Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Þórdísi Kolbrúnu kennt um risagjaldþrot – Skagamenn ævareiðir vegna 3X

Þórdísi Kolbrúnu kennt um risagjaldþrot – Skagamenn ævareiðir vegna 3X
Þórdís Kolbrún R. Gylfa­dóttir.

Risa­gjald­þrot Skagans 3X á Akranesi er að hluta rakið til þess að Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir ákvað óvænt að loka sendi­ráði Íslands í Moskvu. Skaginn, sem fram­leiddi hátækni­búnað til mat­væla­fram­leiðslu, átti mikla hags­muni í Rúss­landi og var þar víða með við­skipta­tengsl við mat­væla­fram­leið­endur.

Þegar lokun sendi­ráðs­ins var til­kynnt þann 9. júní í fyrra. Ákvörð­unin kom lang­flestum í opna skjöldu. Talið er að ráð­herr­ann hafi ekki rætt málið við aðra en Bjarna Bene­dikts­son, for­mann flokks­ins. Hermt er að Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra hafi verið upp­lýst um málið seint að kveldi 8. júní og þá hafi ákvörð­unin þegar verið tekin. Ísland er eina landið á meðal vest­rænna þjóða sem greip til svo rót­tækra aðgerða. Aðrar þjóðir létu við­skipta­bann nægja og nokkrar þjóðir hafa leynt og ljóst farið á bak við bannið.

Yfirvarp ráð­herr­ans var það að það færi gegn for­gangs­röðun í ut­an­rík­isþjón­ustu Íslands að starf­rækja sendi­skrif­stofu í Moskvu við nú­ver­andi aðstæður. „Ákvörðun um að leggja niður starf­semi sendi­ráðs­ins fel­ur ekki í sér slit á stjórn­mála­sam­bandi ríkj­anna. Um leið og aðstæður leyfa verður lögð áhersla á að hefja starf­semi sendi­ráðs Íslands í Moskvu á ný,“ seg­ir í til­kynn­ing­u utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins á þessum tíma og fyr­ir­svar Íslands gagn­vart Rúss­landi færð­ist til utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins.  Í kjöl­far fregn­anna í júní til­kynntu Rúss­ar að ákvörðun ís­lenskra stjórn­valda myndi hafa af­leið­ing­ar. Þetta kom strax í ljós þegar sam­skipti stjórn­enda Skagans urðu að engu. Heim­ild­ar­maður Mannlífs orð­aði þetta þannig að við­skipta­tengslin hefðu gufað upp á einni nóttu. „Þá slitn­uðu þræð­irnur og hún sló þetta kalt með lokun sendi­ráðs­ins,“ segir hann og telur mikla heift vera hjá Rússum í garð Íslend­inga.

Útlaginn Gunnar Bragi

Rússa­við­skipti hafa áður haft áhrif í stjórn­mál­unum. Þau urðu Gunnari Braga Sveins­syni að falli sínum tíma. Gunnar Bragi er Skag­firð­ingur og naut náðar Þórólfs Hall­dórs­sonar kaup­fé­lags­stjóra í Skaga­firði. Þegar hann var utan­rík­is­ráð­herra ákvað hann að setja við­skipta­bann á Rússa vegna stríðs­ins á Krím­skaga og fram­göngu Rússa. Þetta kom afar illa við Kaup­fé­lag Skag­firð­inga sem átti mikla hags­muni í útflutn­ingi. Gunnar Bragi komst í ónáð og póli­tískur fer­ill hans komst á enda­stöð. Hann gekk til liðs við Mið­flokk­inn og féll svo út af þingi við hrun flokks­ins.

Mikil reiði er í garð Þórdísar Kol­brúnar á Akranesi vegna slauf­unar á Rússum. Þótt lokun Rússa­við­skipt­anna hafi aðeins verið hluti af vanda Skagans eru margir sem líta þannig á að aðgerðin hafi verið stór ástæða þess að 120 manns misstu vinn­una á Akranesi. Þetta er talið verða henni dýr­keypt. Fyrir sein­ustu kosn­ingar var ætl­unin sú að Þórdís færði sig í Kragann og stefndi á öruggt sæti á eftir for­mann­inum. Þá hefði hún þurft að taka slag­inn við Jón Gunn­ars­son en mætti öfl­ugri mót­spyrnu.

Jón Gunn­ars­son dóms­mála­ráð­herra.

Plottið var að Jón yrði for­stjóri Neyð­ar­lín­unnar og brautin því greið fyrir Þórdísi. Jón vildi ekk­ert með það starf hafa og gerði fólki grein fyrir að hvor­ugt þeirra myndi lifa af próf­kjörs­slag. Þórdís Kolbrún hrökk til baka og atti kappi við Harald Bene­dikts­son um efsta sætið í Norð­vest­ur­kjör­dæmi og sigr­aði. Haraldur er nú bæj­ar­stjóri á Akranesi en ekki hefur gróið um heilt eftir leið­togaslag­inn. Nú er umræðan sú að Þórdís muni færa sig í Kragann og verða arf­taki Bjarna í því kjör­dæmi.

Ekki er víst að hróker­ing muni duga til að leysa vanda utan­rík­is­ráð­herram. Vandinn er sá að það eru mun fleiri fyr­ir­tæki sem blæðir vegna lok­unar Rúss­lands. Flestir for­svars­manna þeirra tala um frum­hlaup Þórdísar Kol­brúnar sem hafi skákað litla Íslandi fram fyrir aðrar þjóðir og stór­skaðað hags­muni þjóð­ar­innar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina