Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Boða mótmæli gegn valdníðslu og ofbeldi lögreglu: „Slíkir einstaklingar ekki starfi sínu vaxnir“

Boða mótmæli gegn valdníðslu og ofbeldi lögreglu: „Slíkir einstaklingar ekki starfi sínu vaxnir“
Piparúða spreyjað á mót­mæl­endur. Mynd: RÚV-skjáskot

No Borders Iceland boðar til frið­sam­legra mót­mæla við lög­reglu­stöð­ina við Hlemm gegn vald­níðslu og ofbeldi lög­reglu þriðju­dag­inn 3. sept­em­ber klukkan 17:00.

No Borders Iceland, sem er hreyf­ing aðgerða­sinna sem berj­ast fyrir rétt­indum flótta­fólks og opnun landamæra, boða nú til frið­sam­legra mót­mæla við lög­reglu­stöð­ina við Hlemm. Fjórum meg­in­málum verður kraf­ist á mót­mæl­unum og eru það eft­ir­far­andi mál: Að 19. grein lög­reglu­laga verði felld úr gildi, að vopna­væð­ingu lög­reglu verði hætt, að fallið verð frá öllum áformum um fanga­búðir ætl­uðum full­orðnu fólki og börnum á flótta og að lög­reglu­fólk axli per­sónu­lega ábyrgð á þátt­töku sinni í níð­ings­verkum, eins og það er orðað.

Hér má lesa yfir­lýs­ingu hreyf­ing­ar­innar í heild sinni:

No Borders Iceland boðar til frið­sam­legra mót­mæla við lög­reglu­stöð­ina við Hlemm gegn vald­níðslu og ofbeldi lög­reglu. Ítrekuð harka­leg við­brögð yfir­valda við lög­mætum kröfum almenn­ings fyrir rétt­læti, mann­helgi og stuðn­ingi við fólk á flótta. Þessar aðgerðir, ásamt áformum um frek­ari vopna­væð­ingu, fanga­búðum ætl­uðum full­orðnu fólki og börnum á flótta og nýsam­þykkt lög um for­virkar rann­sókn­ar­heim­ildir, gefa til­efni til mót­mæla gegn aðför lög­reglu­yf­ir­valda að frelsi og rétt­indum í sam­fé­lag­inu.

19. grein lögreglulaga og aðför að tjáningarfrelsinu

Þess er kraf­ist að 19. grein lög­reglu­laga verði felld úr gildi. Hún skyldar almenn­ing til að hlýða lög­regl­unni án skil­yrða. Engum er treystandi fyrir slíku alræð­is­valdi, sama hver meintur ásetn­ingur kann að vera. Lög­reglan hefur ítrekað beitt því valdi sem greinin færir henni til þess að afnema rétt­inn til tján­ing­ar­frelsis og mót­mæla að eigin geð­þótta. Nýleg dæmi eru til­efn­is­lausar árásir lög­reglu á almenna borg­ara við mót­mæli í skugga­sundi þann 31. maí þar sem lög­reglu beytti piparúða gegn frið­sömum mót­mæl­endum. Þeir atburðir end­ur­tóku sig síðar 12.júní en þar beytti lög­regla einnig piparúða gegn þeim þing­mönnum sem hún þótt­ist standa vörð um.

Það að lög­reglan reyni að draga fram þá mynd að mót­mæl­endur séu hættu­legir og vafa­samir ein­stak­lingar sem eiga allt ofbeldi skilið er stór­hættu­legt lýð­ræð­inu og tján­ing­ar­frels­inu.

Kynþáttafordómar og ofbeldi gegn jaðarsettum

Þess er kraf­ist að fallið verði frá öllum áformum um fanga­búðir fyrir fólk á flótta þar sem lög­reglu verður heim­ilað að færa börn í varð­hald. Áformin eru knúin áfram af kerf­is­lægum ras­isma og hvítri yfir­burða­hyggju. Þeirri hug­mynd þræla­halds­ins að hvít yfir­stétt geti hneppt brúnt eða svart fólk í fjötra að eigin geð­þótta er harð­lega mót­mælt.

Vopna­væð­ing og vald­beit­ing lög­reglu bitnar verst á þeim hópum sam­fé­lags­ins sem nú þegar verða fyrir hvað mestri mis­munun, þá má líka nefna fólk með fíkni­vanda og geð­ræn vand­mál.

Ábyrgðarleysi og valdafíkn

Lög­reglan hefur sífellt falið sig á bak­við þá stað­hæf­ingu að þau séu aðeins að fara eftir skip­unum þegar kemur að því að fram­kvæma níð­ings­verk. Þegar öllu er á botni hvolft þá eru það ekki ráða­menn sem sjá um að á leita að fylgd­ar­lausum börnum á flótta í felum þegar brott­vísa á þeim úr landi.

Stað­hæf­ing lög­reglu­fólks byggir aug­ljós­lega á sandi í ljósi þess að í siða­reglum lög­reglu er það tekið skýrt fram að:

„Starfs­mönnum lög­reglu er skylt að hlýða lög­legum fyr­ir­skip­unum yfir­manna um störf sín, svo fram­ar­lega að þau brjóti ekki alvar­lega gegn­sið­ferð­is­kennd hans.“

Ef að níð­ings­verk á borð við það að senda fylgd­ar­laus börn á flótta aftur í hættu­legar aðstæður fara ekki gegn sið­ferð­is­legum átta­vita lög­reglu­fólks sem hefur það hlut­verk að tryggja öryggi almenn­ings þá er það dags­ins ljóst að slíkir ein­stak­lingar séu ekki starfi sínu vaxnir.

Mætum öll fyrir utan lög­reglu­stöð­ina við Hlemm og látum í okkur heyra! Einnig er því lög­reglu­fólki sem sið­ferð­is­lega ofbýður starf sitt vel­komið að segja upp störfum og leggja okkur mót­mæl­endum lið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Mótmæli

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi