Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Karlmaður sýknaður af ákæru um nauðgun – Segir konuna hafa átt frumkvæði á köflum

Karlmaður sýknaður af ákæru um nauðgun – Segir konuna hafa átt frumkvæði á köflum
Hér­aðs­dómur Aust­ur­lands

Karl­maður var sýkn­aður af ákæru um nauðgun í hér­aðs­dómi Aust­ur­lands, þar sem ákæru­vald­inu tókst ekki að sanna ásetn­ing hans. Fram­burður bæði ákærða og brota­þola var met­inn stöð­ugur og trú­verð­uð­ugur allan tím­ann, af dómnum.

Það var á haust­kvöldi 2022 sem fólkið hitt­ist á skemmti­stað og lét þar vel hvort að öðru áður en þau fóru heim til hans. Óumdeilt er að kyn­líf þeirra hafi haf­ist með vilja beggja en þegar á leið varð það tals­vert harka­legt en orð stendur gegn orði þeirra um milli um hvað gekk þar á. Aust­ur­frétt segir frá mál­inu.

Maðurinn var ákærður fyrir nauðgun en konan sagði hann hafa þvingað sig til sam­ræðis og hafa beitt hana ofbeldi á sama tíma. Hann hafi slegið hana og rifið í hár hennar, þrátt fyrir að hún hafi sagt honum að hætta. Konan hlaut víða mar um lík­amann.

Í dóm­inum kemur fram að kyn­lífið hafi staðið í um tvo klukku­tíma. Þegar klukku­stund var liðin hafi konan verið orðin upp­gefin og viljað hætta. Sagðist hún hafa steist á móti því að halda áfram en að lokum gefið alveg eftir. Hún hafi ekki þorað öðru vegna hót­ana hans og stjórn­semi. Almennt gaf konan góðar skýr­ingar á öllum atriðum þó hún hafi á köflum borið við minnis­leysi um atriði næt­ur­innar.

Maðurinn seg­ist hafa alltaf spurt um mörk hennar og sagð­ist ekki hafa séð nokkur hræðslu­merki á henni og neitað að hún hefði streist á móti. Öðru nær hafi hún tekið fullan þátt og átt frum­kvæðið á köflum um að halda kyn­líf­inu áfram.

Nokkrum dögum eftir atvikið leit­aði konan til heil­brigð­is­þjón­ustu en fram kemur í dóm­inum að skýrsla þeirra um áverka styðji að mestu leyti frá­sögn hennar. Kemur þó fram að ekki sé hægt að rekja alla áverka bein til næt­ur­innar. Vinir hennar báru einnig vitni um að geðslag hennar hafi breyst til hins verra og sál­fræð­ingur stað­festi áfallastreitu­ein­kenni.

Fram­burður kon­unnar er sagður í nið­ur­lagi dóms­ins, hafa verið stöð­ugur, ein­lægur og trú­verð­ugur og að ekki sé neitt óvenju­legt við við­bragðs­leysi hennar um nótt­ina í ljósi ótta og von­leysis hennar gagn­vart mann­inum. Dómurinn telji að ekki sé á því vafi að hún telji á sér brotið.

Í dóm­inum segir að hins vegar sé ekki ljóst hvort mann­inum hafi verið ljóst að hún teldi á sér brotið. Heimild sé ekki til í lögum til að refsa fyrir kyn­ferð­is­brot af gáleysi, þvert á móti sé lögð skylda á ákæru­valdið að sanna ásetn­ing. Hér­aðs­sak­sókn­ari hafi í þessu til­felli ekki tek­ist að sanna að mað­ur­inn hafi vitað að hann gengi gegn vilja kon­unnar. Hann hafi alla tíð neitað sök og fram­burður hans verið stöð­ugur.

Maðurinn var því sýkn­aður af ákærunni en sak­ar­kostn­aður upp á 3,2 millj­ónir króna greið­ist úr rík­is­sjóði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina