Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Lögmaður á villigötum réttvísarinnar: Ómar blekkti flugfarþega og sveik bætur af fórnarlambi slyss

Lögmaður á villigötum réttvísarinnar: Ómar blekkti flugfarþega og sveik bætur af fórnarlambi slyss
Ómar R. Valdi­mars­son Mynd: Þór Ægisson

Esja Legal, félag í eigu Ómars R. Valdi­mars­sonar lög­manns, er hefur blekkt neyt­endur með vill­andi og rangri upp­lýs­inga­gjöf á vef sínum, flug­ba­etur.is, sam­kvæmt Neyt­enda­stofu. Lög­mað­ur­inn býður neyt­endum upp á aðstoð við að inn­heimta skaða­bætur vegna ferða­laga með flug­fé­lögum. Þetta er enn eitt málið á hendur Ómari sem sak­felldur hefur verið um mis­ferli gagn­vart skjól­stæð­ingum.

Neyt­enda­stofa segir einnig að Esja Legal hafi brotið gegn lögum með því að áskilja sér rétt til að til­kynna ekki neyt­endum þjón­ust­unnar um máls­höfðun áður en mál er höfðað. Esju Legal er bannað að við­hafa umrædda við­skipta­hætti áfram.

Fyrr á þessu ári varð fólk, sem sótti um bætur í gegnum vef­inn, fyrir fjár­hagstjóni eftir að lög­mað­ur­inn höfð­aði dóms­mál á hendur ítölsku flug­fé­lagi án þess að bera máls­höfðun áður undir parið Hrafn­tinnu Eir Her­móðs­dóttir og Ágúst Leó Björns­son. Málið tap­að­ist og var par­inu gert að greiða lög­manns­kostnað.

Hrafn­tinna og Ágúst Leó vissu hvorki að dómur hefði fallið í mál­inu né að þeim hefði verið dæmt að greiða máls­kostnað. Vísir hafði á sínum tíma eftir for­manni Lög­manna­fé­lags­ins að slíkt ætti ekki að geta gerst. Ómar R. Valdi­mars­son sem rekur Flug­bætur sagði að skjól­stæð­ingar bæru ekki kostn­að­inn þegar mál fari á þennan veg.

Forsagan er sú að parið átti bókað flug með Neos frá Ítalíu til Íslands þann í febr­úar 2022. Töf varð á flug­inu um rúmar átta klukku­stundir. Þau sóttu um staðl­aðar skaða­bætur í gegnum Flug­ba­etur.is.

Tveimur árum síðar féll dómur í máli pars­ins gegn Neos í Hér­aðs­dómi Reykja­ness. Aðal­kröfur fólks­ins voru að flug­fé­lagið greiddi bæt­urnar með vöxtum og drátt­ar­vöxtum, að frá­dreg­inni þeirri summu sem félagið hafði þegar greitt þeim mán­uði áður. Dómurinn sýkn­aði flug­fé­lagið af aðal­kröfum fólks­ins og var þeim gert að greiða allan máls­kostnað.

Í svörum Esju Legal kom fram að stað­fest­ing umsækj­anda á að hann hafi lesið, skilið og sam­þykkt skil­mála þess feli í sér ótví­rætt sam­þykki hans á skil­mál­unum sem og sér­staka ósk um að þjón­usta sé veitt áður en frestur til að falla frá samn­ingi rennur út.
Málið varðar einnig verð­skrá Flugbóta, en í ákvörðun Neyt­enda­stofu segir að á for­síðu Flug­ba­etur.is hafi ekki verið hægt að nálg­ast upp­lýs­ingar um end­an­legt verð á þjón­ust­unni.

Neyt­enda­stofa skipar Esju Legal að koma skil­málum og verð­skrá  á vef­síð­unni í við­eig­andi horf innan tveggja vikna svo þeir séu í sam­ræmi við lög, ef það verður ekki gert muni félagið sæta dag­sektum þangað til farið verði eftir ákvörðun stofn­un­ar­innar.

Ómar hefur staðið í ströngu und­an­farið. Hann var dæmdur í und­ir­rétti nýverið fyrir að svíkja fé af skjól­stæð­ingi sínum. Þá hefur hann fengið ákúrur frá siða­nefnd lög­manna fyrir að ofrukka fyrir þjón­ustu sína.

Kona sem um ræðir lenti í um­ferð­ar­slysi árið 2020 leit­aði til Ómars til að ann­ast mál sitt og inn­heimta bæt­ur úr hendi bóta­skylds trygg­inga­fé­lags. Tæp­um tveim­ur árum síðar und­ir­rit­aði Ómar fulln­aðar­upp­gjör við um­rætt trygg­inga­fé­lag fyr­ir hönd kon­unn­ar. Voru heild­ar­bæt­ur rúm­ar 4.4 millj­ón­ir króna, þar af 356 þús­und krón­ur vegna lög­manns­kostn­aðar.

Trygg­inga­fé­lagið greiddi bæt­urn­ar inn á fjár­vörslu­reikn­ing Ómars og Esju Legal, lög­manna­stofu hans. Ómar greiddi bæt­urn­ar,3.3 millj­ónitr króna inn á reikn­ing kon­unn­ar sam­dæg­urs að frá­dreg­inni lög­manns­þókn­un sinni upp á 1,1 millj­ón króna.  Ári eft­ir upp­gjörið las konan í fjöl­miðlum að úr­sk­urðar­nefnd lög­manna hafi gert Ómari að end­ur­greiða öðrum skjól­stæð­ingi sín­um hluta inn­heimtrar lög­manns­þókn­un­ar.

Strangar kröfur eru gerðar á hendur ein­stak­lingum sem hafa fengið lög­manns­rétt­indi. Óljóst er hvort und­an­farin mál hafa áhrif hvað varðar rétt­indi Ómars R. Valdi­mars­sonar til að flytja mál fyrir und­ir­rétti og Lands­rétti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við