Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Harmleikurinn um borð í varðskipinu Tý: „Hann leit fram starandi, tryllingslegu augnaráði“

Harmleikurinn um borð í varðskipinu Tý: „Hann leit fram starandi, tryllingslegu augnaráði“

Þann 7. jan­úar árið 1980 myrti Jón Guð­munds­son tvo skips­fé­laga sína með hníf á varð­skip­inu Tý. Fórn­ar­lömb hans voru korn­ungir menn, þeir Jóhannes Olsen og Einar Óli Guð­finns­son. Eftir að hafa sært ungu menn­ina tvo til ólífis varp­aði Jón D. Guð­munds­son sér að öllum lík­indum fyrir borð . Hann fannst aldrei.

Harm­leik­ur­inn um borð í varð­skip­inu Tý þennan dag í byrjun árs 1980 skók þjóð­ina og vakti mik­inn óhug. Jóhannes Olsen var háseti á skip­inu en Einar Óli Guð­finns­son var létta­drengur um borð. Þeir voru, eins og áður sagði, korn­ungir menn þegar lífið var hrifsað frá þeim – nán­ast drengir enn. Jóhannes var 22 ára gam­all þegar hann lést, en Einar Óli ein­ungis 18 ára.

Sá sem stakk þá til bana, Jón Guð­munds­son, var 32 ára gam­all og starf­aði sem þriðji vél­stjóri um borð. Hann var kvæntur, tveggja barna faðir.

Atburðarásin

Varð­skipið Týr hafði ekki verið lengi á sjó þegar þessi hroll­vekj­andi atburður átti sér stað. Skipið hafði lagt úr höfn þann 4. jan­úar og var að fylgj­ast með loðnu­skipum, norð­austan við Kol­beinsey árla þennan mánu­dags­morgun þann 7. jan­úar. Jón hafði nýverið lokið vakt sinni þegar hann kom inn í eld­hús skips­ins, um klukkan níu að morgni. Þar voru þeir fyrr­nefndur Jóhannes háseti og Steinar M. Clausen, báts­maður, að skrafa saman og drekka kaffi. Atburða­rásin virð­ist hafa verið afar hröð: Jón vél­stjóri greip stóran brauð­hníf úr rekka og ein­ungis urðu stutt orða­skipti áður en hann rak hníf­inn fyr­ir­vara­laust á kaf í síðu Jóhann­esar. Steinar báts­maður tók þá á rás út úr eld­hús­inu, sem var mið­skips, upp í brú, tveimur hæðum ofar. Þar lét Steinar stýri­mann­inn vita af hinni voða­legu árás á Jóhannes. Jóhannes komst sjálfur við illan leik upp í brú þar sem hann öskr­aði: „Hann er brjál­aður! Hann stakk mig!“

Eftir árás­ina á Jóhannes hafði Jón vél­stjóri hlaupið út úr eld­hús­inu og tekið á rás í átt að borð­salnum. Á þver­gang­inum framan við eld­húsið var Einar Óli staddur. Það var nýbúið að taka jóla­skrautið niður í skip­inu og Einar Óli var að bisa með ryksug­una, en hann var að hefj­ast handa við að ryk­suga í borð­salnum. Þar varð hann á vegi Jóns, sem kom hlaup­andi – ennþá með hníf­inn. Ekki varð þar neitt hik á Jóni vél­stjóra, heldur stakk hann Einar Óla í brjóstið. Strax að því loknu hljóp hann í burtu og hvarf á braut. Enginn varð vitni að árás Jóns á Einar Óla.

Vit­an­lega varð neyð­ar­á­stand í skip­inu. Hættu­á­stand var til­kynnt og menn hlupu upp til handa og fóta. Jón vél­stjóri var hvergi sjá­an­legur, en eng­inn hóf þó leit að honum strax. Mik­il­væg­ara þótti að huga að hinum særðu. Nokkrir skip­verjar voru staddir í eld­hús­inu þegar Einar Óli náði að koma sér þangað. Hann hneig niður þegar inn í eld­húsið var komið.

Það varð strax ljóst að sár Jóhann­esar var mjög alvar­legt, en Einar Óli var tal­inn hafa hlotið umtals­vert minni meiðsli. Jóhannes var með fullri rænu en afar kval­inn. Búið var um sár hans og honum gefið mor­fín til að lina þján­ing­arnar.

Siglt til Grímseyjar

Strax var haft sam­band við lækni í gegnum tal­stöð. Hann gaf fyr­ir­mæli um hvernig huga skyldi að sárum mann­anna tveggja. Bjarni Helgason skip­herra fyr­ir­skip­aði að stefnan yrði umsvifa­laust tekin á Grímsey. Þar skyldi bíða þeirra sjúkra­flug sem færi með menn­ina beint á spít­ala þar sem reynt yrði að bjarga lífi þeirra. Símtöl við gæslu og lækna gengu nokkuð treg­lega. Þrátt fyrir það var sjúkra­flug til reiðu og heil­brigð­is­starfs­fólk að leggja af stað með vél­inni til Gríms­eyjar, þegar Jóhannes Olsen lést af sárum sínum. Það leið ein­ungis um hálf­tími þar til Einar Óli Guð­finns­son var einnig lát­inn.

Eins og áður sagði gerðu skip­verjarnir sér sann­ar­lega grein fyrir því að sár Jóhann­esar var lífs­hættu­legt, en dauði Einars Óla kom þeim öllum í opna skjöldu. Meiðsli hans höfðu á yfir­borð­inu virst minna alvar­leg og það leit allt út fyrir að hann myndi lifa af fimm­tíu mílna sigl­ingu til Gríms­eyjar. Inn­vortis blæð­ingar virt­ust hins­vegar hafa verið umtals­verðar og lést Einar Óli af þeim. Þegar menn­irnir voru báðir látnir tók skipið því nýja stefnu og hélt beint til Akur­eyrar.

Leitað að morðingjanum

Þegar margir skip­verj­anna hófu leit að Jóni vél­stjóra, eftir að búið var að hlúa að hinum slös­uðu eins og hægt var, tóku sumir þeirra sér kylfu í hönd. Þeir gátu ekki með nokkru móti vitað hvers­konar ástandi Jón yrði í eða hvar hann héldi sig. Yngstu skip­verjarnir læstu sig sumir inni í klef­unum sínum meðan á leit­inni stóð. Eftir að hafa tví­vegis leitað af sér allan grun í skip­inu, komust menn­irnir að þeirri nið­ur­stöðu að Jón væri þar hvergi. Þeir sáu að hurð á þyrlu­skýli skips­ins hafði verið opnuð og þar hjá voru tveir blóð­dropar. Það varð þeim því ljóst á þessum tíma­punkti að Jón D. Guð­munds­son hefði stokkið útbyrðis eftir að hafa stungið skips­fé­laga sína tvo. Þegar menn­irnir komust að þess­ari nið­ur­stöðu var of langt um liðið og skipið komið nokkra vega­lengd frá þeim stað þar sem þeir höfðu verið á meðan hinir vofeif­legu atburðir dundu yfir, til þess að nokkur von væri um að finna Jón vél­stjóra á lífi. Í kulda eins og var á þessum árs­tíma geta menn ein­ungis lifað í um nokkrar mín­útur í sjónum á þessum slóðum. Auk þess var kolniða­myrkur, svo jafn­vel ef þeir hefðu verið á sama stað ennþá hefði verið nær ógern­ingur að sjá Jón í sjónum.

Klukkan sex að kvöldi þessa örlaga­ríka dags lagð­ist varð­skipið Týr að bryggju á Akureyri. Þar stigu rann­sókn­ar­lög­reglu­menn um borð og yfir­heyrðu skip­verj­ana. Að lok­inni rann­sókn á vett­vangi voru lík þeirra Jóhann­esar og Einars Óla flutt frá borði. Á meðan stóð áhöfn Týs heið­ursvörð á aft­ur­þiljum skips­ins.

Undarleg hegðun fyrir morðin

Verkn­aður Jóns var tal­inn hafa komið eins og þruma úr heið­skíru lofti. Fyrir sjó­rétti var reynt að kom­ast til botns í því hvað gæti hafa gerst sem olli því að vél­stjór­inn framdi ódæðið. Við yfir­heyrslur skip­verj­anna kom hins­vegar ýmis­legt í ljós. Jón virt­ist hafa hegðað sér nokkuð und­ar­lega allt frá því að Týr lagði frá höfn. Hann hafði verið óró­legur, ein­rænn og svo höfðu sumir mann­anna tekið eftir honum muldra eitt­hvað rugl við sjálfan sig þegar þeir höfðu horft saman á íþrótta­þátt í sjón­varp­inu. Hann hafði sést stika fram og aftur um gang­ana, eins og hann ætti erfitt með að vera kyrr. Sömu­leiðis hafði sést til hans stara út í loftið og keðjureykja. Allt þótti þetta afar óvenju­leg hegðun fyrir Jón, sem venju­lega var hinn besti starfs­maður, léttur og hress.

Skip­verjarnir voru hand­vissir um að árás­irnar hefðu verið gerðar í ein­hvers­konar æðiskasti.

Steinar báts­maður var eins og gefur að skilja lyk­il­vitni í mál­inu, en hann var eins og áður sagði vitni að bæði aðdrag­and­anum og árásinni á Jóhannes. Hann lýsti því hvernig hann heyrði Jón aldrei segja orð þegar hann keyrði hníf­inn í síðu Jóhann­esar. Ekki hafi hann heldur sagt orð að verkn­að­inum loknum, þar sem hann stóð með alblóð­ugan hníf í hönd, star­andi á Jóhannes.

„Hann leit fram star­andi, tryll­ings­legu augna­ráði,“ sagði Steinar um Jón vél­stjóra.

Um atburða­rás­ina um borð í Tý þann 7. jan­úar árið 1980 sagði Jón Magn­ús­son, lög­fræð­ingur Lands­helg­is­gæsl­unnar, dag­inn eftir harm­leik­inn:

„Hinn óhugn­an­legi atburður sem varð um borð í varð­skip­inu Tý upp úr klukkan níu í gær­morgun verður ekki skýrður með nokkrum rökum og í fljótu bragði finnst ekk­ert sem bendir til að ástæða eða upp­haf harm­leiks­ins hafi orðið til eftir að Týr lét síð­ast úr höfn í Reykja­vík, sl. föstu­dag.“

Bak­sýn­is­speg­ill þessi birt­ist fyrst 20. sept­em­ber 2021 og skrif­aði Gunn­hildur Kjerúlf Birg­is­dóttir hann

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni