Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Skortur á serótónín

Skortur á serótónín

Gunnar Dan Wiium er starfar sem versl­un­ar­stjóri Hand­verks­húss­ins, þátt­ar­stjórn­andi hlað­varps Þvotta­húss­ins og umboðs­maður, ritar grein.

Þar segir:

„Mikil umræða hefur verið upp á síðkastið um skerta sam­kennd og hnignun í sið­ferði í sam­fé­lag­inu. Eins og að fólk vakni í smá stund þegar með­bræður og systur á öllum aldri eru myrt og svikin.

Í þessu litla sam­fé­lagi sem við búum í eru allir á ein­hvern hátt tengd svo allir þekkja ein­hvern sem alla­vega þekkir ein­hvern sem upp­lifir missir og ómælda sorg. Þessi sorg vekur okkur, opnar augu okkar í eitt augna­blik þar sem við spyrjum gildra spurn­inga. Af hverju ger­ast þessir hlutir og hvar liggur orsaka­sam­hengið?

Samkennd færir okkur saman og fær ein­stak­ling­inn til að sjá sig í öðrum. Samkennd fær mig sem ein­stak­ling til að upp­lifa sorg og gleði ann­ara og við­skipti á til­finn­ingum á sér stað. Allt verður eitt og sam­fé­lags­vit­undin rís á það svið sem henni er ætlað. Okkur er ekki ætlað að vinna á móti hvort öðru með spill­ingu og ofbeldi. Við skipt­umst á reynslu hvers ann­ars í virkri sam­kennd og berum raunir hvors ann­ars. Svo­leiðis á sam­fé­lag að virka en samt finnum við okkur á stað þar sem hópa­skipt­ingin er algjör og ríkj­andi hug­mynda­fræði­legur klofn­ingur og þetta rof klæðum við í alls­konar bún­inga eins og við raun­veru­lega höldum að við sem heild mögu­lega komumst upp með það.

Þeir sem sitja í þeirri stöðu að eiga fjár­magn á tímum sem þessum, og nú tek ég það sem dæmi, þeir prísa sig sæla því bún­ing­ur­inn þægi­legur og úr silki en á meðan er stór hluti þjóð­ar­innar að berj­ast fyrir mylsnum. Stór hluti þjóð­ar­innar upp­lifir sig í fjár­hags­legu, hús­næð­is­legu og fyrir vikið í til­finn­inga­legu óör­yggi á meðan lít­ill hluti sömu þjóðar ávaxtar auð sinn og upp­lifir kreppu fjöld­ans sem góð­æri.

Þingfólk með áskrift að ráð­herra­stólum eru háls­dýpt í alls­konar mega við­skiptum og ég hélt að það væri ekki einu sinni leyfi­legt. Ég hélt að þessir ein­stak­lingar þyrftu að skrifa undir eitt­hvað sem segir þeir beri ekki neina hags­muni sér­staka nema hags­muni þjóð­ar­innar hvað sem það “hug­tak” raun­veru­lega þýðir fyrir þeim.

Þessir ein­stak­lingar stunda við­skipti í nafni einka­væð­ingar og ávallt á kostnað raun­veru­legra við­skipta byggð á sam­kennd. Og þessi sjúk­dómur er smit­andi, sam­kennd­ar­skort­ur­inn, hann leiðir í allar stéttir, svo­kall­aða mið­stétt og lástétt, öll einka­væð­umst við. Í van­trausti og reiði byrjum við svíkja og berj­ast fyrir því sem við ótt­umst að ann­ars verði tekið af okkur. Í þessu ástandi er ég að horfa upp á rísandi svarta vinnu því fyrst að þeir eða þau sem stjórna land­inu svindla og kom­ast upp með af hverju ættum við hin ekki að gera slíkt hið sama. Algjör sundr­ung og ó-skil­virkni, ábyrgð­ar­leysi og reiði sem leiðir af sér ofbeldi og stríð.

Serótónín er að mestum hluta myndað í melt­ing­ar­færum og í tauga­frumum mið­tauga­kerf­is­ins. Wilkipedía segir að þegar enterókrómaffín­frum­urnar fyll­ast af serótónínin er því seytt út í blóðið og blóð­styrkur þess hækkar. Blóð­flögur og tauga­frumur geta þá tekið serótónín upp úr blóð­inu. Með fram­leiðslu og upp­töku serótónín finnum við fyrir sam­kennd og við sjáum í raun bara eina hag­sæld ganga yfir okkur öll en ekki aðeins innan innan ein­hvers ákveð­ins hóps.

Við rústum heil­brigðum boð­efna við­skiptum með alkó­hóli meðal ann­ara efna sem hindrar end­ur­upp­töku á boð­efnum. Við kljúfum okkur frá nátt­úr­unni með alls­konar aðferðum eins og með sýkla­lyfjum sem við tökum eins og háls­brjóst­sykur og fyrir vikið hreinsum út þarma­flór­una þar sem þessi dýr­mætu boð­efni verða til. Skortur á serótónín fer með okkur í þung­lyndi og kvíða sem eðli­leg afleið­ing og þá rjúkum við í hinar og þessar geð­frá­viks­grein­ingar með “við­eig­andi” lyfja­gjöf.

Matvælin okkar eru unnin í drasl og margir eiga ekki ann­ara kosta völ því líf­rænn bíody­nemískur matur kostar þrefalt meira og þá eigum við ekki fyrir bens­íni einu sinni til að kom­ast út í búð til að kaupa mat yfir höfuð.

Allt þung­lyndi heims­ins, ein­manna­leiki, reiði, kvíði, ójafn­vægi, streita og ofbeldi er skortur á boð­efnum sem afleið­ing þeirra efna sem ríkið selur okkur á meðan önnur nátt­úru­leg efni eru kol-ólög­leg og álitin hættu­leg. Í örvænt­ingu leitum við að dópamíni með skrolli öllum miðlum, sam­fé­lags, klám og frétta­miðlum. Við erum háð boð­efnum en erum að missa get­una til að fram­leiða og end­ur­upp­taka þau á nátt­úru­legan hátt og það mun aðeins leiða af sér meiri og meiri þján­ingu en samt sjáum við ekki orsaka­sam­hengið. Við erum orðin blinduð af skjá birt­unni og vonum bara að börnin okkar lifi þetta alla­vega af og verði heilli en við sjálf erum orðin.

Við að skrifa svona grein­ingu út frá vissri sýn og eflaust fyrir að aðra að lesa þessi ósköp hlýtur maður bara að fyll­ast von­leysi. Ég meina, er eitt­hvað hægt að gera til að sporna við þessu ófremd­ar­á­standi?

Svarið við þeirri spurn­ingu er klár­lega eitt stórt já. Það er margt hægt að gera og ég veit að þú les­andi góður veist svörin. Ég þarf ekki að telja þetta upp, öll þessi úrræði sem snúa að því að taka til í eigin garði hvað varðar þessa basic hluti eins og mat­ar­ræði og venjur, hreyf­ingu og öndun og svefn.

Alkóhól er hættu­leg­asta fíkni­efnið sem til er þó svo að það sé búið að vefja það inn í ein­hvern menn­ing­ar­legan skraut klæðnað.

Lang­flestar lyfja­lausnir við sjúk­dómum sem flestir eru ekk­ert annað en lífs­stíls­sjúk­dómar eru eitur sem fáir hagn­ast stjarn­fræði­lega af. Þeir sem vilja lesa það úr þessum orðum að ég sé á móti öllum lyfjum sem til eru og hafa verið fram­leidd verða að eiga það við sjálft sig því það er ekki það sem ég er að segja.

Rísandi þján­ing er ekki hægt að útrýma með ein­kenna mið­uðum lausnum þó svo að oft finn­ist mér það eina sem við kunnum. Oft er lausnin beint fyrir framan mig og er ég horfi í speg­ill þá sé að ég ber ábyrgð­ina á eigin heilsu, eigin við­horfum og gildum. Ég laga ekki rísandi þján­ingu með að kenna kerf­inu um, kerfið hefði á grípa þennan og ala þennan betur upp, þetta virkar ekki svona. Kerfið er ein­fald­lega bara end­ur­speglun á því sem við sem heild erum orðin. Við kjósum yfir okkur sið­blind­ingj­ana og við trúum svoköll­uðu fag­fólki bara því eitt­hvað skjal var ein­hvern­tíman ram­mað inn.

Ég einn ber ábyrgð á að vekja inn­sæi mitt og dóm­greind, engin getur né gerir neitt fyrir mig, ég ber ábyrgð á að elska sjálfan mig í sam­ræmi við hvernig ég elska allt og alla í kringum mig. Elskan er ekki skil­yrt á þann hátt að ég geti elskað kon­una mína og barn en hatað annan mann sem ég kenni um ófarir mínar. Elskan er ljósið sem lýsir upp alla skugga, elskan er heil­brigð mennska og ég geri til­kall til hennar.

Þetta er lang­loka og þetta eru orðin mín og þau hafa þýð­ingu. Þau eru rituð í kær­leik til allra sem upp­lifa þján­ingu sem og til allra sem orsaka hana, ég geri engan grein­ar­mun þar á, þvi sá sem veldur þján­ingu er alveg sama fórn­ar­lambið og það sem hann skapar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina