Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Hvarfið í Böðvarsdal – Bróðir Geirfinns Einarssonar týndist aðeins þriggja ára gamall

Hvarfið í Böðvarsdal – Bróðir Geirfinns Einarssonar týndist aðeins þriggja ára gamall
Hell­is­heiði eystri – Í fjarska sést í Böðv­ars­dal.

Nokkur stálpuð börn frá Böðv­ars­dal í Vopna­firði ákváðu að vera almenni­leg við vega­vinnu­menn sem unnu að vega­gerð í fjall­lendi milli Böðv­ars­dals og Fagra­dals, þann 19. júní 1941, og færa þeim kaffi. Með þeim var hinn þriggja ára gamli Runólfur Krist­berg Ein­ars­son, svonur bónd­ans Einars Run­ólfs­sonar. Reyndist þessi för vera sú síð­asta í hinni stuttu ævi Runólfs litla.

Þegar vinnu­menn­irnir höfðu lokið við að drekka kaffið lögðu börnin aftur af stað heima á leið. Þegar þau voru komin dálitla spöl, vildi Runólfur litli hins vegar snúa aftur til baka, til að vera með föður sínum. Fylgdu börnin honum yfir læk og þar til þau töldu öruggt að hann kæm­ist til föður síns. Það reynd­ist hins vegar því miður ekki vera raunin því síðan þá spurð­ist ekk­ert um dreng­inn. Rúmlega þremur ára­tugum síðar týnd­ist annar sonur Einars bónda, sá hét Geir­finnur Ein­ars­son.

Hér má lesa umfjöllun um hvarfið í heil­brigð­is­skýrslu frá 1941:

Vopnafj. 3 ára drengur týnd­ist frá Böðv­ars­dal 19. júní 1941 og hefur ekki fundizt. Tildrög voru þau, að faðir drengs­ins og fleiri menn voru að veg­ar­gerð í fjall­inu milli Böðv­ars­dals og Fagra­dals. Síðari hluta dags færðu börn frá Böðv­ars­dal mönn­unum kaffi í veg­inn. Var í för með stálp­uðum börnum 3 ára drengur, sonur bónda. Að lok­inni kaffi­drykkju sneru börnin heim á leið. Er þau voru skammt á veg komin, vildi dreng­ur­inn snúa aftur til föður síns, og fylgdu börnin honum út yfir læk í svo köll­uðu Mið­anda­gili. Var þá stutt brekka eftir til vega­mann­anna, en sá ekki til þeirra úr gil­inu. Vegurinn liggur þarna nærri bjarg­brún, en hengiflug fyrir neðan. Þegar vega­gerð­ar­menn komu heim um kvöldið, var barns­ins saknað. Hafði það ekki komið til þeirra. Leit var nú hafin að barn­inu, fyrst af heima­fólki úr Böðv­ars­dal og síðan af fjölda manns úr hér­að­inu og úr Jök­ulsár­hlíð, en allt varð það árang­urs­laust. Leitað var ræki­lega í fjall­inu, svo köll­uðu Búri — og telja kunn­ugir, að aðeins á 2 stöðum sé mögu­leiki til þess, að barnið hafi getað hrapað í sjó niður.

Morg­un­blaðið fjall­aði einnig um hið svip­lega hvarf Runólfs litla:

Barn hverfur með svip­legum hætti

Síð­ast­lið­inn fimtu­dag vildi það til, að þriggja ára drengur, sonur Einars Run­ólfs­sonar í Böðv­ars­dal í Vopna­firði, hvarf og hefir ekki fund­ist enn. Þennan dag höfðu menn frá Böðv­ars­dal verið við vega­gerð í fjall­inu milli Böðv­ars­dals og Pagradals, í svoköll­uðu Búri. Færðu fjögur stálpuð börn þeim þangað kaffi síð­ari hluta dags­ins. Er vega­vinnu­menn­irnir höfðu drukkið kaffið hjeldu börnin heim­leiðis og fylgd­ist sonur Einars Run­ólfs­sonar þá með þeim. En hann hafði verið hjá föður sínum. Þegar börnin voru komin kipp­korn heim­leiðis vildi dreng­ur­inn snúa við aftur til föður síns og fylgdu börnin honum þá aftur til baka út yfir læk í svoköll­uðu Mið­anda­gili. Var þá aðeins eftir stutt brekka hinum megin gils­ins til vega­vinnu­mann­anna. Upp brekk­una liggur glögg snið­gata. Sáu börnin síð­ast til drengs­ins er hann labb­aði upp göt­una. Kl. 8 um kvöldið hjeldu vega­vinnu­menn­irnir heim­leiðis. Til ferða drengs­ins vissu þeir þá ekk­ert. Var þá hafin leit að honum og var leitað í rúma tvo sól­ar­hringa en án árang­urs. Leitinni er nú hætt. Talið er lík­legt að dreng­ur­inn hafi gengið fram af fjalls­brún­inni, sem aðeins er skamt frá veg­inum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina