Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Illugi um Sigurð Inga: „Jafn undirförull og óheiðarlegur og sumir sem eiga verra með að fela það“

Illugi um Sigurð Inga: „Jafn undirförull og óheiðarlegur og sumir sem eiga verra með að fela það“

Illugi Jök­uls­son segir Sigurð Inga Jóhanns­son vera und­ir­förulan og óheið­ar­legan.

Í til­efni við­tals sem Sigurður Ingi Jóhanns­son, for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins sem birt­ist á Vísi í gær skrif­aði fjöl­miðla­mað­ur­inn Illugi Jök­uls­son færslu en for­mað­ur­inn ræddi meðal ann­ars um myndun rík­is­stjórn­ar­innar 2017. Segir Illugi Sigurð Inga fara með rangt mál að þreyf­ingar stjórn­ar­and­stöðu­flokk­anna til rík­is­stjórn­ar­mynd­unar hefðu siglt í strand vegna Pírata, Vinstri grænir hafi þá þegar verið búnir að ákveða að mynda stjórna með Framsókn og Sjálf­stæð­is­flokknum.

„Kannski er Sigurður Ingi far­inn að trúa þessu sjálfur, að til­raunir Katrínar Jak­obs­dóttur til að mynda vinstri stjórn 2017 hafi sann­fært hann um að Píratar væru ekki stjórn­tækir og því hafi hann neitað að taka þátt í frek­ari við­ræðum um vinstri stjórn, sem aftur hafi leitt til þess að það varð að taka djarfa ákvörðun um sam­starf Sjálf­stæð­is­flokks, Fram­sókn­ar­flokks og VG.“ Þannig hefst færsla Illuga en hann segir þetta vera „þvaður“:

„Þetta er bara þvaður. Það var búið að taka ákvörðun um þessa stjórn fyrir kosn­ingar. Þetta veit ég vegna þess — og ég hef oft sagt þessa sögu áður — að strax dag­inn eftir kosn­ing­arnar hitti ég fram­bjóð­anda Fram­sókn­ar­flokks­ins, sem var í aðeins of góðu skapi eftir þokka­legt gengi í kosn­ing­unum, og sagði mér (og fleirum) nákvæm­lega hvernig þetta yrði:Þegar Katrín fengi stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boð myndi hún efna til við­ræðna um vinstri stjórn en þær við­ræður væru bara þykjustu­leikur til að kasta ryki í augu kjós­enda VG og sann­færa þá um að Katrín hefði vissu­lega reynt að mynda vinstri stjórn.(Það má geta þess að staf­rétt orð­aði þessi fram­bjóð­andi Fram­sókn­ar­flokks­ins það svo að þessar þykjustu­við­ræður væru til að „friða Alþýðu­banda­lagið í Reykja­vík“.)

Í raun myndu mála­mynda­við­ræð­urnar taka bara 3-4 daga og „þá munum við [Fram­sókn­ar­menn] segja hingað og ekki lengra og þá „neyð­ist“ Katrín til að mynda þá stjórn með Bjarna og okkur [Fram­sókn­ar­mönnum] sem Katrín og Svandís eru þegar búnar að ákveða að verði“.“

Segir Illugi í loka­orðum sínum að Sigurður Ingi hafi „ískrað af ánægju yfir því hve snilld­ar­lega yrði svínað á þeim kjós­endum VG sem í barna­skap sínum tryðu því að Katrín hefði áhuga á að mynda vinstri stjórn.“

„Þessum káta fram­bjóð­anda Fram­sókn­ar­flokks­ins datt ekki einu sinni í hug að það væri neitt athuga­vert við þetta, heldur þvert á móti ískraði af ánægju yfir því hve snilld­ar­lega yrði svínað á þeim kjós­endum VG sem í barna­skap sínum tryðu því að Katrín hefði áhuga á að mynda vinstri stjórn. — Svona var nú þetta.“

Í athuga­semd við eigin færslu bætti Illugi því við að nú muni Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn „eyra á því hvað Sigurður Ingi sé heið­ar­legur og góður maður sem alltaf megi treysta,“ en að raunin sé nú allt önnur:

„Það má geta þess að ég VEIT að þetta er sönn lýs­ing á stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræð­unum 2017, það þarf eng­inn að efast um það. En ég hef nú þegar á þessum þrem korterum síðan þetta birt­ist fengið enn fleiri stað­fest­ingar þess arna. Sem aftur leiðir hug­ann að einu: Nú mun Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn keyra á því hvað Sigurður Ingi sé heið­ar­legur og góður maður sem alltaf megi treysta. Þegar reyndin er sú að hann er jafn und­ir­för­ull og óheið­ar­legur og sumir sem eiga verra með að fela það.“

Alex­andra Briem, borg­ar­full­trúi Pírata stað­festi frá­sögn Illuga af stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræð­unum 2017 í athuga­semd við færslu fjöl­miðla­manns­ins:

„Okkar fólk upp­lifði mjög sterkt á þessum tíma að það væri ekki verið að reyna í alvöru að ná saman. Það væri verið að reyna að egna okkur til að slíta við­ræð­unum, en þar sem þau sáu í gegnum það og slitu ekki, þá á end­anum slitu hin og fóru bara í stað­inn að segja þá sögu að Píratar hefðu verið ómögu­legir.

Ofboðs­lega lélegur og óheið­ar­legur leikur. Vonandi er fólk til­búið að nálg­ast þetta af meiri ærleika í þetta skiptið.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina