Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Tíu íslenskar stúlkur aðalvitni FBI vegna sprengjuhótunar: „Þetta var 26 ára ítalskur töffari“

Tíu íslenskar stúlkur aðalvitni FBI vegna sprengjuhótunar: „Þetta var 26 ára ítalskur töffari“
Pan Am flug­vél Mynd: Trausti Hafsteinsson

Tíu íslenskar stúlkur og kenn­ari þeirra lentu heldur betur í hremm­ingum á leið sinni frá New York til Miami árið 1989 þegar sessu­nautur einnar þeirra hót­aði skyndi­lega að sprengja upp flug­vél­ina.

Íslenskir spænsku­nemar, 10 manna stúlkna­hópur fengu heldur betur meira fyrir flug­mið­ann frá New York til Miami, en þær báðu um þegar ítalskur karl­maður til­kynnti allt í einu að hann væri með sprengju og hann myndi sprengja vél­ina í loft upp. Eftir að flug­vél­inni var lent í Miami var mað­ur­inn hand­tek­inn en stúlk­urnar íslensku urðu aðal­vitni banda­rísku alrík­is­lög­regl­unnar í mál­inu þar sem þær sátu næst mann­inum.

Tíminn náði einka­við­tali við eina stúlk­una, Önnu Margréti Bjarna­dóttur, sem var sessu­nautur hins ítalska „töffara“ eins og hún lýsti honum. „Hann var klæddur í svarta silki­skyrtu, með opið niður á bringu og áber­andi háls­festi,“ sagði Anna og bætti við að hann hefði verið mjög stress­aður og verið til vand­ræða. Hann hafi talað mikið við stúlk­urnar um Ísland en þær hafi reynt hvað þær gátu að losna við hann, „sögðum meðal ann­ars að íslenskar konur væru ægi­legar val­kyrjur og næstum því hættu­legt að vera nálægt okkur,“ sagði Anna í við­tal­inu.

Anna sagði að flug­freyj­urnar hafi hegðar sér mjög „heimsku­lega“ í flug­inu en það hafi verið mjög áber­andi að þær voru hræddar við Ítalann og að íslenska hópnum hafi verið hætt að lít­ast á blik­una. Flug­freyj­urnar hafi beðið um að fá að kíkja í tösku manns­ins sem hann hélt á en hann neitað því. Þegar flug­vél­inni var síðan lent í Miami hafi FBI hand­tekið mann­inn „A la Miami Vice“ eins og það er orðað í frétt Tímans.

Hér fyrir neðan má lesa við­tal Tímans frá 1989:

Tíu íslenskar stúlkur á leið til Mexíkó með kenn­ara sínum aðal­vitni FBI vegna sprengju­hót­unar:

Sessu­naut­ur­inn hót­aði að sprengja flug­vél­ina

Tíu manna hópur íslenskra spænsku­nema og kenn­ari þeirra urðu fyrir því að sam­far­þegi þeirra í inn­an­lands­flugi í BNA, lýsti því yfir að hann væri með sprengju í hand­far­angri. Banda­ríska Alrík­is­lög­reglan, FBI, hand­tók mann­inn við lend­ingu vél­ar­innar í Miami og nem­arnir voru teknir til yfir­heyrslu sem aðal­vitni í mál­inu þar sem þeir sátu næst mann­inum alla leið­ina frá New York.

Spænsku­nem­arnir, allt stúlkur, voru á leið frá New York til alþjóð­lega flug­vall­ar­ins í Miami, með full­set­inni breið­þotu Pan Am, síð­ast­lið­inn fimmtu­dag, skömmu fyrir hádegi að stað­ar­tíma. Þaðan var för­inni heitið áfram til Mexíkó. Þrjár stúlkn­anna sátu í öft­ustu röð næst sal­erni flug­vél­ar­innar. Skömmu eftir flug­tak kom til þeirra maður sem hafði setið framar í vél­inni. Hann færði sig til í vél­inni þar sem fremst er bannað að reykja. Ein stúlkn­anna reykir ekki og bauð mann­inum að skipta við sig um sæti. Þegar leið á ferð­ina gaf mað­ur­inn sig á tal við sessu­naut sinn Önnu Margréti Bjarna­dóttur. Hann hafði mik­inn áhuga á íslandi og spurði um allt milli him­ins og jarðar varð­andi land og þjóð.

„Þetta var 26 ára ítalskur töffari. Hann var klæddur í svarta silki­skyrtu, með opið niður á bringu og áber­andi háls­festi. Hann var í vín­rauðum jakka­fötum með svarta stress-tösku sem hann var alltaf að opna. Hann var ofsa­lega stress­aður og mjög mikið vesen á honum. Þessi náungi sagð­ist vera frá Róm en hefði búið í New York síð­ast­liðin ell­efu ár. Hann tal­aði ensku með mjög sterkum ítölskum hreim og sagði mér að hann væri skart­gripa­sali. Maðurinn tal­aði mjög mikið við okkur og var alltaf að spyrja eitt­hvað um Ísland. Við reyndum eftir fremsta megni að losna við hann, sögðum meðal ann­ars að íslenskar konur væru ægi­legar val­kyrjur og næstum því hættu­legt að vera nálægt okkur,“ sagði Anna.

Anna Margrét Bjarna­dóttir

Þegar hún spurði hvað hann ætl­aði að gera til Miami fékk hún þrjár mis­mun­andi útskýr­ingar. „Til að byrja með sagð­ist hann vera að fara til Miami í við­skipta­er­indum, síðan sagð­ist hann vera að fara að heim­sækja kærust­una sína og að lokum að hann væri bara að fara í frí og sleikja sól­ina. Að þess­ari ferð lok­inni ætl­aði hann í heim­sókn til Rómar.“ Þegar leið á ferð­ina tóku stúlk­urnar eftir því að flug­freyj­urnar virt­ust hafa mjög mik­inn áhuga á mann­inum. „Við vissum ekki hvað gekk á en okkur fór ekki að verða um sel. Flug­freyj­urnar hegð­uðu sér að mínu mati mjög heimsku­lega. Þær voru alltaf að segja hver annarri að fara var­lega og passa sig, svo far­þeg­arnir heyrðu. Það var allt of áber­andi að þær voru hræddar við mann­inn,“ sagði Anna.

Þegar leið á flug­ferð­ina stóð mað­ur­inn upp og ætl­aði á sal­ernið. „Þá upp­hófust mikil læti og flug­freyj­urnar náðu í verði sem fóru að tala við mann­inn og vildu fá að leita í tösk­unni hjá honum. Ítalinn reyndi að afsaka þessa upp­á­komu við okkur og sagð­ist alltaf lenda í ein­hverju ves­eni í flug­vélum þar sem hann væri svo blóð­heitur, en að hann væri í raun og veru ekki slæmur náungi. Hann hefði bara ekki viljað skilja tösk­una eftir í sæt­inu. Flug­freyj­unum og Ítalanum bar að sögn FBI ekki saman um hót­un­ina. Tvær flug­freyj­anna voru harðar á því að hann hefði sagst vera með sprengju í tösk­unni en við okkur sagð­ist hann hafa spurt hvort þær væru eitt­hvað hræddar við sprengju þegar hann ætl­aði með tösk­una á sal­ernið,“ sagði Anna.

Þegar flug­vélin var lent í Miami var til­kynnt í hátal­ara­kerf­inu að FBI ætli að koma um borð og taka einn far­þeg­anna fastan. „Þeir komu aft­urí og það má segja að þetta hafi verið hand­taka „a la Miami Vice“. Ítalanum var greini­lega mjög brugðið þegar til­kynnt var um FBI. Hann sat til að byrja með alveg kyrr en þegar þeir tóku hann og beygðu niður í gólfið og smelltu hand­járnum á, barð­ist hann um á hæl og hnakka. Ein stúlkn­anna sá FBI fara ofan í tösk­una hjá honum og taka upp svart hylki og bréf og setja í plast­poka en við vitum ekki hvað það var. Þegar þessu var lokið var til­kynnt að um sprengju­hótun hafi verið að ræða,“ sagði Anna.

Öllum far­þegum sex öft­ustu sætarað­anna var smalað saman, einn bið­salur flug­stöðv­ar­innar rýmdur og fólkið tekið til yfir­heyrslu, einn í einu. Sérstök áhersla var lögð á yfir­heyrslu Önnu Mar­grétar þar sem hún hafði setið við hlið manns­ins megnið af leið­inni. „Þeir spurðu okkur spjör­unum úr varð­andi hvað við hefðum séð und­ar­legt við mann­inn. Þeir voru mjög vin­gjarn­legir en við vorum dauð­hræddar um að missa af flug­vél­inni okkar til Mexíkó, sem við náðum þó í þremur mín­útum fyrir brott­för,“ sagði Anna.

Skrif­stofur FBl í Miami voru lok­aðar í gær en þá var „Memorial day“ hald­inn hátíð­legur. Af þessum sökum feng­ust ekki frek­ari upp­lýs­ingar varð­andi hvort mað­ur­inn hefði í raun verið með sprengju í far­angrinum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni