Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Gunnar Wiium vill opna umræðuna: ,,Nýbúinn að fara í þrjár jarðarfarir vegna sjálfsvíga”

Gunnar Wiium vill opna umræðuna: ,,Nýbúinn að fara í þrjár jarðarfarir vegna sjálfsvíga”

Gunnar Wiium hlað­varps­stjórn­andi og smiður er nýbú­inn að fara í þrjár jarð­ar­farir vegna sjálfs­víga í kringum sig og segir nauð­syn­legt að opna á umræðu um þung­lyndi og geð­lyfja­notkun. Gunnar, sem er nýjasti gest­ur­inn í podcasti Sölva Tryggva­sonar, segir alla þessa ein­stak­linga hafa verið á geð­lyfjum, sem virð­ast hafa gert lítið sem ekk­ert gagn:

„Ég er búinn að vera á skrýtnum stað und­an­farið af því að margir í kringum mig hafa verið að glíma við geð­rask­anir og hafa farið alveg á botn­inn. Allt þetta fólk er búið að vera á geð­lyfjum í lengri tíma, en árang­ur­inn er eng­inn. Það er búið að sjúk­dómsvæða allt og við eigum bara að taka pillur ef við upp­lifum óþægi­lega hluti. Kerfið hefur svo engin úrræði önnur en að bjóða fleiri lyf og eng­inn hefur tíma til að sinna þeim sem raun­veru­lega þurfa á því að halda. Ég hef horft upp á fólk í kringum mig sjálf­ræð­is­svipt og frels­is­svipt, en svo eru engar lausnir aðrar en bara lyf. Einn góður vinur minn hefur verið meira og minna frels­is­sviptur inni á örygg­is­geð­deild ár eftir ár. Þetta eru nán­ast orðin sex ár sam­fellt og allt sem hann segir við geð­lækn­inn er túlkað honum í óhag. Ég er líka búinn að fara í fjöl­margar jarð­ar­farir und­an­farið, meðal ann­ars þrjár vegna hræði­legra sjálfs­víga og svo eina vegna ofskömmt­unar af opíóða­lyfjum sem eru fram­leidd af lyfja­fyr­ir­tækj­unum,“ segir Gunnar, sem seg­ist líta á það sem skyldu sína að ræða um þessa hluti opin­ber­lega:

„Ég get ekki setið hjá og horft upp á þetta án þess að tjá mig og opna á þessa umræðu opin­ber­lega. Við erum ekki að ávarpa þennan grafal­var­lega vanda, hvort sem það er gríð­ar­leg aukn­ing í opíóða­notkun eða mestu geð­lyfja­notkun í heimi. Við verðum að ræða um þetta sem sam­fé­lag og gera eitt­hvað í þessu. Þessi hræði­lega van­líðan sem er allt í kringum okkur hlýtur að snerta okkur öll í þessu litla sam­fé­lagi.“

Gunnar þekkir sjálfur hvað það er að glíma við fíknir og mikla van­líðan. Hann var í áraraðir fastur í fíkni­mynstrum áður en hann fékk and­lega vakn­ingu og gjör­breytti lífi sínu:

„En ég þurfti líka að fara að díla við alls konar annað eftir að ég vakn­aði til vit­undar. Meðal ann­ars hvatir tengdar lágum orku­stöðvum, sem oft er talað um sem ástar- og kyn­lífs­fíkn, sem var að valda miklu sárs­auka heima fyrir. Ég þurfti að horfast í augu við klám­fíkn sem var búin að hrjá mig eins og marga karl­menn alveg síðan ég var lít­ill pjakkur. Það var eng­inn sem útskýrði þennan heim fyrir manni og alveg síðan maður var lít­ill krakki var felu­leikur og skömm í kringum allt sem sneri að kyn­lífi og hvötum þeim tengdum. Það tók eng­inn spjallið við mann á þessum tíma og úr varð felu­leikur sem bjó síðan til skömm. Eitthvað sem maður vildi halda fyrir sjálfan sig og ekki sýna heim­inum. Það eru margir karl­menn að díla við þetta og burð­ast við þessa skömm. Þess vegna er mik­il­vægt að tala um þetta opin­skátt og varpa ljósi á þetta. Ef ungum karl­mönnum er sagt að skamm­ast sín bara og að þeir séu ógeðs­legir verða hlut­irnir bara verri. Það hjálp­aði mér mikið að opna á þetta og tala um þetta opin­skátt. Það velur eng­inn að vera klám- eða kyn­lífs­fík­ill þegar hann er í góðu jafn­vægi.“

Í þætt­inum ræða Gunnar og Sölvi líka um sveppi, CBD olíur og kanna­bis. Gunnar segir mik­il­vægt að ræða um þessa hluti opin­skátt og opin­ber­lega.

„Við erum komin á ákveðna enda­stöð þegar kemur að þessum SSRI lyfjum og ég hef ekki tölu á því hve margir sem hafa tekið þessi lyf í áraraðir hafa komið að máli við mig og líður ekk­ert betur. Það þýðir að fólk er farið að leita ann­arra lausna þegar kemur að dep­urð, kvíða og áfallastreitu. Það er orðið mjög útbreitt á Íslandi að full­orðið fólk sé að taka svepp til þess að kom­ast inn á við og vinna á kvillum. Bæði að taka inn smá­skammta og ferða­lög á stærri skömmtum. Fólk á ekki að þurfa að skamm­ast sín og vera í felu­leik með þetta. Það er fólk í öll­um stigum sam­fé­lags­ins að taka þetta út um all­an bæ. Við eig­um að opna á þessa umræðu og hætta laumu­leikn­um og skömm­inni í kring­um þetta. Fyrir nokkrum árum síðan var fólk að laum­ast með að taka inn CBD olíu af því að hún var bönnuð, en núna er það búið. Það er sama með svepp­inn eins og CBD að mjög marg­ir eru að fá bót á alls kyns kvill­um og bætta líðan með réttri notk­un,” seg­ir Gunn­ar, sem seg­ir að CBD olía hafi gjör­breytt lífi sínu:

„Ég var í laumuneyslu í tals­verðan tíma gagn­vart mínum nán­ustu og í raun bara öllum. Það var skrýtið að þurfa að hitta ein­hvern díler á bíla­plani í laumi til að fá flöskur með CBD olíu, sem ég var ein­göngu að kaupa til að laga tauga­kerfið. Það var mjög súrt. Sem betur fer er þetta allt að breyt­ast núna. Neysla á CBD er orðin út­breidd á Íslandi og er að aðstoða fólk við alls kyns tauga­ker­fisk­villum og kvíða.“

Gunnar þekkir á eigin skinni hvað það er að fara á botn­inn í neyslu og vill ræða opin­skátt um allt sem getur aðstoðað fólk. Hann var kom­inn niður fyrir 50 kíló eftir mikla kóka­ínn­eyslu þegar verst lét, en hefur verið edrú í mörg ár og snúið lífi sínu gjör­sam­lega við:

„Ég var gjör­sam­lega far­inn í neyslu. Stærstan hlut­ann af tím­anum var mesta spennan þegar ég var að bíða eftir dílernum og síðan kannski í fyrstu mín­út­urnar eftir að ég tók inn efnið. En hægt og rólega missti ég sjónar á veru­leik­anum og var í raun rúinn inn að beini. Hættur að borða og sofa svo vikum skipti og í raun kom­inn algjör­lega á botn­inn. En ég var svo bless­aður að verða fyrir and­legri vakn­ingu sem gjör­breytti öllu hjá mér. Ég var bæði and­legt og lík­am­legt flak og stoð­kerfið var í rúst. En þá gerð­ist atburður sem leiddi af sér ein­hverja óút­skýr­an­lega heilun og eftir það var allt breytt. Fram að því hafði ég verið að ganga í gegnum lífið hálf­sof­andi þó að ég hafi ekki séð það sjálfur. Eftir þessa breyt­ingu ákvað ég að stíga út úr hræðsl­unni og byrja að tjá mig um minn sann­leika, alveg sama þó að það gæti kostað mig ein­hverjar óvin­sældir.“

Gunnar segir að eitt af því sem hafi hjálpað honum að ná meira jafn­vægi hafi verið að hægja á til­ver­unni:

„Ég vinn 150 metra frá hús­inu mínu og fyrst var ég hræddur við að minnka heim­inn minn svona mikið og draga úr spennu. En smám saman fór ég að upp­lifa miklu meiri ró og vellíðan. Eftir að heim­ur­inn minn minnk­aði fór ég að finna meiri sam­kennd meðal nágranna minna og það kom ein­hvern vegin bara meiri teng­ing. Ég held að við séum ekki hönnuð fyrir þetta stór­borg­ar­líf þar sem maður er stöðugt fastur í traffík að fara á milli staða. Það er mjög ósýni­legt hvað þessir lifn­að­ar­hættir búa til mikla streitu hjá fólki.“

Hægt er að nálg­ast við­talið við Gunnar og öll við­töl og pod­köst Sölva Tryggva­sonar inni á sol­vi­tryggva.is

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við