Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Betlari ógnaði manni í miðborginni – Hnífadrengir handteknir og fangelsaðir eftir rán og ofbeldi

Betlari ógnaði manni í miðborginni – Hnífadrengir handteknir og fangelsaðir eftir rán og ofbeldi
Lög­reglan að störfum.

Kona sem var að betla á almanna­færi sýndi ekki auð­mýkt þegar hún bað um aðstoð til að lifa af í hörðum heimii. Þvert á móti var hún með ógn­andi fram­konu í því skyni að ná sínu fram. Lögregla var kölluð til en betl­ar­inn ofbeld­is­fulli var þá horf­inn á braut.

Höfð voru afskipti af erlendum rík­is­borg­urum vegna gruns um það lög­brot að þeir væru að vinna á land­inu án þess að hafa til þess atvinnu­rétt­indi. Þrennt var flutt á lög­reglu­stöð til yfir­heyrslu. Fólkið látið laust eftir að skil­ríki þess höfðu verið stað­fest.

Afskipti voru höfð af ung­mennum sem voru að brjóta sér leið inn í yfir­gefið hús­næði. Hús­töku­fólkið þumb­að­ist við að gefa upp nafn og kenni­tölur og var hand­tekið og fært á lög­reglu­stöð. For­eldrar og barna­vernd voru upp­lýst um málið. Við leit á dreng í hópnum fannst hnífur. Sá verður kærður fyrir vopna­laga­brot.

Tilkynnt var um hóp af ung­lingum sem kastaði steinum í rúðu. Þegar lög­regla kom á stað­inn var rætt við nokkra sem gáfu sig á tal við lög­reglu. Ekki var að sjá neinar skemmdir og því ekki gripið til neinna aðgerða.

Ólög­legur hæl­is­leit­andi var hand­tek­inn og sviptur frelsi vegna rann­sóknar á dvöl hans í land­inu.

Skömmu fyrir klukkan 23 í gær­kvöld var óskað eftir aðstoð lög­reglu vegna ráns. Tveir drengir undir lög­aldri voru sagðir hafa hótað þriðja aðila ofbeldi með hníf á lofti og þannig náð að ræna hann munum. Hnífa­drengirnir voru hand­teknir eftir mið­nætti og að við­höfðu sam­ráði við barna­vernd voru þeir læstir inni í fanga­klefa í  þágu rann­sóknar máls­ins.

Kona nokkur sofn­aði í sam­eign fjöl­býl­is­húss. Lög­reglan mætti og vakti hana. ekki er vitað annað en að málið hafi fengið frið­sam­legan endi og konan kom­ist í skjól.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina