Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

W.O.M.E.N. gagnrýnir Fjölskylduhjálpina: „Tími raunverulegra breytinga er fyrir löngu kominn“

W.O.M.E.N. gagnrýnir Fjölskylduhjálpina: „Tími raunverulegra breytinga er fyrir löngu kominn“
Ásgerður Jóna Flosa­dóttir

Stjórn W.O.M.E.N. á Íslandi gagn­rýnir Fjöl­skyldu­hjálp Íslands harð­lega í frétta­til­kynn­ingu vegna við­tals sem for­maður sam­tak­anna, Ásgerður Jóna Flosa­dóttir fór í á dög­unum, þar sem hún sagð­ist vera með sér­staka úthlut­un­ar­dag fyrir Íslend­inga vegna hót­ana og yfir­gang útlend­inga. Stjórnin skorar á Reykja­vík­ur­borg að draga Fjöl­skyldu­hjálp­ina til ábyrgðar.

W.O.M.E.N. á Íslandi, sem eru sam­tök kvenna af erlendum upp­runa, sendi frá sér frétta­til­kynn­ingu í morgun þar sem orð Ásgerðar Jónu Flosa­dóttur, for­manns Fjöl­skyldu­hjálpar Íslands, sem hún lét frá sér í útvarps­við­tali á dög­unum, eru gagn­rýnd harð­lega og ali á útlend­inga­hatri hér á landi.

Í upp­hafi til­kynn­ing­ar­innar minna sam­tökin á að þetta sé ekki í fyrsta skipti sem Fjöl­skyldu­hjálpin fær á sig gagn­rýni fyrir svip­aða orð­ræðu.

„Fjöl­skyldu­hjálp Íslands hefur aftur hlotið gagn­rýni fyrir

að mis­muna Íslend­ingum sem hér eru fæddir og þeim sem eru af erlendum upp­runa, vegna nýlegra ráð­staf­anna for­manns sam­tak­anna, Ásgerðar Jónu Flosa­dóttur

sem ákvað að skipu­leggja sér­staka daga til að dreifa aðstoð ein­göngu til inn­fæddra Íslend­inga. Ákvörð­unin er sögð stafa af ótta við hót­anir og yfir­gangs fólks af erlendum upp­runa sem eru við­tak­endur aðstoðar hjálp­ar­sam­tak­anna, en sá ótti kom ber­lega í ljós í nýlegu atviki þar sem tveir ein­stak­lingar voru sagðir hafa hótað sjálf­boða­liðum. Fjöl­skyldu­hjálp hefur verið gagn­rýnd á svip­aðan hátt

síðan 2010

, þar sem W.O.M.E.N. gagn­rýndi tvisvar áður

hér

og

hér

, ásamt öðrum og vitn­aði í þær sið­ferði­legu og laga­legu skyldur sem við höfum á Íslandi að koma jafnt fram við alla.“

Samtökin leggja áherslu á að stuðn­ingur frá sam­tökum á borð við Fjöl­skyldu­hjálp Íslands, sé mik­il­vægur og þess vegna sé afar mik­il­vægt að tryggja öryggi og aðgengi slíkra sam­taka. „Hins vegar, þó að bregð­ast eigi við slíkum áhyggjum, þá er fyr­ir­huguð lausn, að aðgreina aðstoð á grund­velli þjóð­ernis, aðeins til þess fallin að auka á vanda­málin frekar en að leysa þau eins og þau eru sögð eiga að gera.“

Segir stjórn sam­tak­anna enn­fremur að þarna sé verið að skipta fólki í tvo aðskilda hópa, þar sem inn­fæddir Íslend­ingar séu „óógn­andi“ hóp­ur­inn og Íslend­ingar af erlendum upp­runa sá hópur sem sé ógn­andi. „Þessi nálgun styrkir á áhrifa­ríkan hátt og við­heldur skað­legum staðalí­myndum óháð því hverju þeir í Fjöl­skyldu­hjálp­inni trúa eða trúa ekki.  Þessi nálgun við­ur­kennir í eðli sínu þá röngu frá­sögn að allir af erlendum upp­runa valdi vand­ræðum, einnig dýpkar hún hina félags­legu gjá milli inn­fæddra og hinna og eykur á kvíða og andúð þeirra á milli. Þetta hefur í för með sér  hættur, ekki aðeins fyrir starf­semi Fjöl­skyldu­hjálpar, heldur fyrir sam­fé­lagið í heild sinni á  tímum þar sem við erum að verða vitni að alþjóð­legum upp­gangi útlend­inga­hat­urs og auk­innar þjóð­ern­is­hyggju.  Í stað þess að ýta okkur lengra í sundur verða einu gagn­legu við­brögðin til að draga úr hópspennu að afhjúpa und­ir­liggj­andi vanda­mál sem hindra raun­veru­lega þáttt­töku og gagn­kvæman skiln­ing.“

Því næst hvetur stjórn W.O.M.E.N. Fjöl­skyldu­hjálp, í þriðja sinn, að taka gagn­rýn­inni á stefnu sinni og „reyna að þróa árang­urs­rík­ari og heild­stæð­ari lausnir til langs tíma“. „Ef mark­miðið er sann­ar­lega að tryggja öryggi og aðgengi fyrir alla ætti ekki að vera tregða til að eiga opin­skáar sam­ræður um mál­efni sem tengj­ast kyn­þætti, þjóð­ar­broti og þjóð­erni, svo fram­ar­lega sem áherslan er áfram á til­tekna hegðun frekar en á sjálfs­mynd­ina sjálfa. Sem félags­sam­tök sem leggja áherslu á að styðja íbúa af fjöl­breyttum upp­runa, bregð­umst við skyldum okkar ef við látum ótta við óþægi­legar sam­ræður hindra fram­farir í átt að upp­byggi­legum og sann­gjörnum lausnum.“

Og áfram skorar stjórnin á Fjöl­skyldu­hjálp­ina: „Við skorum því á Fjöl­skyldu­hjálp­ina að taka þátt í erf­iðum sam­tölum, hlusta á þá sem hafa eitt­hvað til mál­anna að leggja, leita eftir stuðn­ingi hjá öðrum sam­tökum sem hafa reynslu af starfi með fólki af erlendum upp­runa og grípa þessa gagn­rýni sem tæki­færi til að gera betur fyrir allt sam­fé­lagið sem hún þjónar.“

Þá skorar W.O.M.E.N. enn og aftur á Reykja­víkur borg að „draga Fjöl­skyldu­hjálp­ina til ábyrgðar og grípa til gagn­særra aðgerða til að rann­saka og bregð­ast við í sam­ræmi við þær aðgerðir sem reyn­ast vera í beinni and­stöðu við mann­rétt­inda­stefnu Reykja­víkur.“

Að lokum seg­ist stjórn W.O.M.E.N. taka málið fyrir með „var­kárri von“ um að allar yfir­lýs­ingar og skuld­bind­ingar sem komið hafa fram hafi verið „gefnar af ein­lægni“. „Hins vegar, eins og við höfum áður sagt, er ekki lengur hægt að líta á margra ára end­ur­tekin mál sem brugð­ist hefur verið við með ófull­nægj­andi hætti, sem mis­skiln­ingi. Tími raun­veru­legra breyt­inga og ábyrgðar er fyrir löngu kom­inn.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við