Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

„Ekki þannig að eftir 6 mánuði vaknirðu með krabbamein og kransæðastíflu en skínandi kviðvöðva“

„Ekki þannig að eftir 6 mánuði vaknirðu með krabbamein og kransæðastíflu en skínandi kviðvöðva“

Þær Guðrún Nanna Egils­dóttir og Dögg Guð­munds­dóttir – meist­ara­nemar í nær­ing­ar­fræði – skrifa athygl­is­verða grein er ber yfir­skrift­ina: Carnivore: Kransæða­stífla og skín­andi fínir kvið­vöðvar?

Hefst svona:

„Carnivore matar­æði hefur verið áber­andi und­an­farið og vin­sældir þess auk­ist vegna áhrifa­ríkrar sam­fé­lags­miðla her­ferðar og áhrifa­valda. Matar­æðið sam­anstendur ein­göngu af kjöti og dýra­af­urðum líkt og hráum mjólk­ur­vörum en einnig tölu­vert miklu salti og smjöri. Engin mat­væli úr plöntu­ríki eru leyfð svo þú mátt ekki neyta ávaxta, græn­metis, korns, hneta eða belg­jurta og ekki einu sinni krydd­jurta. Matar­æðið er því eins og sést, veru­lega tak­mark­andi.“

Þær færa í tal að „stæði­legir karl­menn sjást gjarnan berir að ofan á sam­fé­lags­miðlum að reyna sann­færa aðra um heilsu­efl­ingu matar­æð­is­ins með sýni­lega kvið­vöðva að vopni þar sem þeir hrópa sann­fær­andi gríð­ar­lega flóknar stað­hæf­ingar sem eiga oft ekki við nein rök að styðj­ast. Oftar en ekki með óáreið­an­legar, úreltar og/eða ‘cherry pick-aðar’ rann­sóknir á dýrum sér til stuðn­ings.

Mik­il­vægt er að hafa í huga að þó að carnivore matar­æðið geti mögu­lega gefið þér orku­efnin í þeim hlut­föllum að þú kom­ist í það lík­am­lega útlits­lega form sem þú vilt þá er svo margt að ger­ast innra með sem þú sérð ekki.“

Þær benda á að „þeir lífs­stíls­sjúk­dómar sem að carnivore matar­æðið eykur lík­urnar á eru ald­urstengdir og taka tíma að þró­ast og eru þetta aðal­lega ristil­krabba­mein og hjarta- og æða­sjúk­dómar. Það er því ekki þannig að eftir 6 mán­uði vakn­irðu allt í einu með krabba­mein og kransæða­stíflu en alveg skín­andi fína kvið­vöðva.

Einnig eru þessir þættir allir ósýni­legir sem að þú finnur ekki fyrir á meðan að þeir ger­ast. Þú finnur ekki fyrir æðunum þínum stífl­ast hægt og rólega né krabba­meini að mynd­ast í ristli. Mikið magn af rauðu kjöti, unnu kjöti, salti og mett­aðri fitu eykur lík­urnar tölu­vert á hjarta- og æða­sjúk­dómum. Mikil neysla á rauðu kjöti ein og sér eykur líkur á ristil­krabba­meini og þegar að kemur að unnu kjöti aukast líkur á ristil­krabba­meini og maga­krabba­meini. Það er því góð ástæða fyrir því að nær­ing­ar­ráð­legg­ingar mæla ekki með neyslu á rauðu kjöti yfir 500 g á viku en það finn­ast ekki tengsl við verri heilsu­farsút­komur við neyslu upp að því magni.“

Einnig:

„Svo eykst hættan á melt­ing­ar­færa­krabba­meinum og hjarta- og æðsjúk­dómum þegar magnið er komið yfir 500 g á viku. Í carnivore matar­æð­inu eru svo einnig mat­væli tekin út sem hafa vernd­andi áhrif gegn þessum sjúk­dómum, eins og trefj­a­ríkt korn, ávextir og græn­meti.“

Þær segja að „gallar matar­æð­is­ins ein­skorð­ast þó ekki aðeins við auknar líkur á ákveðnum krabba­meinum og hjarta- og æða­sjúk­dómum heldur er einnig hætta á nær­ing­ar­efna­skorti. C vítamín finnst ekki í nægi­legu magni í dýra­af­urðum og er því hætta á skyr­bjúg.

Að úti­loka öll mat­væli úr jurta­ríki úti­lokar svo líka trefjar og önnur æski­leg plöntunær­ing­ar­efni sem eru mik­il­væg heils­unni. Skortur á trefjum getur leitt til hægða­tregðu og ann­arra melt­ing­ar­vanda­mála auk þess sem við þurfum trefjar fyrir heil­brigða þarma­flóru sem spilar gríð­ar­lega stóran þátt í heilsu okkar.“

Guðrún og Dögg segja að „hinir háværu áhrifa­valdar carnivore matar­æð­is­ins eru einnig gríð­ar­lega öfl­ugir tals­menn gegn nær­ing­ar­fræð­ingum, tala um nær­ing­ar­fræði sem ‘kaó­tíska’ og segja ráð­legg­ingar nær­ing­ar­fræð­inga og Embætti Land­læknis úreltar. Það er því mik­il­vægt að nefna að umrædd óreiða kemur ekki frá nær­ing­ar­fræð­ingum heldur frá hinum ómennt­uðu ‘sér­fræð­ingum’ sem skipta reglu­lega um skoð­anir og fara úr einum öfgum í aðrar sem verður til þess að fólk heyrir stans­laust mis­mun­andi hluti.“

Nefna einnig að „nær­ing­ar­fræð­ingar eru upp til hópa að reyna eftir fremsta megni að leið­rétta vit­leys­una frá þeim sem valda ringul­reið­inni og breyt­ast ráð­legg­ingar nær­ing­ar­fræð­inga almennt lítið varð­andi lýð­heilsu. Hvað varðar ráð­legg­ingar Embætti Land­læknis þá eru þær í reglu­legri end­ur­skoðun miðað við stöðu þekk­ingar og nýjar rann­sóknir skoð­aðar með til­liti til hvort ein­hverju mætti breyta. Breyt­ing­arnar eru sjaldn­ast stór­tækar þar sem nið­ur­stöður rann­sókna eru hvorki jafn dramat­ískar né öfga­fullar og nær­ing­ar­upp­lýs­ingar áhrifa­valda.“

Nær­ing­ar­vís­indin sem og ráð­legg­ingar eru ekki að breyt­ast mikið og „vitum við ansi margt af þó nokkuð mik­illi vissu um hvaða matar­æði er gott heils­unni. Hvernig við nærum okkur í dag getur haft mikið að segja um heilsu okkar seinna á lífs­leið­inni. Fögur fyr­ir­heit um betri heilsu, aukin afköst og lægri fitu­pró­sentu með matar­æði sem gengur þvert gegn því sem vís­indin gefa til kynna er að öllum lík­indum ekki lausnin þó að það sé sett fram á mjög svo sann­fær­andi hátt. Þá er einnig hægt að öðl­ast alla þessa upp­töldu kosti með nær­ing­ar­ríku fjöl­breyttu matar­æði án öfga. Að lokum er gott að muna að nær­ing­ar­fræði er jú vís­indi en ekki skoðun. Höfundar eru.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina