Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fríða vill að vantrauststillaga verði lögð fram á Sigríði Dögg: „Blaðamannafélagið er búið að vera“

Fríða vill að vantrauststillaga verði lögð fram á Sigríði Dögg: „Blaðamannafélagið er búið að vera“
Sigríður Dögg Auð­uns­dóttir

Fríða Björns­dóttir, blaða­maður númer eitt, segir að Blaða­manna­fé­lag Íslands sé búið að vera.

Hinn gam­al­kunni blaða­maður og fyrr­ver­andi fram­kvæmd­ar­stjóri Blaða­manna­fé­lags Íslands, Fríða Björns­dóttir, gagn­rýnir nýjan for­mann félags­ins harð­lega í sam­tali við Mannlíf. Fríða, sem er fyrsti með­limur félags­ins er einnig afar ósátt við laga­breyt­ingu sem leggja á fram á fram­halds­að­al­fundi félags­ins næst­kom­andi mið­viku­dag. Þar er meðal ann­ars stungið upp á að blaða­menn sem hættir séu störfum vegna ald­urs eða örorku missi atkvæð­is­rétt sinn um mál­efni félags­ins.

Hér má lesa til­lög­una sem lögð verður fram á mið­viku­dag­inn:

2.3. gr. verði svohljóð­andi:

„Félags­manni, sem hættir störfum vegna ald­urs eða örorku, skal vera heim­ilt að vera áfram félagi hafi hann greitt félags­gjöld til félags­ins næst­liðna 6 mán­uði áður en hann lét af störfum. Hann skal eftir það vera und­an­þeg­inn greiðslu félags­gjalda og hafa mál­frelsi og til­lögu­rétt á fundum félags­ins en ekki atkvæð­is­rétt.“

„Ég lít svo á að félagið sé búið að vera, bara hreint og klárt,“ segir Fríða í sam­tali við Mannlíf og innt eftir ástæðu fyrir þeirri skoðun svar­aði hún: „Það er bara búið að vera að öllu leyti.“ Nefnir hún sem dæmi, sem þó sé lítið í stóra sam­heng­inu, að kaffi­hitt­ingar blaða­manna á föstu­dögum í húsa­kynnum Blaða­manna­fé­lags­ins, sem var orðin hefð og nokkuð vin­sæl hjá gam­al­reyndum blaða­mönnum, hafi verið hætt undir nýrri stjórn. „Kaffið á föstu­dögum skiptir auð­vitað engu máli þannig nema að það er gaman að hitt­ast og það komu stundum yngri blaða­menn en 100 ára í kaffi á föstu­dögum, þannig að maður hafði sam­band við lífið og til­ver­una og þeir við okkur eldri.“ Þá nefnir Fríða einnig laga­breyt­ing­ar­til­lög­una sem birt­ist hér fyrir ofan: „En þegar það er búið að leggja það til, en það er ekki búið að sam­þykkja það en auð­vitað verður það sam­þykkt því við erum ekki nógu mörg. Við erum þó með atkvæð­is­rétt þangað til. En þegar allt þetta er farið þá er það sem einu sinni hét Blaða­manna­fé­lag Íslands, það er það ekk­ert lengur.“

Vantraust á formanninn

Aðspurt hvort hún hafi heyrt að van­traust­s­til­laga á for­mann Blaða­manna­fé­lags­ins, Sigríði Dögg Auð­uns­dóttur verði lögð fram á fram­halds­að­al­fund­inum á mið­viku­dag, ját­aði hún því. „Já, það hefur verið sagt í mín eyru að það ætti að bera van­traust­til­lögu á for­mann­inn og ég er út af fyrir sig algjör­lega sam­mála því.“

Þá talar Fríða um aðra til­lögu sem hún vill bera fram á fund­inum: „Ég vil óska þess eða krefj­ast þess að vegna þess að það er búið að eyða millj­ónum í að finna út hvort eða hvort ekki Hjálmar [Jónsson, fyrr­ver­andi for­maður BÍ. Innsk. blaða­manns] sé sekur um allt milli him­ins og jarðar, að þá finn­ist mér rétt að for­mað­ur­inn geri hreint fyrir sínum dyrum og sanni sak­leysi sitt.“ Á Fríða þar við meint skatta­laga­brot Sigríðar Daggar Auð­uns­dóttur sem fjöl­miðlar fjöll­uðu um í fyrra en í jan­úar á þessu ári kvaðst hún, í sam­tali við Mannlíf, vera sak­laus af slíkum brotum. Og Fríða heldur áfram og sagð­ist hafa hringt í Sigríði Dögg ein­hvern tíma út af sjúkra­sjóð­unum en Fríða var þá stödd í Banda­ríkj­unum: „Við töl­uðum saman og til að byrja með var allt á ljúfum nótum en svo segir hún allt í einu „Ég hef frétt að þú sért að bera mig út um allt,“ sem sagt sögur um hana senni­lega. Og ég sagði „Hvað er sagt að ég segi um þig?“ „Að ég sé skattsvik­ari.“ Og þá segi ég „Það er rétt eftir mér haft. Það er það sem maður er búin að lesa. Við vitum ekk betur, alveg eins og allt sem var borið á Hjálmar, sem var svo ekki glæpur sem hægt væri að dæma einn eða neinn fyrir.“ Þannig að ég stend við það, á meðan hún afsannar það ekki, að þessi áburður sem hefur verið bor­inn á hana úti í bæ af fólki og fjöl­miðlum, ef það er ekki borið til baka og sýnt fram á að það sé lygi. Ég get þá farið og beðið hana afsök­unar, ef það reyn­ist vera lygi, ef ekki, þá finnst mér ekki að blaða­manna­fé­lag geti haft ein­hvern sem hefur brotið ein­hvers konar lög eða opin­berar reglur á sviði pen­inga­mála eða ann­arra mála, sem for­mann félags­ins.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina