Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Vasilii segist hafa verið sendur fárveikur heim af HSS: „Ég var með öll einkenni heilablóðfalls“

Vasilii segist hafa verið sendur fárveikur heim af HSS: „Ég var með öll einkenni heilablóðfalls“
Vasilii Sopil­nyak Mynd: Aðsend

Vasilii Sopil­nyak, 64 ára gam­all Úkra­ínu­maður sem býr hér á landi segir mis­tök íslenskra lækna hefðu getað kostað hann lífið.

Í upp­hafi stríðs­ins í Úkraínu, bauð Vasilii sig fram í þjóð­varn­ar­liðið, en hann þurfti að fæða fjöl­skyldu sína og neydd­ist til að fara til útlanda en hann á konu og börn. Um leið og Vasilii fékk dval­ar­leyfi hér á landi hóf hann að vinna. Hann hefur unnið á bygg­ing­ar­svæðum, smíðað vegi, þvegið bíla, unnið í fisk­vinnslu og svo fram­vegis. En svo veikt­ist hann.

„Þann 23. apríl fór ég á heilsu­gæslu­stöð í Keflavík og kvart­aði undan van­líðan og sagði þeim að ég hefði glímt við slag­æða­vanda­mál í mörg ár. Mér var sagt að mér yrði vísað til hjarta­læknis, en engin til­vísun barst. Í júní flutti ég til Nes­kaup­staðar, kom illa far­inn á spít­al­ann og sagði þeim frá ein­kennum mínum aftur,“ segir Vasilii í sam­tali við Mannlíf. Og hann heldur áfram:

„Mér var lofað að ég fengi tíma hjá hjarta­lækni og sagt að lækn­ir­inn myndi hitta mig í sept­em­ber eða októ­ber. Þann 23. des­em­ber lauk samn­ingi mínum hjá Síld­ar­vinnsl­unni. Ég fór þá til Úkraínu og í lok jan­úar fékk ég heila­blóð­fall.“

Endurkoman til Íslands

Eftir að hafa legið á spít­ala í mánuð kom Vasilli aftur til Íslands.

„Ég var á sjúkra­húsi í mánuð. Þann 24. mars kom ég aftur til Íslands og kom með allar sjúkra­hús­skýrsl­urnar með mér. Ég bað lækn­inn um að gera seg­u­l­óm­skoðun til að stað­festa veik­indi mín. Í apríl og maí fór ég ítrekað á Heil­brigð­is­stofnun Suð­ur­nesja og kvart­aði undan end­ur­teknum köfn­un­ar­köstum og útskýrði fyrir læknum að ég væri með hjarta­öng. Lækn­ir­inn sagði mér að það væri bara stress við að flytja til ann­ars lands. Köstin hættu ekki og ég þurfti að fara á sjúkra­hús nokkrum sinnum. Sem betur fer hlust­aði Stefán læknir á kvart­anir mínar og vís­aði mér í seg­u­l­ómun. Nið­ur­staðan var sú að kransæðin væri 90 pró­sent stífluð. Ég fékk ekki tíma hjá Stefáni fyrr en þremur vikum síðar, sem vís­aði mér á Land­spít­al­ann.“

Þegar á Land­spít­al­ann var komið var Vasilii fljót­lega sendur í bráða­upp­skurð, hann var að deyja.

„Þegar ég kom á spít­al­ann var ég lagður upp í rúm, settur var skynjara á mig og ég var skoð­uður í klukku­tíma. Svo kom hjúkr­un­ar­fræð­ingur og sagði mér að ég yrði fluttur með sjúkra­bíl á hjarta­stöð og að bráða­að­gerð yrði fram­kvæmd því ég væri með ban­vænan sjúk­dóm, ég gæti dáið.“

Veikari en hann hefði þurft að vera

Vasilii er nú afar veikur og hefur verið í veik­inda­leyfi síð­ustu átta mán­uði.

„Ég hef farið til lækna síð­ast­liðið eitt ár vegna mjög slæmrar heilsu. Vegna þess að ég var ekki rétt greindur í tæka tíð er ég búinn að vera í veik­inda­leyfi í 8 mán­uði, fékk heila­blóð­fall og var mjög nálægt því að fá hjarta­á­fall. Og á end­anum hefði ég bara getað dáið.“

Aðspurður seg­ist Vasilii ekki endi­lega telja að mis­tök lækn­anna hafi tengst því að hann sé útlend­ingur en finnst skrítið að lækn­ir­inn á HSS hafi sagt honum að það væri allt í lagi með hann, hann væri bara stress­aður vegna flutn­inga í annað land og að hann vildi bara ekki vinna. „Ég var með öll ein­kenni heila­blóð­falls en hann gaf mér bara vott­orð fyrir þriggja daga veik­inda­leyfi, það var allt.“ Vasilii líður orðið aðeins betur en fær þó enn köst. Hann er enn óvinnu­fær og getur ekki borgað lög­mönnum sínum. Algjör þögn ríkir hjá tryggina­fé­lagi hans að sögn Vasilii. „Ef þeir hefðu að minnsta kosti greint hann í tæka tíð eða í það minnsta sent hann í MRI skanna, í stað þess að tala um sál­fræði­legan kvilla, þá hefði hann getað forð­ast þessar afleið­ingar,“ segir vin­kona Vasilii sem Mannlíf ræddi við.

Vill ekki að aðrir lendi í því sama

Vasilii seg­ist ekki reiður og að hann vilji ekki kvarta en kemst þó við þegar hann hugsar út í órétt­lætið og skort á skiln­ingi á því hvers vegna þetta getur gerst.

„Ég hef þegar verið á barmi dauð­ans. Núna er ég rólegur yfir þessu, en þegar ég hugsa um annað fólk sem gæti dáið vegna rangrar grein­ingar þá finnst mér ég verða að vara það við.“

Hann end­ur­tekur oft eins konar retor­íska spurn­ingu „Hvernig var hægt að sjá öll ein­kenni heila­blóð­falls hjá manni og leyfa honum bara að fara heim? Og þegar ég var aftur kom­inn í lífs­hættu og liggj­andi á sjúkra­húss­sóf­anum í Reykja­vík, ákváðu lækn­arnir loks­ins að leggja mig inn á sjúkra­hús, sögðu að allt annað væri nú ban­vænt fyrir mig. Í alvöru? Ekki fyrr en núna?“ Bætir hann við: „Ég tek hatt­inn ofan fyrir þessu teymi hjarta­lækna … en ef sam­starfs­menn þeirra hefðu ein­fald­lega ávísað mér í við­eig­andi með­ferð eða sent mig í prufur fyrr, hefði verið hægt að forð­ast þetta allt.“

Að lokum seg­ist Vasilii vilja koma í veg fyrir að aðrir lendi í því sama.

„Ég er bara að segja að ef ekki verður gripið til aðgerða mun fólk á Íslandi halda áfram að þjást vegna van­hæfni lækna. Ertu viss um að í dag sértu ekki að lama eitt­hvað heldur lækna það?“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina