur gríð­ar­lega athygli en umræðu­efnið er Fjall­konan, nú og þá.

„17.júní 2024

Bókagjöf rík­is­stjórn­ar­innar, Fjall­konan, er tím­anna tákn. Hand­verkið er fag­urt en upp­á­tækið allt, hold­gerv­ingur hræsni og lyga. Fjall­konan er fangi í kaup­höll rík­i­s­tjórnar Íslands og hana skal nú hluta í sundur og selja í ánauð.“ Þannig hefst færsla leikkon­unnar og fyrrum for­seta­fram­bjóð­and­ann Stein­unnar Ólínu Þor­steins­dóttur. Og heldur svo áfram:

„Ég þarf ekki að segja ykkur neitt um kven­leik­ann. Ekkert um það hvers konur eru megn­ugar, hvað hinir kven­legu kraftar geta áorkað. Upp­spretta lífs og og þar með allrar sköp­unnar. Fjall­konan er kven­leg tákn­mynd lands­ins, tákn­mynd móð­ur­innar sem alla fæðir og alla nærir, tákn­mynd móð­ur­lands­ins okkar, Íslands. Kven­lík­am­inn með sín mjúku brjóst og ávölu lendar, sitt hlýja skaut og sterku læri, fimu hendur, fjör­ugu æðar, fal­lega hár og breiða bak sem alla ber í faðmi sér er Ísland. Jörðin sem við fædd­umst á.“

Steinunn segir því næst að nú eigi Fjall­konan undir högg að sækja:

„Nú á að skera af fjall­kon­unni brjóstin, fjöllin og flytja burt, fylla æðar hennar, árnar af eitri, mala lendar hennar niður, sandana, fylla frjótt skautið, hafið af grút, setja járn­grímu fyrir and­lit hennar með suð­andi vindskrímslum sem yfir­gnæfa móð­ur­málið, fugla­söng­inn fagra og fyrir hvað?

Græðgi mann­anna.“

Sjálf var Steinunn Fjall­kona árið 1994 í Reykja­vík en hún rifjar upp þá stund í færsl­unni:

„Ófáar höfum við leikkon­urnar tekið að okkur að leika hlut­verk fjall­kon­unnar, tákn­myndar móð­ur­lands­ins og lengi vel þótti við hæfi að flytja ljóð þar sem skáldin færðu í orð kær­leika og þakk­læti til lands­ins og með næmni veittu því ein­staka, smáa og fagra sem á Íslandi finnst og er. Skáldin sjá og spegla til okkar því sem mik­ils virði er, fall­valt­leik­anum, ábyrgð­inni og færa okkur í ljóðum sínum mælistik­urnar einu.Árið 1994 á fimm­tíu ára afmæli lýð­veld­iss­ins var mér treyst fyrir hlut­verki fjall­kon­unnar og undir hand­leiðslu Klemens Jóns­sonar leik­stjóra og reyndar móður minnar líka æfði ég ljóð Snorra Hjart­ar­sonar, Land, þjóð og tunga, sem kjarnar einmitt það sem ég geri að umfjöll­un­ar­efni.Þegar ég flutti ljóðið á Aust­ur­velli að morgni 17. júní gerð­ist það sem ég gleymi aldrei enda var það kostu­leg sjón, þar sem ég stóð and­spænis fyr­ir­fólki Íslands, Vigdísi for­seta, rík­is­stjórn­inni og hennar erlendu gestum sem í til­efni stóraf­mælis lýð­veld­is­ins voru hin skand­ína­víska hirð eins og hún lagði sig.

Í miðjum flutn­ingi ljóðs­ins flaug flug­vél yfir og þá litu höf­uðin háu í for­undran til him­ins á stálfugl­inn sem flaug nú hjá. Vit­an­lega heyrði eng­inn ljóðið til enda fyrir flug­vélagnýnum.“

Spyr hún svo hvort þetta sé ekki tákn­rænt og ákveð­inn fyr­ir­boði:

„Táknrænt ekki satt og kannski í þessu atviki fal­inn fyr­ir­boði? Athygli stjórn­valda er í það minnsta löngu horfin af því sem mik­il­vægt er; þegar fjall­konan er nú augn­stungin, sví­virt og seld í ánauð af aftengdu og trylltu fólki sem enga elsku eiga til lands og þjóðar.

Fjall­konu­flokk­inn þarf að stofna. Flokk sem rúmar allar mann­eskjur sem elska nátt­úru Íslands, menn­ingu og mann­rétt­indin sjálf­sögðu sem stjórn­völd halda í oflæti þau geti skert og aukið að vild.“

Að lokum birtir hún ljóð Snorra Hjart­ar­sonar sem hún las upp fyrir 30 árum síðan.

„Þjóð­há­tíð­ar­kveðjur allir þeir sem ég veit að elska landið okkar eins og þá einu móður sem aldrei gefur okkur neitt nema ást­ina skil­yrð­is­lausu. Móðurina sem við verðum nú að verja með ráðum og dáðum. Nú verðum við kæru vinir að heyra ljóð Snorra til enda, læra það utan að og begð­ast ekki.

Land, þjóð og tunga­Land þjóð og tunga, þrenn­ing sönn og ein,þér var ég gef­inn barn á móð­ur­kné;ég lék hjá þér við læk og blóm og stein,þú leiddir mig í orðs þíns háu vé.Á dimmum vegi dýrð þín um mig skein,í dögun þeirri er líkn og storma­hléog sókn og vaka: ein­ing hörð og hrein,þú heimtar trúnað, spyr hver efnd mín sé.Þú átt mig, ég er aðeins til í þér.Örlaga­stundin nálg­ast grimm og köld;hiki ég þá og bregð­ist bý ég mér­bann þitt og útlegð fram á hinsta kvöld.Ísland, í lyftum heitum höndum verég heiður þinn og líf gegn trylltri öld.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við