Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Dularfulli Ríkisútvarpsmaðurinn finnst ekki: Páll skipstjóri sættir sig ekki við uppgjöf lögreglu

Dularfulli Ríkisútvarpsmaðurinn finnst ekki: Páll skipstjóri sættir sig ekki við uppgjöf lögreglu

Lög­reglan í Norð­ur­landi eystra hefur ákveðið að hætta rann­sókn vegna síma­máls Páls Stein­gríms­sonar skip­stjóra. Sex sak­born­ingar úr fjöl­miðla­stétt  hafa verið leystir undan grun og geta um frjálst höfuð strokið. Ólíklegt er þó að mál­inu sé lokið þar sem Páll Stein­gríms­son íhugar að vísa mál­inu til rík­is­sak­sókn­ara sem getur fyr­ir­skipað lög­regl­unni að halda áfram með málið. Samkvæmt heim­ildum Mannlífs mun Páll beina spjótum sínum sér­stak­lega að Rík­is­út­varp­inu og þætti þess í fram­hald­inu.

Forsaga máls­ins er sú að fyrr­ver­andi eig­in­kona Páls var í sam­ráði við fjöl­miðla­fólk um að afhenda því síma fyrr­ver­andi eig­in­manns síns sem lá á sjúkra­húsi alvar­lega veikur. Síminn var afhentur í höf­uð­stöðvum Rík­is­út­varp­ins að Þóru Arn­órs­dóttur, þáver­andi rit­stjóra frétta­skýr­inga­þát­ar­ins Kveiks, og Arnari Þór­is­syni, aðal­fram­leið­anda þátt­ar­ins við­stöddum. Þriðji Rík­is­út­varps­mað­ur­inn var kall­aður til og hann tók við sím­anum og hvarf á braut. Líklegt er talið að hann hafi brotið sím­ann upp.  Konan hefur stað­fast­lega neitað að vita hver tækni­mað­ur­inn í bak­her­berg­inu er og hvorki Þóra né Arnar hafa feng­ist til að upp­lýsa um nafn þess manns. Þarna strandar málið.

Gögn úr sím­anum bár­ust síðan til Stund­ar­innar og Kjarnans sem birtu fréttir af því sem kallað var skæru­liða­deild Samherja. Yfirlýst var að hvor­ugur fjöl­mið­ill­inn hefði átt þátt í að sækja gögnin á sjúka­beð Páls. Athygli vekur að frétta­menn og tækni­menn Rík­is­út­varps­ins nýttu sér gögnin ekki í eigin þágu heldur fram­vís­uðu þeim annað. Þeir komu því ekki að málum sem fjöl­miðla­fólk. Eftir að fréttir birt­ust á miðl­unum tveimur þá tók Rík­is­út­varpið þær upp og vitn­aði til Kjarnans og Stund­ar­innar.

Þóra Arn­órs­dóttir var í lyk­il­hlut­verki þegar sími Páls var afhentur í höf­uð­stöðvum Rík­is­út­varps­ins. Mynd Rakel Ósk

Fjöl­miðla­fólkið fagn­aði í gær nið­ur­stöð­unni en harm­aði jafn­framt að hafa verið til rann­sóknar allan þann tíma ssem um ræðir. Blaða­manna­fé­lag Íslands tók undir með þeim og for­dæmdi fram­göngu lög­regl­unnar og þá ekki síst lang­orða til­kynn­ingu lög­regl­unnar á Facebook þar sem lík­legt er talið að sök sé til staðar hjá ein­hverjum úr hópi hinna grun­uðu. Páll Stein­gríms­son tekur í sama streng og íhugar nú næstu skref í mál­inu. Hann hefur tvo val­kosti til að sækja málið áfram. Hann getur leitað til rík­is­sak­sókn­ara eða farið í einka­mál við Rík­is­út­varpið og eftir atvikum aðra. Hann harm­aði í gær nið­ur­stöðu lög­regl­unnar.

„Það er erfitt að lýsa þeim til­finn­ingum sem bær­ast með manni eftir að hafa verið brota­þoli í lög­reglu­rann­sókn sem tekið hefur ríf­lega þrjú ár og lýkur núna með til­kynn­ingu lög­regl­unnar um að hún hafi ákveðið að hætta rann­sókn máls­ins. Þó að ég hafi haft það á til­finn­ing­unni um nokk­urt skeið að svona gæti farið er þessi ákvörðun lög­regl­unnar tals­vert áfall. Ekki síst vegna þess að hún sýnir að sú taktík sak­born­inga að tefja, blekkja og afvega­leiða rann­sókn máls­ins hefur gengið upp. Í það minnsta um sinn, því ég neita að gef­ast upp við að sækja rétt­læti vegna þeirra árásar sem hópur fjöl­miðla­manna gerði á fjöl­skyldu mína, því slík vinnu­brögði mega aldrei verða end­ur­tekin af þessum hóp …,“ skrifar Páll.

Sú spurn­ing sem eftir stendur er sú hvenær rétt­læt­an­legt sé að brjóta upp far­síma fólks í því skyni að birta opin­ber­lega upp­lýs­ingar. Þá er því velt upp af þol­anda máls­ins hvort hægt sé að skil­greina Rík­is­út­varpið sem fjöl­miðil í því sam­hengi að gögnum var komið áfram til ann­arra fjöl­miðla. Ekki þykir leika vafi á því að blaða­menn miðl­anna sem birtu frétt­irnar eiga að njóta þeirrar stöðu sem felst í laga­vernd fyrir fjöl­miðla.

Allt þetta mál þykir fela í sér áfell­is­dóm yfir lög­regl­unni á Norð­ur­landi sem árum saman hefur verið að rann­saka mál sem gufar síðan upp. Þóra Arn­órs­dóttir, fyrr­ver­andi rit­stjóri Kveiks og tals­maður Lands­virkj­unnar, sagði við Mannlíf fyrr í vik­unni að eðli­legt væri að lög­reglan bæð­ist afsök­unar á fram­göngu sinni. Það kann að eiga við gagn­vart fórn­ar­lamb­inu ekki síður en blaða­mönn­unum sem birtu frétt­irnar upp úr far­sím­anum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Svipuð atvik hafa komið upp við heimili Ragnars frá árinu 2023
Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina