Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Tamningamaður tók hross aldraðs hestamanns vegna skuldar: „Ég vissi ekki mitt rjúkandi ráð“

Tamningamaður tók hross aldraðs hestamanns vegna skuldar: „Ég vissi ekki mitt rjúkandi ráð“
Haraldur og hest­ur­inn Mynd: Trausti Hafsteinsson

Hesta­mað­ur­inn Haraldur Stef­áns­son lenti í bíræfnum hesta­þjófi í mars 1988 en litlu mun­aði að þjóf­ur­inn kæm­ist með hest­inn af landi brott. Eða svo hélt Haraldur en hinn meinti þjófur reynd­ist tamn­inga­maður sem hann skuld­aði pen­ing.

Haraldur, sem þá var á átt­ræð­is­aldri varð fyrir því að hesti hans var tek­inn af tamn­inga­manni sem gaf þá ástæðu að Haraldur skuld­aði sér pen­ing. Haraldur kvaðst hafa vissu­lega nýtt sér þjón­ustu manns­ins og boðið honum 25. þús­und krónur fyrir, sem hann hafi varla viljað þiggja.

Hestur Haraldar var ansi verð­mætur enda bróðir ein­hvers mesta tölt­ara þess tíma. Hinn aldr­aði Haraldur vissi hvar tam­inn­ga­mað­ur­inn geymdi hest­inn og lædd­ist í fylgd ann­ars manns í skjóli nætur þangað, áður en hann lét lög­regl­una vita um stað­setn­ing­una, og kom sér inn um glugga á hest­hús­inu og teymdi þar hest­inn út. Búið var að draga undan honum járnin en slíkt verður að gera ef senda á hest úr landi. Gekk Haraldur með hest­inn í kolniða­myrkri sex kíló­metra og faldi hann í Breið­holt­inu yfir nótt­ina. Lög­reglan mætti svo að hest­húsi tamn­inga­manns­ins um hálf­tíma eftir að Haraldur náði hesti sínum aftur, en þá hafði mað­ur­inn verið búinn að setja alla hest­ana sem í hús­inu voru upp í vagn og var kom­inn lang­leið­ina suður á flug­völl­inn. Það mátti því varla á tæpara standa.

Hér fyrir neðan má lesa frétt DV af mál­inu frá 28. mars 1988:

Kúreka­leikur í Víðidal

Áttræður hesta­maður á flótta undan hrossa­þjófum

Maður á átt­ræð­is­aldri, Haraldur Stef­áns­son að nafni, varð fyrir því nú á dög­unum að hesti hans var stolið og mátti litlu muna að hann missti hann úr landi en þjófa­mir hugð­ust selja hann í Þýska­landi.

„Ég kom upp í hest­hús á fimmtu­dag­inn og sá þá að hest­ur­inn var löð­ur­sveittur. Menn sögðu að þeir hefðu séð ein­hvern á harða­stökki á hest­inum þá um dag­inn.

Á föstu­dag­inn kom ég í hest­húsið um fjög­ur­leytið og þá var hest­ur­inn horf­inn. Þjófamir höfðu dregið naglana úr hesp­unni og þannig gátu þeir opnað húsið. Þeir skildu eftir miða á hurð­inni um að þeir hefðu fengið hest­inn að láni.

Nú, ég fór upp í hús til þeirra og var eng­inn þar. Ég vissi ekki mitt rjúk­andi ráð og fór heim. Ég hringdi í lög­regl­una og fór hún að leita hests­ins.

Á föstu­dags­kvöldið fór ég aftur upp að hest­húsi þjóf­anna við annan mann. Við komumst inn um glugg­ann og fundum minn hest þar og var þá búið að draga undan honum járnin og merkja hann til útflutn­ings en hesta verður að flytja út skeifu­lausa. Ég tók hest­inn í taum og gekk með hann allt ofan úr Víðidal, með­fram Elliða­vatni, og fór niður í Breið­holt við Rjúpna­hæð. Allt þetta gekk ég í svarta­myrkri og kom sér vel að hafa verið í smala­mennsku í gamla daga og kunna að ganga í myrkri. Hestinn faldi ég svo í Breið­holti þá um nótt­ina. Og það mátti ekki tæpara standa. Lög­reglan kom upp í Víðidal hálf­tíma eftir að ég teymdi hest­inn burt og voru þeir þá búnir að setja alla hesta, sem í hús­inu voru, í bíla og voru komnir lang­leið­ina suður á flug­völl. Hestinn hefði ég aldrei séð aftur ef ég hefði beðið.

Lög­reglan tal­aði við þjófinn og sagð­ist hann hafa tekið hest­inn af því að ég skuld­aði sér pen­inga. Og það var svo sem engin stór­skuld. Ég hafði sett hest­inn í tamn­ingu hjá þessum manni í fyrra og borgað honum 25 þús­und krónur fyrir. Hann vildi helst ekki taka við pen­ing­unum en fal­að­ist eftir hest­inum sem er bróðir ein­hvers mesta tölt­ara lands­ins, Snjalls frá Gerðum. Maðurinn hefur komið til mín tvisvar ásamt bróður sínum til að fala hest­inn og segja þeir að ég hafi ekk­ert með svona hest að gera, svona gam­all maður hafi nóg með hina tvo hest­ana sem ég á. Mér skilst að tamn­inga­menn taki 40 þús­und krónur fyrir að temja þannig að skuldin hefur hljóðað upp á fimmtán þús­und krónur.“

Heim­ild­ar­menn DV í hesta­mennsku segja að ekki sé fjarri lagi að meta slíkan hest á 300 þús­und krónur þannig að taxt­inn er hár hjá þessum tamn­inga­manni. En hvert verður fram­haldið hjá Haraldi?

Ætla að kæra

„Mér finnst að allir séu að ganga eftir því við mig að ég láti þetta ekki kyrrt liggja þannig að ég fer til lög­regl­unnar strax á morgun og legg fram kæru því það er greini­legt að þjóf­ur­inn er ekk­ert á því að hætta. Hann kom í gær­kvöldi á bíl að hest­hús­inu, þar sem ég geymi hest­ana mína, og lýsti það upp með bíl­ljósum til að athuga hvort hest­ur­inn væri geymdur þar inni.“ Til gam­ans má geta þess að blaða­maður og ljós­mynd­ari DV óku leið­ina, sem Haraldur gekk með ójárn­aðan hest­inn í svarta­myrkri á föstu­dags­nótt­ina, og reynd­ist hún um sex kíló­metra löng.

Sáttin

En þar með var sagan ekki öll því dag­inn eftir náðu menn­irnir tveir, Haraldur Stef­áns­son og tamn­inga­mað­ur­inn Orri Snorra­son, fullum sáttum. Haraldur borg­aði Orra skuld­ina og féll þá allt í ljúfa löð.

Hér má sjá frétt DV um sátt­ina:

Hesta­þjófn­aður í Víðidal:
„Frum­hlaup beggja aðila“

– segja deilu­að­ilar sem hafa náð sáttum

Það má segja að hér hafi verið um frum­hlaup beggja aðila að ræða en nú höfum við sæst heilum sáttum og því er ekki meira um málið að segja – það er úr sög­unni,“ sögðu þeir Haraldur Stef­áns­son, hesta­eig­andi á átt­ræð­is­aldri, og Orri Snorra­son tamn­inga­maður. Eins og kom fram í DV í gær þá kom upp deila milli þeirra tveggja sem lauk með því að Orri tók hest Haralds úr hest­húsi hans og hugð­ist selja til útlanda til að fá upp í skuld. Haraldur náði hest­inum en hugð­ist kæra Orra fyrir þjófnað. Sagðist hann vera fall­inn frá því núna. „Við erum búnir að gera okkar mál upp. Haraldur hefur greitt upp skuld sína við mig og ekk­ert meira um það að segja. Við ætlum ekki að standa í neinum illindum, enda færi þá allt í lög­fræði­kostnað sem kæmi engum að gagni,“ sagði Orri og tók Haraldur undir það. Þeir sögð­ust hafa átt mikil sam­skipti í gegnum tíð­ina og yrði svo áfram. En af hverju tók Orri hest Haralds? „Um beinan hrossa­þjófnað var ekki að ræöa því við skildum eftir skila­boð á hurð­inni, sem Haraldur skildi því miður ekki alveg,“ sagði Orri. Haraldur sagði að hest­ur­inn færi aldrei úr landi, enda væri þetta mjög efni­legur 7 vetra foli sem hann ætl­aði að eiga.

Haraldur og Orri sætt­ast
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Svipuð atvik hafa komið upp við heimili Ragnars frá árinu 2023
Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina