Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Dagný kennari hefur áhyggjur: „Óskandi að skólakerfið væri ekki tengt við pólitík“

Dagný kennari hefur áhyggjur: „Óskandi að skólakerfið væri ekki tengt við pólitík“
Dagný finnst gaman að mæta til vinnu

Und­an­farnar vikur hafa átt sér stað miklar og háværar umræður um íslenska skóla­kerfið og eru skiptar skoð­anir um það þessa stund­ina. Dagný Gísla­dóttir kenn­ari skrif­aði pistil um sína reynslu og upp­lifun sem kenn­ari.

„Ef þú bara vissir hvað mér þykir gaman að mæta í vinn­una. Nýjar áskor­anir á hverjum degi. Ótal tæki­færi til að byggja upp ein­stak­linga fram­tíð­ar­innar og hvetja þá til góðra verka. Læra meira en í gær, kenna allt milli him­ins og jarðar og jafn­vel skoða hluti sem maður vissi ekki að væru til. Sjá fram­farir nem­enda, litlu hlut­irnir og stóru sigr­arnir. Upplifa gleði og sorg, taka þátt í lífi ein­stak­lega sem skipta mig miklu máli, okkur öll, alla sem starfa í skóla.

Finna náms­efni við hæfi, huga að áhuga­sviði hvers og eins og reyni eftir bestu getu að nálg­ast alla á þeirra for­sendum á eins fjöl­breyttan hátt og hugs­ast getur. Vinna eftir Aðal­námskrá grunn­skóla, skóla­námskrá, Barna­sátt­mál­anum, Heims­mark­mið­unum og hinum ýmsu lögum og reglum. Enn um leið sinna sam­fé­lags­legri skildu ef þurfa þykir, ásamt því að skella einum og einum plástri á bæði sýni­leg og ósýni­leg sár,“ skrifar Dagný á Facebook.

Dagný segir að hún styðji for­eldra og for­ráða­menn sem koma að nem­endum. Þetta sé sam­starfs­verk­efni allra og það hjálpi börn­unum að þroskast. Hún segir kenn­ara­stétt­ina vera frá­bæra, telur sig heppna að hennar hlut­verk sé fjöl­breytt og að hún sé fyr­ir­mynd.

„Líðan og félags­leg staða ein­stak­linga er í dag þáttur sem spilar veiga­mikið hlut­verk í sam­fé­lag­inu okkar. Ég tel að skóla­sam­fé­lagið í heild hafi gíf­ur­lega miklar áhyggjur af þessum vanda sem virð­ist stækka. Þessir þættir hafa verið rann­sak­aðir tölu­vert í gegnum tíð­ina. Nið­ur­staða margra kann­anna sýna að nú er staðan verri en oft áður. Í grunnin tel ég mál­þroska og orða­skiln­ing vera einn þátt í þessum vanda. Ef við náum ekki að tjá okkur þá getum við ekki sagt hvernig okkur líður og þá förum við oft að haga okkur illa. Þá eru einnig margir þættir sem spila inn í heild­ar­mynd­ina eins og lítil sam­vera, sam­fé­lags­miðlar, net­notkun og fleira. En mark­mið mitt hér er ekki að fjalla um rann­sóknir og ástæður heldur frekar hug­myndir og hug­leið­ingar af lausnum á þess­ari stöðu.

Ég hef nefni­lega líka áhyggjur, því þó við kenn­arar séum sér­fræð­ingar á okkar sviði, lausn­a­mið­aðir og séum góðir í að laga okkur að aðstæðum þá getum við ekki einir og sér leyst þann vanda sem hér um ræðir. Skóla­sam­fé­lagið þarf sér­fræð­inga sem vinna saman að því mark­miði að styðja við börnin okkar, fram­tíð­inni. Að börn­unum okkar líði sem allra allra best og þá tel ég að í fram­haldi muni allt ganga mikið betur eins og til dæmis nám þeirra. Skóla­sam­fé­lagið er oft­ast fljótt að koma auga á og vinna með hvern og einn ein­stak­ling, en okkur vantar oft bjargir, aðra sér­fræð­inga sem styðja við barnið, fjöl­skyldur þess og okkur í skóla­sam­fé­lag­inu,“ heldur Dagný áfram.

Hún segir að sér­fræð­ing­arnir eigi að vera hluti af teym­inu, ekki að standa fyrir utan það. Þannig væri hægt að grípa fyrr inn í þegar eitt­hvað bjátar á. Það sé ekki hægt að setja á stopp og bíða í mán­uði eða ár því börnin séu það mik­il­væg­asta sem við eigum. Það þurfi að vera mann­skapur til þess.

„Það væri ósk­andi að skóla­kerfið væri ekki tengt við póli­tík og ákvarð­anir ættu ekki að vera geð­þótta­á­kvörðun þeirra sem stjórna hverju sinni. Eru sveita­fé­lögin að ráða við þessa ábyrgð eða ættu þau ekki að bera hana? Er ábyrgð rík­is­ins ekki nein eða finnst þeim sem þar stjórna eðli­legt að börnum sé oft mis­munað eftir til dæmis búsetu? Börn eiga rétt og þann rétt er auð­velt að setja á blað en oft á tíðum erfitt að fram­fylgja eða hvað? Draumur minn sem kenn­ara er að starfi mínu og skólaum­hverf­inu væri sýnd virð­ing af öllum í sam­fé­lag­inu okkar.

Ég ætla að halda áfram vera kenn­ari sem hef trú á nem­endum mínum og trúa því að þeim séu allir vegir færir. En að því sögðu vona ég sann­ar­lega að þeir sem stjórna sjái til þess að ég og aðrir í skóla­sam­fé­lag­inu getum unnið vinn­una okkar. Það er nefni­lega þannig að í þorp­inu þurfum við öll að standa saman. Tíminn er dýr­mætur,“ skrifar kenn­ar­inn að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina