Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Gunnar Smári og Stefán Einar hnakkrifust fyrir allra augum: „Fáum þykir vænt um þig“

Gunnar Smári og Stefán Einar hnakkrifust fyrir allra augum: „Fáum þykir vænt um þig“
Stefán Einar Stef­áns­son.

Gunnar Smári Egilsson og Stefán Einar Stef­áns­son hnakkrifust á Facebook í gær, fyrir allra augum.

Sós­í­alista­for­ing­inn Gunnar Smári Egilsson reifst við Stefán Einar Stef­áns­son, vín­inn­flytj­anda, blaða­mann Morg­un­blaðs­ins og sið­fræð­ing á Facebook-vegg sínum við færslu sem sá fyrr­nefndi skrif­aði í gær.

Færsla Gunnars Smára var ósköp sak­laus en þar birti hann skjá­skot úr dönskum mat­reiðslu­þætti sem sýndur var á RÚV í gær en þar kokka tveir kok­hraustir bræður saman og bendir les­endum á að betra væri að horfa bara á Sam­stöð­ina, sem er fjöl­mið­ill sem rek­inn er af Sós­í­alista­flokknum.

Stefán Einar ákvað að nota tæki­færið og skjóta fast á Sós­í­alista­for­ingj­ann og skrif­aði: „Þessir tveir eru ekki að drep­ast úr minni­mátt­ar­kennd og leið­indum. Frábær afþrey­ing og einsog Sam­stöðin, rekin fyrir opin­bert fé.“

Gunnar Smári svar­aði þessu leið­inda­skoti fullum fetum: „Morg­un­blaðið fær fjöl­miðla­styrki frá rík­is­stjórn­inni, ekki Sam­stöðin. Þetta vita allir, og meira að segja þú sem lýgur hér eins og þér er tamt.“

Og Stefán Einar svar­aði til baka og gerð­ist nokkuð orð­ljótur: „Rétt er það með fjöl­miðla­styrk­inn. Það er heið­ar­legt. Þér og rass­gat­inu er haldið uppi með styrkjum til stjórn­mála­flokka þótt engum heil­vita manni hafi dottið í hug að greiða þér atkvæði. 120 millj­ónir takk fyrir.“

Virtist hinn sið­prúði blaða­maður hafa hitt á veikan blett hjá Gunnari Smára sem svar­aði með skrítnu skoti: „Ertu enn fullur á Facebook? Hafa áfeng­is­inn­flytj­endur ekki heyrt af don’t get high on your own supply? Ef styrkir til stjórn­mála­flokka hneyksla þig skaltu segja Valhöll að skila millj­örð­unum sem Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn skammt­aði sjálfum sér. Og sem þeir hafa sóað svo að eng­inn sér þess nokkur merki. Öfugt við Sós­í­alista sem hafa ávaxtað sitt pund, marg­faldað það sem þeim var treyst fyrir.“

Sið­fræð­ing­ur­inn spurði þá til baka hvort hann hefði enga sóma­kennd „Ógeðs­legt að sjá fyrrum for­mann SÁÁ en núver­andi níð­ing hæð­ast að fólki vegna meintrar áfeng­is­neyslu. Hefur þú enga, bara nákvæm­lega enga sóma­kennd? Er þér ekk­ert heil­agt nema eigin sitj­andi?“

Gunnar Smári svar­aði á sömu nótum á áður: „Æ, hvað þú átt bágt. Ættirðu ekki að stofna sam­tök fulla karls­ins og krefj­ast þess að hann njóti meiri virð­ingar í sam­fé­lag­inu? En ef þú átt í vanda með drykkj­una skaltu leita til ráð­gjafa SÁÁ, ekki pexa við gamla for­menn á Facebook. Það er ekki bata­leið.“

Stefán Einar efldist um helm­ing við þessar blammer­ingar Sós­í­alista­for­ingj­ans: „Þarf ekki á slíku að halda en hef alltaf styrkt sam­tökin og þeirra góða starf. Magnað að þau hafi lifað þig af. Það gerir það nán­ast eng­inn, ekki einu sinni prent­smiðjur í fjar­lægum löndum. Þú ert senni­lega eina gjör­eyð­ing­ar­vopn sem við Íslend­ingar munum nokkru sinni eign­ast. Getur gjör­eytt pen­ingum ann­arra í einni svipan. Um það geta margir fyrrum við­hlæj­endur þínir vitnað um.“

Sós­í­alista­for­ing­inn leið­rétti vín­inn­flytj­and­ann um hæl: „Magnað, hvað þú ert illa að þér, og stoltur af því. Wyndeham Press lifir góðu lífi undir stjórn sömu manna, er nú hluti af einni stærstu prent­smiðju Evrópu sem er með 3700 manns í vinnu í sex löndum, veltir um 120 millj­örðum króna og skilar miklu hagn­aði.“

Vit­leysan hélt áfram er Stefán Einar svar­aði: „Þú ert hör­unds­sár eins og þú ert smár. Furðu­fyr­ir­bæri hefði Jónas sagt. En hann hefði aldrei ort um þig. Alls ekki nógu inter­es­ant.“

Gunnar Smári skaut áfram: „Talandi um Jónas, þá skaltu passa þig á stigum í þessu ástandi.“

Sá sið­prúði kom svo með kenn­ingu um „kergju“ Gunnars Smára „út í lífið“: „Fróðir menn segja mér að kergja þín út í lífið og fólk sem vegnar vel megi rekja til þess að þú hafir aldrei dratt­ast til að ljúka neinu almenni­legu námi. Væri ekki ráð að nýta eitt­hvað af rík­is­styrknum til að bæta úr því? Fyrst þú nefnir Jónas gæti það verið íslenskan. Svo held ég að þú gætir orðið fyr­ir­taks dýra­læknir en það er kannski of langt nám fyrir svona gamlan mann.“

Þegar þarna er komið við sögu í þessum merki­legu rifr­ildum var Gunnar Smári orð­inn þreyttur á þessu að því er virt­ist: „Æ æ, er eng­inn þarna nærri þér sem finnur til með þér, nóg til að taka af þér lykla­borðið?“

Stefán Einari fannst þá smekk­legt að segja að fáum þætti vænt um Gunnar Smára: „Eða próf­skír­teinin sem þú hefur hæðst af í gegnum tíð­ina. Þú ert lægsta kjarrið kæri Gunnar. Fáum þykir vænt um þig en margir kenna í brjósti um þig. Ég fylli þann flokk.“ Bætti sið­fræð­ing­ur­inn svo hjarta við orð sín.

Hinu epíska rifr­ildi lauk síðan með því að Gunnar Smári sagð­ist ekki nenna því lengur: „Ég get ekki dvalið hér lengur, ætla að fá mér kvöld­göngu. Vonandi sofn­arðu fljótt og finnur ein­hvern frið.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina