Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Blaðamannafélagið á barmi klofnings: Tillögur stjórnar um að svipta eldra fólk atkvæðisrétti felld

Blaðamannafélagið á barmi klofnings: Tillögur stjórnar um að svipta eldra fólk atkvæðisrétti felld
Freyja Stein­gríms­dóttir fram­kvæmda­stjóri og Sigríður Dögg Auð­uns­dóttir for­maður Blaða­manna­fé­lags­ins

Mikil átök voru á fram­halds­að­al­fundi Blaða­manna­fé­lags Íslands í gær­kvöld þar sem tek­ist var á um breyt­ing­ar­til­lögur á lögum félags­ins. Sú til­laga sem fór verst í fólk var sú að afnema skuli atkvæð­is­rétti öryrkja og eldri blaða­manna sem komnir eru á eft­ir­laun.

Aðför að mannorði

Fund­ur­inn hófst með hvelli þegar borið var upp van­traust á Sigríði Dögg Auð­uns­dóttur for­mann sem hefur verið í umræð­unni vegna meintra skattsvika sinna. Þá hefur Sigríður verið gagn­rýnd fyrir það sem sumir kalla aðför að Hjálmari Jónssyni, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóra, sem stjórn félags­ins lýsir sekan um mis­ferli í fjár­málum eftir að millj­ónum króna hefur verið eytt í að rann­saka fjár­reiður félags­ins undir hans stjórn. Þrátt fyrir áfell­is­dóm stjórn­ar­innar mun Hjálmar ekki verða lög­sóttur en situr uppi með aðför að mann­orði sínu. Hjálmar mætti á fund­inn en sagði það vera í síð­asta sinn að óbreyttu sem hann kæmi á þann vett­vang. Í til­lög­unni sem Fríða Björns­dóttir og fleiri báru upp var vakin athygli á fjár­mála­ó­stjórn í félag­inu og ábyrgð stjórnar í þeim efnum. Um þriðj­ungur fund­ar­manna studdi til­lög­una sem var felld.

Frá aðla­fundi Blaða­manna­fé­lags Íslands.

Miklar umræður spruttu um þá til­lögu stjórnar að afnema atkvæð­is­rétt öryrkja og eldri borg­ara. Sá ásetn­ingur var for­dæmdur af eldri fund­ar­mönnum sem töldu um hreina aðför ræða. Elsti blaða­maður á Íslandi og einn flutn­ings­manna til­lög­unnar, Fríða Björns­dóttir, for­dæmdi þessi áform. Pétur Þor­steins­son vakti athygli á gjánni á milli eldri félags­manna og hinna. Hann sagði að boð­aðar laga­breyt­ingar væru „Lög unga fólks­ins“. Lúðvík Geirsson, fyrr­ver­andi for­maður Blaða­manna­fé­lags­ins, bar fram sátta­til­lögu um að laga­breyt­ingin fæli í sér að eldri félags­menn hefðu ekki atkvæð­is­rétt í málum sem snúa að vinnu­deilum og kjara­samn­ingum Sú til­laga ver felld með tals­verðum mun. Til að fá fram sam­þykki á laga­breyt­ingum þurfti hreinan meiri­hluta. Í skrif­legri og leyni­legri atkvæða­greiðslu voru þær til­lögur felldar og stjórnin varð þar með undir.

Mikil heift var á fund­inum og aug­ljóst að félagið er á barmi klofn­ings. Meðal þeirra sem höfðu sig mest í frammi voru Heimir Már Pét­urs­son, frétta­maður Stöðvar 2, og Arn­þrúður Karls­dóttir, útvarps­stjóri á Sögu. Þá flutti Agnes Braga­dóttir, fyrr­ver­andi blaða­maður Moggans, eld­messu þar sem hún for­dæmdi fram­göngu Sigríðar Daggar og stjórnar hennar.

Fyr­ir­vari: Höfundur er full­greið­andi félagi í Blaða­manna­fé­lagi Íslands.  

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina