Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Mygla fannst á fleiri stöðum í Borgum á Akureyri: „Þetta er stórt mál, það er engin spurning“

Mygla fannst á fleiri stöðum í Borgum á Akureyri: „Þetta er stórt mál, það er engin spurning“

Mygla hefur greinst á fleiri svæðum í Borgum á Akureyri, eftir að leka varð vart í bygg­ing­unni. Starfs­fólk Háskól­ans á Akureyri, sem starfar á skrif­stofum í hús­inu, hefur þurft ða færa sig yfir í annað hús­næði á vegum skól­ans.

Í vor var sagt frá því að Fiski­stofa hafi neyðst til að loka starf­stöð sinni í Borgum á Akureyri vegna myglu sem þar fannst. Nú er ljóst að lek­inn sem upp­götv­að­ist er umfangs­meiri og hefur mygla fund­ist víðar í hús­næð­inu.

Ekki óalgengt

Fram­kvæmdir standa nú yfir á Borgum á Akureyri sem miða að við­gerðum vegna leka sem upp­götv­að­ist frá útvegg á 2.hæð og hafði skilað sér undir gólf­dúk, að því er fram kemur í skrif­legu svari frá Reitum, eig­anda Borga. Þar segir einnig:

„Svona tjón eru ekki óal­geng og þegar þetta upp­götv­að­ist var strax gripið til verk­lags­reglna okkar og farið í hreinsun á ónýtu bygg­ing­ar­efni og sér­hæfðir úttekt­ar­að­ilar kall­aðir til sem skoða húsið í heild og ráð­leggja um næstu skref.“

Þá kemur einnig fram í svar­inu að úttekt Eflu ver­fræði­stofu á hús­næð­inu hafi leitt ástæðu lek­ans í ljós:

„Efla verk­fræði­stofa vann úttekt á hús­inu sem leiddi í ljós að lek­inn staf­aði af frá­gangi í kringum glugga á vissum stöðum. Samkvæmt úttekt­inni er stærsti hluti húss­ins í góðu lagi en fram­kvæmda er þörf á ákveðnum svæðum. Þar er nú unnið að úrbótum og vænst er til þess að þeim ljúki á þessu ári, að þeim loknum mun Efla gera aðra úttekt á hús­inu þar sem við­gerðir verða skoð­aðar og loft­gæði í hús­inu metin. Þá mun verk­fræði­stofan jafn­framt hafa eft­ir­lit með loft­gæðum í hús­inu í um sex mán­uði eftir að fram­kvæmdum lýkur til að tryggja enn frekar heil­næmt umhverfi.“

Jón Kolbeinn Guð­jóns­son, fram­kvæmda­stjóri fram­kvæmda hjá Reitum, sagði í skrif­legu svari til Mannlífs að fyr­ir­tækið hafi gripið til staðl­aðra við­bragða sem miði að því að vernda heilsu fólks­ins sem notar hús­næðið:

„Leki eins og sá sem varð í Borgum er ekki óal­gengur og veldur stundum myglu ef hann upp­götvast ekki strax. Reitir grípa til staðl­aðra við­bragða í svona aðstæðum sem miða fyrst og fremst að því að vernda heilsu þeirra sem nota hús okkar og kost­leggja umfang skemmda. Verk­takar sem vinna á okkar vegum hafa mikla reynslu af því að fjar­lægja ónýt bygg­ing­ar­efni og við væntum þess að hægt sé að ganga hratt í fram­kvæmdir.“

Þurftu að færa sig á milli bygginga

Mannlíf ræddi einnig við rektor Háskól­ans á Akureyri, Eyjólf Guð­munds­son, sem stað­festi að mygla hefði fund­ist á skrif­stofum skól­ans í Borgum og að hluti starfs­fólks skól­ans þar, hafi flutt sig yfir í aðra bygg­ingu háskól­ans.

„Það sem sagt kom upp mygla hjá Fiski­stofu fyrr í vor og í beinu fram­haldi af því voru gerðar mæl­ingar á fleiri stöðum í hús­inu. Og þá fund­ust mygla á fleiri stöðum og það var farið í mjög ítar­lega grein­ingu, sem er enn í gangi í raun og veru. Og þau rými sem mygla hefur fund­ist í, og þá tala ég aðeins fyrir hönd Háskól­ans, þá tæmdum við þau rými og fundum aðra vinnu­að­stöðu fyrir fólk í hinum bygg­ing­unum okkar.“

Þá sagði Eyjólfur að fólki hafi einnig verið boðið að færa sig, jafn­vel þó engin mygla hefði fund­ist á þeirra skrif­stofum. Sjálfur er hann enn á sinni skrif­stofu á fjórðu hæð bygg­ing­ar­innar, enda engin mygla þar. „Þannig að bygg­ingin er í sjálfu sér ekki lokuð en þetta er stórt mál, það er engin spurn­ing,“ sagði Eyjólfur en hann seg­ist hafa fengið bráða­birgða­skýrslu frá Reitum en búist við því að fá nákvæm­ari skýrslu um það hvernig bregð­ast eigi við mygl­unni.

Þurfa lausn fyrir haustið

Aðspurður hvort starfs­fólk skól­ans, sem nýtt hefur sér skrif­stofur í bygg­ing­unni, hafi fundið fyrir óþæg­indum vegna mygl­unnar svar­aði Eyjólfur: „Það hafa alveg verið ein­kenni hjá starfs­fólki í gegnum tíð­ina, já. Við höfum alveg orðið vör við það. En það hefur ekki veirð tengt við þetta fram að þessu enda var það ekki sýni­legt en kom í ljós þegar farið var að kíkja undir dúka og svona, þegar fara átti í aðrar fram­kvæmdir.“

Að lokum sagði Eyjólfur að und­an­farin ár hafi ekki verið hlustað á beiðni um nýtt hús­næði fyrir Háskól­ann á Akureyr.

„Við lítum á þetta sem verk­efni fyrir haustið en ástandið er erfitt fyrir okkur í þeim skiln­ingi að við höfum ekk­ert borð fyrir báru í hús­næð­is­málum og við þurfum lausn fyrir haustið. Og svo höfum við þurft nýtt hús­næði í mjög langan tíma og nú kemur í ljós hversu baga­legt það er að ekki hafi verið farið í slíkar fram­kvæmdir eins og við höfum beðið um á síð­ustu árum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina