Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Sameinast um breytingar á örorkufrumvarpi: „Þetta snýst um að enginn öryrki verði skilinn eftir“

Sameinast um breytingar á örorkufrumvarpi: „Þetta snýst um að enginn öryrki verði skilinn eftir“

Full­trúar allra stjórn­ar­and­stöðu­flokka í vel­ferð­ar­nefnd Alþingis hafa lagt fram sam­eig­in­legar breyt­ing­ar­til­lögur við frum­varp rík­is­stjórn­ar­innar um end­ur­skoðun á örorku­líf­eyr­is­kerf­inu. Breyt­ing­ar­til­lög­urnar hafa verið birtar á vef Alþingis og jafn­framt nefnd­ar­á­lit með nán­ari útskýr­ingum.

„Þetta snýst um að eng­inn öryrki verði skil­inn eftir,“ segir Jóhann Páll Jóhanns­son, þing­maður Sam­fylk­ingar, sem er fyrsti flutn­ings­maður breyt­ing­ar­til­lög­unnar. „Þess vegna höfum við í stjórn­ar­and­stöð­unni sam­ein­ast, full­trúar allra flokka, um að leggja til breyt­ing­ar­til­lögur við örorku­frum­varp rík­is­stjórn­ar­innar. Með breyt­ing­unum verjum við kjör öryrkja sem búa einir, tryggjum að eng­inn lækki bein­línis í tekjum og gætum betur að sjálfs­á­kvörð­un­ar­rétti öryrkja á vinnu­mark­aði svo dæmi séu nefnd.“

Aðrir flutn­ings­menn eru þau Arndís Anna K. Gunn­ars­dóttir þing­maður Pírata, Bergþór Ólason þing­maður Mið­flokks­ins, Guð­brandur Ein­ars­son þing­maður Við­reisnar og Guð­mundur Ingi Krist­ins­son þing­maður Flokks fólks­ins.

„Þetta er risa­stórt vel­ferð­ar­mál sem varðar ekki aðeins alla öryrkja Íslands heldur einnig vinn­andi fólk sem getur misst starfs­getu í fram­tíð­inni, ef það veik­ist til dæmis eða lendir í slysi.“

„Alvarlegir ágallar á málinu sem verður að laga“

Þingmenn Sam­fylk­ing­ar­innar og Flokks fólks­ins hafa gagn­rýnt margt í frum­varpi rík­is­stjórn­ar­innar og sagst ekki munu hleypa mál­inu óbreyttu gegnum Alþingi. „Ljóst er að frum­varpið í núver­andi mynd þarfn­ast ítar­legra end­ur­bóta og dugar skammt til að upp­ræta sára­fá­tækt meðal örorku­líf­eyr­is­þega,“ skrif­aði Guð­mundur Ingi Krist­ins­son, þing­maður Flokks fólks­ins, nýlega í grein á Vísi.is. „Fólk með skerta starfs­getu er sett í nið­ur­lægj­andi stöðu á vinnu­mark­aði með refsi­kenndum ákvæðum sem hljóta að ýta undir streitu og van­líðan,“ skrif­aði Jóhann Páll í grein á Vísi þar sem hann gagn­rýndi nokkur af ákvæðum frum­varps­ins, m.a. þau er fjalla um hluta­ör­orku­líf­eyri og virkni­styrk.  

Nokkrar breyt­ingar á frum­varpi félags- og vinnu­mark­aðs­ráð­herra hafa verið lagðar til í vel­ferð­ar­nefnd eftir að þessi gagn­rýni kom fram. Þannig stendur nú til að hluta­ör­orku­líf­eyrir verði nokkuð hærri en lagt var til í upp­hafi og að mælt verði fyrir um að öryrkjar í atvinnu­leit geti tekið að sér til­fallandi störf án þess að svo­kall­aður virkni­styrkur, nýr greiðslu­flokkur, falli sam­stundis niður að fullu.

„Þetta er til marks um að bar­átta ÖBÍ og okkar í stjórn­ar­and­stöðu fyrir breyt­ingum á mál­inu er að skila árangri, og mér finnst líka Steinunn Þóra Árna­dóttir for­maður vel­ferð­ar­nefndar hafa haldið vel á spil­unum og tekið til­lit til athuga­semda,“ segir Jóhann. „En það eru samt enn þá mjög alvar­legir ágallar á mál­inu sem verður að laga. Og þá felst ákveð­inn slag­kraftur í því að stjórn­ar­and­staðan sam­ein­ist um lág­marks­kröfur – sem eru svo hóf­stilltar og í raun sjálf­sagðar að við trúum ekki öðru en að meiri­hlut­inn á Alþingi geti fall­ist á þær.“

Fimm breytingar og kostnaður undir milljarði á ári

Stjórn­ar­and­staðan leggur til fimm breyt­ingar á frum­varp­inu og áætl­aður kostn­aður er undir millj­arði á ári. Í stuttu máli eru breyt­ing­ar­til­lög­urnar eft­ir­far­andi:

  1. Hnykkt á því að eng­inn öryrki sem hefur þegar fengið örorku­mat verði þving­aður í svo­kallað sam­þætt sér­fræði­mat.
  2. Alþingi fái skýrslu um útfærslu á sam­þættu sér­fræði­mati sem á að koma í stað örorku­mats en er enn algjör­lega óút­fært.
  3. Fjárhæð heim­il­is­upp­bótar hækki svo tryggt verði að eng­inn öryrki verði skil­inn eftir.
  4. Öryrki í atvinnu­leit fái aukið svig­rúm til að leita sér að starfi við hæfi án þess að svo­kall­aður virkni­styrkur falli niður.
  5. Skerðing á örorku­líf­eyri vegna fjár­magnstekna maka verði afnumin.


Breyt­ing­ar­til­lög­urnar eru útli­staðar nánar í með­fylgj­andi grein­ar­gerð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina