Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Hissa á hegðun Kristrúnar: „Synd að búið sé að taka fyrir að Dagur verði ráðherra í ríkisstjórn“

Hissa á hegðun Kristrúnar: „Synd að búið sé að taka fyrir að Dagur verði ráðherra í ríkisstjórn“
Dóra Björt Guð­jóns­dóttir borg­ar­full­trúi

Borg­ar­full­trúi Pírata – Dóra Björt Guð­jóns­dóttir – er algjör­lega gáttuð á hegðun for­manns Sam­fylk­ing­ar­innar, Kristrúnar Frosta­dóttur. Einka­skila­boð Kristrúnar til kjós­anda þess efnis að Dagur B. Egg­erts­son fyrr­ver­andi borg­ar­stjóri yrði ekki ráð­herra ef Sam­fylk­ingin kæm­ist í rík­is­stjórn voru birt í Facebook-grúppu íbúa í Graf­ar­vogi, en þetta kom fram á RÚV.

Í skila­boð­unum segir Kristrún að Dagur muni eigi verða ráð­herra ef Sam­fylk­ingin kemst í rík­is­stjórn; sagði Kristrún jafn­framt að umræddur kjós­andi gæti mögu­lega strikað út nafn Dags á kjör­seðl­inum:

Dagur B. Egg­erts­son.

„Við erum í dauða­færi til að leiða raun­veru­legar breyt­ingar á sam­fé­lag­inu. Við megum ekki láta einn mann úti­loka það. Hann er auka­leik­ari, ekki aðal, í þessu verk­efni,“ segir í skila­boðum Kristrúnar.

„Ég er gáttuð á þess­ari hegðun Kristrúnar, eins ágæt og hún nú er gamla hand­bolta­vin­kona mín,“ sagði áður­nefnd Dóra Björt í Facebook-færslu; sagði þennan gjörn­ing afhjúpa tak­mark­aðan skiln­ing á vægi fyrr­ver­andi borg­ar­stjóra til lengri tíma við mótun borg­ar­innar; þekk­ingar hans á stjórn­málum og getu til að halda utan um flókið sam­starf:

„Það er hrein­lega synd að búið sé að taka fyrir að Dagur verði ráð­herra í kom­andi rík­is­stjórn sem og sóun á hans hæfi­leikum og tapað tæki­færi fyrir Sam­fylk­ing­una og sam­fé­lagið okkar. Er áróður Sjálf­stæð­is­flokks­ins gegn einum allra áhrifa­mesta póli­tíkusi Sam­fylk­ing­ar­innar fyrr og síðar búinn að blinda for­mann flokks­ins?“

Koma Kristrúnar í for­manns­stól Sam­fylk­ingar hefur skilað sér vel.

Hér má lesa skila­boð Kristrúnar í heild sinni:

„Ég er for­maður flokks­ins og stýri mál­efna­á­herslum með stjórn flokks­ins. Dagur verður óbreyttur þing­maður, ekki ráð­herra, hann situr ekki í stjórn flokks­ins og mun ekki sitja í rík­is­stjórn.

Í stórum breiðum flokki sem [Sam­fylk­ingin] er og þar að vera til að leiða raun­veru­legar breyt­ingar velj­ast alltaf inn ein­hverjir ein­stak­lingar sem kjós­endur hafa skiptar [skoð­anir] á. Þannig hefur lýð­ræðið alltaf virkað. En ég skil vel sjón­ar­mið fólks sem vill ekki hafa hann og ef þú býrð og kýst í Reykja­vík norður, þar sem ég er odd­viti og hann er í öðru sæti, þá liggur bein­ast við að strika hann út í kjör­klef­anum.

Ég bið þig að líta á heild­ar­mynd­ina, áhersl­urnar sem ég hef barist fyrir und­an­farin ár í hús­næðis-, efna­hags- og heil­brigð­is­málum. Auð­linda­málum. Það eru áhersl­urnar sem munu ein­kenna [Sam­fylk­ing­una] í rík­is­stjórn, ekki hvað borgin hefur gert.

Dagur stýrir ekki [Sam­fylk­ing­unni], ég geri það. Hann þarf að fylgja for­yst­unni. Við erum í dauða­færi til að leiða raun­veru­legar breyt­ingar á sam­fé­lag­inu. Við megum ekki láta einn mann úti­loka það. Hann er auka­leik­ari, ekki aðal, í þessu verk­efni. Staða hans á list­anum breytir engu um áherslur [Sam­fylk­ing­ar­innar] og þýðir ekki að ég sé sam­þykk öllu því sem borgin hefur gert.

Það hefur orðið gíf­ur­leg end­ur­nýjun á listum [Sam­fylk­ing­ar­innar] heilt yfir!

Nú reynir á okkur í [Sam­fylk­ing­unni] að sýna og sanna hvar við stöndum og [að] við séum trausts­ins verð á næstu vikum.

Hvet þig til að fylgj­ast með og gefa þessu tæki­færi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við