Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Sverrir var ellefu ára kallaður hinn íslenski Robertino: „Barnaverndarnefndin var komin í málið“

Nýjasti gestur Mann­lífs­ins er kontra­ten­ór­inn og lífskúntsner­inn Sverrir Guð­jóns­son. Flestir Íslend­ingar þekkja Sverri en hann er eini kontra­tenór þjóð­ar­innar en hann var ekki nema átta ára gam­all þegar hann hóf söng­feril sinn.

Sverrir Guð­jóns­son að afhenda Páli í Húsa­felli plöt­una Rökk­ur­söngvar í síð­ustu viku, sem er sam­starf Sverris við íslensk tón­skáld sem hafa samið fyrir radd­svið hans. Platan kom út fyrir nokkrum árum. Aðsend.

Í við­tal­inu segir Sverrir frá barna­stjörnu­ár­unum, söng­ferl­inum, óvæntu ævin­týri sem Jakob Frímann Magn­ús­son kom honum í þegar hann bjó í Lundúnum og ýmis­legt fleira sem á daga hins bráð­skemmti­lega manns hefur drifið.

„Ég er fljótur að læra lög og texta og er far­inn að raula með,“ segir Sverrir við Reyni þegar hann rifjar upp fyrstu skref sín á söng­ferl­inum. Sverrir heldur áfram: „Þannig að það upp­götvast að ég er mús­íkalskur. Svo man ég eftir því að við fórum oft á Hell­issand að heim­sækja ömmu mína, Hans­borgu. Og ég er úti að leika mér þarna við lít­inn poll með lítil skip. Svo koma tveir krakkar, sem voru eldri en ég og vissu að ég gat sungið og spyrja mig; „Ertu til í að syngja á ball­inu í kvöld?“. Og ég var ekk­ert að hugsa um þetta, ég var bara að hugsa um bát­ana og sigla þeim. Ég man að ég hugs­aði; „Æ, ég nenni þessu ekki neitt“. En ég er til­tölu­lega vel upp alinn, þannig að ég sagði; „Allt í lagi, ég skal gera það“. En ég var bara sjö ára gam­all. Síðan var ég settur upp á svið um kvöldið, milli ell­efu og tólf. Og svo sendur heim áður en aðal ballið byrj­aði og áður en slags­málin nátt­úru­lega fóru í gang á milli Ólafs­víkur og Hell­issands.“

Reynir: „En hvað söngstu?“

Sverrir: „Ég söng bara ein­hver dægu­lög sem hljóm­sveitin kunni og ég kunni. Þannig að ég pikk­aði upp lög sem voru í útvarp­inu og sem pabbi var að æfa með sínu fólki. Hann fór í nám til að geta skrifað nótur því hann samdi músík. Og hann hlaut fyrstu verð­laun í danslaga­keppni S.K.T. árið 1956 held ég, fyrir Son­ar­kveðju, sem ég síðan syng inn á plötu, sem 12 ára gam­all krakki. Og svo önnur plata þegar ég var 13 ára, áður en ég fór í mútur.“

Reynir: „Var Son­ar­kveðja lagið sem kom þér á kortið og allir vissu hver þú værir?“

Sverrir: „Já, það var Son­ar­kveðja, af því að það hafði hlotið þessi verð­laun og af því ég syng það svo inn á plötu nokkrum árum síðar, og svo Pip­ar­sveina­polki sem var enda­laust í útvarp­inu og þótt mjög skemmti­legur. En til dæmis þegar ég var átta ára gam­all, þá var birt aug­lýs­ing í Mogganum um að ég kæmi fram á skemmtun á Silf­ur­tungl­inu, sem er Aust­ur­bær í dag eða Aust­ur­bæj­ar­bíó ef fólk man ekki því. Og það er mynd af mér og tekið fram að ég er átta ára gam­all en það voru fleiri að koma fram þarna. Og við tókum göngutúr frá Vitastíg og upp á Snorra­braut og ég mæti þarna tím­an­lega. Og þá eru tveir menn þarna við úti­dyrnar á Silf­ur­tungl­inu og banna okkur aðgang. Þannig að Barna­vernd­ar­nefndin var komin í málið. Þannig að við tókum bara göngutúr til baka. Þannig að ég er strax átta ára gam­all far­inn að syngja og er aug­lýstur.“

Sverrir fór svo í söng­nám til hins fræga ítalska söngv­ara, Sigurðar Demetz og var hjá honum í tvö ár, en eftir það var hann ell­efu ára gam­all feng­inn til að syngja á 17. júní og við það tæki­færi birt­ist við hann stórt við­tal í blöð­unum og hann var þar með opin­ber­lega orðin barna­stjarna. Plöt­urnar tvær komu svo í kjöl­farið. „af því að ég var að læra hjá Sigurði Demetz, þá kennir hann mér öll þessi fræg­ustu og skemmti­legu ítölsku lög. Og á þessum tíma verður Robertino þekktur og frægur og það verður svo til þess, eftir að ég kem fram á 17. júní, 1961, að ég er kall­aður hinn íslenski Robertino. Af því að ég söng O Sole Mio.“

Hlusta má á við­talið í heild sinni hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina