Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Diddú var örugglega Ítali í fyrra lífi: „Ég er alin upp í mikilli matarást“

Diddú var örugglega Ítali í fyrra lífi: „Ég er alin upp í mikilli matarást“
Diddú er afar hlát­ur­mild kona. Mynd: Þráinn Kolbeinsson

Söngdíva Íslands, Diddú er í for­síðu­við­tali í nýjasta blaði Víns og matar, sem Mannlíf gefur út. Hér má sjá brot úr við­tal­inu.

Við gengum inn í eld­húsið, þar sem hún var búin að baka focaccia-brauð sem var snætt með burrata-osti og ansjósum, asp­aspasta með reyktum sil­ungi og fal­legu sal­ati með fíkjum. Inni í þessu litla, krútt­lega eld­húsi var allt eins og hún – sér­stakt, fullt af bókum, barna­leik­föngum og týpu­legum skraut­munum. Allir hlutir eiga sinn stað, en kannski ekki alltaf sama stað­inn – svo­lítið eins og Diddú. Hún var eins og ég hafði ímyndað mér hana, nema svo miklu mann­legri, hún sýndi mann­inum sínum svo mik­inn kær­leika og henni þykir hann greini­lega enn jafn fynd­inn og þegar þau kynnt­ust á jóla­balli fyrir næstum 50 árum, þar sem hún sett­ist í fangið hans og eins og hún sagði „og ég sit þar enn“, með stóra brosið sitt sem við þekkjum öll.

ÖRUGGLEGA ÍTALI Í FYRRA LÍFI

Næst berst tal okkar að mat og ekki örl­aði á hiki þegar ég spurði hana hvaðan mat­ar­á­hrifin kæmu; „Nú frá Ítalíu, ég held að ég hafi verið þar í fyrra lífi. Ítalía talar svo sterkt til mín og djúpt inn í sál­ina. Ég bjó þar í rúmt ár með Kela og stelp­unum þegar ég var í námi og mér fannst ég komin heim og menn­ingin höfð­aði sterkt til mín; mat­ur­inn, fólkið og tón­listin. Til sam­an­burðar þá bjó ég í sex ár í Bret­landi, en fann aldrei þá teng­ingu sem ég fann fyrir á Ítalíu. Kannski teng­ist það líka því að pabbi minn var alltaf syngj­andi ítalskar aríur þegar ég var að alast upp og til stóð að hann færi til Ítalíu í söng­nám. Það var búið að finna styrkt­ar­að­ila fyrir hann, en hann lærði söng hjá Sigurði „gamla“ Demetz sem vildi senda hann til Ítalíu. Nema þá guggn­aði pabbi á að fara því mamma var orðin ófrísk að engri annarri en mér. Svo ég var eig­in­lega ástæða þess að pabbi fór ekki út,“ segir Diddú með sínum dill­andi hlátri og bætir við að pabbi hennar hafi verið með mjög ítalskt skap­ferli; ástríðu­fullur og ör. „Föð­ur­amma mín var dönsk og allt hennar slekt var mikið mat­ar­fólk, svo ég er alin upp í mik­illi mat­ar­ást og mér þykir matur og tón­list bráðna svo vel saman, því það tengir fólk saman í gleði. Ég fæ svo mikla útrás fyrir sköpun í eld­hús­inu og ég elska að elda og halda stór mat­ar­boð, það er auð­vitað mjög ítalskt, þar sem allir koma saman, tala mikið og hátt og gleðin sem mynd­ast í góðu boði er engri lík.“

Hægt er að lesa allt við­talið við Diddú í nýjasta tölu­blaði Víns og matar hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni