Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Flugfreyja bjargaði lífi þriggja ára stúlku: „Stelpan var orðin máttlaus í höndunum á okkur“

Flugfreyja bjargaði lífi þriggja ára stúlku: „Stelpan var orðin máttlaus í höndunum á okkur“

Flug­freyjan Ásta Birna Hauks­dóttir bjarg­aði lífi þriggja ára stúlku þegar brjóst­syk­ur­moli stóð í hálsi hennar á leið Flug­leiða til Vest­manna­eyja, í jan­úar 1994.

Á þessum tíma var það siður hjá Flug­leiðum að gefa far­þegum sínum brjóst­syk­ur­mola og þó að móðir hinnar þriggja ára Fann­dísar Fjólu, Sigrún Sig­mars­dóttir, vildi ekki gefa dóttur sinni brjóst­syk­ur­mol­ann, lét hún undan enda erfitt að gefa barn­inu ekki mola þegar allir aðrir fengu. Stuttu síðar hrökk mol­inn ofan í kok Fann­dísar svo hún náði ekki and­anum. Sigrún gerði allt til þess að koma brjóst­syk­ur­mol­anum úr koki dóttur sinnar en án árang­urs. Aðeins einn far­þegi reyndi að hjálpa stelp­unni en það var ungur strákur sem þó gekk ekk­ert betur en móð­ur­inni að losa mol­ann.

Stelpan var farin að missa mátt og útlitið orðið ansi svart þegar flug­freyjan Ásta Birna Hauks­dóttir steig fram og drýgði hetju­dáð og náði mol­anum úr koki Fann­dísar og bjarg­aði þannig lífi stúlkunnar litlu.

DV skrif­aði um hetju háloft­anna á sínum tíma en frétt­ina má lesa hér í heild sinni:

Bjargaði lífi lít­illar stúlku:

Hef aldrei fyrr lent í slíku – segir Ásta Birna Hauks­dóttir flug­freyja

Lítill vafi er á að Ásta Birna Hauks­dóttir, flug­freyja hjá Flug­leiðum, bjarg­aði lífi þriggja ára stúlku þegar flug­vél félags­ins var í aðflugi að Vest­manna­eyja­flug­velli í fyrra­dag, eins og skýrt var frá í DV í gær. Til­drögin vom þau að brjóst­sykur stóð fastur í koki stúlkunnar og hafði móðir hennar reynt árang­urs­laust að ná honum upp þegar flug­freyjan sá hvað verða vildi.

„Ég var á móti því að Fanndís Fjóla fengi brjóst­syk­ur­smol­ann en það er erfitt að segja nei við þriggja ára bam þegar allir aðrir fá mola,“ sagði Sigrún Sig­mars­dóttir móðir hennar í sam­tali við DV.

„Allt í einu hrökk mol­inn ofan í hana og stóð í henni. Ég reif hana úr belt­inu, lagði hana á hné mér og bank­aði á bakið á henni. Það bar engan árangur og þá stóð ég upp og reyndi að þrýsta mol­anum upp með því að taka þétt­ings­fast um mag­ann á henni. Þegar það bar heldur ekki árang­ur­leist­mér ekk­ert oröiö á blik­una. Ég kall­aði til hinna far­þeg­anna en eng­inn sinnti því. Það var ekki fyrr en ungur strákur stóð upp. Hann reif Fanndísi Fjólu úr fang­inu á mér en það hafði ekk­ert að segja. Ég var orðin veru­lega hrædd enda var stelpan orðin mátt­laus í hönd­unum á okkur. Í því kom flug­freyjan og spurði hvort stæði í henni. Ég ját­aði því og án þess að hika óð hún með finguma ofan í kok á stelp­unni. Ég held að ég hafi sjaldan orðið eins fegin og þegar flug­freyjan sagð­ist hafa náð mol­anum,“ sagði Sigrún.

Fanndís Fjóla var fljót að jafna sig en fyrst á eftir ældi hún lít­ils háttar blóði. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Sigrún lendir í svip­uðu um borð í flug­vélum Flug­leiða.

„Fyrir rúm­lega ári hrökk brjóst­sykur ofan í son minn en það var ekki eins alvar­legt og nú. Þá skrif­aði ég félag­inu og mót­mælti því að far­þegum væri boðið upp á brjóst­sykur um borð í flug­vél­unum. í svar­bréfi frá Flug­leiðum var ég beðin afsök­unar með ósk um að næsta flug­ferð yrði ánægju­legri,“ sagði Sigrún og þetta átti eftir að ger­ast í annað skipti þannig að atvikið á þriðju­dag­inn er það þriðja sem Sigrún lendir í með börn sín um borð í vélum.

Í gær­kvöldi var Ásta Birna flug­freyja í vél til Eyja og þá not­aði Fanndís Fjóla tæki­færið og færði henni blóm sem þakk­læt­is­vott fyrir björg­un­ina. Ásta Birna gerði lítið úr atvik­inu. Sagðist hún reyndar aldrei fyrr hafa lent í slíku. „En í þjálfun flug­freyja er okkur kennt að bregð­ast svona við og hún kom að notum í þessu til­felli,“ sagði Ásta Birna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina